Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2000, Blaðsíða 7
Menalind'
Vernd fyrir viðkvæma húð
Gleðilegt ár!
Skömmu fyrir áramótin síðustu var
haldin ráðstefna á vegum WHO í
húsakynnum Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar í Kaupmannahöfn. Um
180 fréttamenn, sem fjalla að öllum
jafnaði um heilbrigðismál í Evrópu,
ræddu m.a. um hvernig fréttaskrif um
heilbrigðismál verða á 21. öldinni. Þar
kom fram að fréttir og greinar um
heilbrigðismál eru almennt vinsælt
lesefni en vöntun hefur verið á
vönduðum skrifum. Hjúkrunartímarit í
Evrópu fengu þar ágæta kynningu og
var Tímarit hjúkrunarfræðinga á íslandi
þeirra á meðal. Enda er mikið lagt í
fræðigreinar sem eru birtar í tímaritinu
og ritrýndar fræðigreinar eru sem
kunnugt er á MEDLINE.
Út um allan heim eru menn að taka
tæknina í notkun og koma sér upp
heimasíðum og nú er www.hjukrun.is
orðin að veruleika. Er óhætt að segja
að tilkoma upplýsingavefsíðu valdi
straumhvörfum í miðlun upplýsinga til
félagsmanna. Nú geta félagsmenn
fengið upplýsingar um flest allt á
vefnum, prentað út umsóknareyðublöð
og sótt um styrki, sent netpóst beint til
fagdeilda og svæðisdeilda, tengst
öðrum athyglisverðum slóðum og
síðast en ekki síst sent inn efni til
Tímarits hjúkrunarfræðinga ýmist í
gegnum netpóst eða beint. Á vefnum
verður einnig komið upp gagnabönkum
um efni sem birst hefur í tímaritinu,
fræðigreinum og viðtölum. Þar verður
einnig að finna upplýsingar um laus
störf og ráðstefnur víða um heim. Látið í
ykkur heyra og sendið inn efni eða hug-
myndir að efni sem ykkur finnst
áhugavert.
[ þessu tölublaði er að finna tvo
fyrstu pistlana frá svæðisdeildum
félagsins en ritnefnd ákvað á fundi
sínum sl. ár að bjóða deildunum að
skrifa pistla um sjálfvalið efni, þar sem
HARTMANN
BEDCO & MATHIESEN EHF
Bæjarhrauni 10
sími 565 1000 • fax: 565 1001
lítið hefur frést af starfinu utan
höfuðborgarsvæðisins.
Annað fréttnæmt af störfum
ritnefndar er að vinnuhópur er nú
starfandi þar sem reglur um ritun
fræðigreina fyrir tímaritið eru í
endurskoðun og verða þær birtar í
heild sinni þegar þeirri vinnu verður
lokið. ( hópnum eiga sæti auk ritstjóra,
Helga Lára Helgadóttir fyrir hönd
ritnefndar og Helga Jónsdóttir sem er
fulltrúi Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga.
Búum saman til gott tímarit sem í
er að finna vandaðar fræðigreinar og
góða umfjöllun um ýmis málefni á
heilbrigðissviðinu!
Til hamingju moð
hoimasíðuna!
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 76. árg. 2000
7