Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2000, Blaðsíða 31
11. febrúar 2000
Félagsráðsfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga var
haldinn föstudaginn 11. febrúar sl. Dagskráin hófst með því
að fundarmönnum var boðið að kynnast nýjum upplýsingavef
félagsins sem var formlega opnaður síðar um daginn. Agnar
Johnson kynnti vefinn svo og umsjónarkerfið Kasmír sem
félagið hefur fest kaup á. Allir formenn nefnda og fag- og
svæðisdeilda fá aðgang að umsjónarkerfinu og geta því sett
sitt efni beint inn á vefinn. Auk þess að sýna fundarmönnum
kerfið fengu fulltrúar nokkurra fagdeilda tækifæri til að setja
inn fundatilkynningar þannig að fundarmenn sáu glöggt
hversu auðvelt og handhægt kerfið er í notkun.
Eftir hádegishlé var gengið til hefbundinnar dagskrár. Ingunn
Sigurgeirsdóttir, fjármálastjóri, fór yfir fjárhagsstöðu félagsins.
Kom fram í máli hennar að staða félagsins er nokkuð góð.
Flerdís Sveinsdóttir, formaður, ræddi stöðu kjaramála. Utið hefur
þokast með framgangskerfi á flestum minni stofnunum um land
allt svo og á öldrunarstofnunum. Þá sagði Herdís frá því að
stofnaðir hefðu verið sex bakhópar til stuðnings kjaranefnd en
þessir hópar eru öldrunarhópur, vaktahópur, menntunarhópur,
almennur kjarahópur, heilsugæsluhópur og hópur stjórnenda.
Þessum hópum er ætlað að koma með tillögur inn í kröfu-
gerðina, hver á sínu sviði fyrir 1. apríl nk. Þá var rætt um hvort
skipa ætti tryggingahóp sem skoðar stöðu hjúkrunarfræðinga
varðandi tryggingar í og utan vinnu. Fierdís upplýsti að helstu
þættir, sem settir yrðu á oddinn í komandi samningum, væru
hækkun vaktaálags og stytting vinnuviku auk þess sem náms-
leyfi hjúkmnarfræðinga og mat á námi til launa yrði skoðað
betur. Einnig tekur félagið þátt í sameiginlegri kröfugerð stóru
launþegasamtakanna um aukinn veikindarétt starfsmann og
vegna veikinda barna þeirra, um lengingu fæðingarorlofs og um
auknar tryggingar opinberra starfsmanna.
Þá var kynntur nýráðinn hagfræðingur félagsins, Helga
Birna Ingimundardóttir, sem tók til starfa 1. febrúar sl. Sagði
hún frá samantekt sinni um niðurröðun hjúkrunarfræðinga í
launaflokka á SHR og Ríkisspítölum. Þar kom fram að flestum
hjúkrunarfræðingum var raðað í nóvember á síðasta ári, í
launaflokka B4-B6 eða allt að 50% hjúkrunarfræðinga á SHR
Undir liðnum fréttir af starfi stjórnar kom fram að:
• Stjórn félagsins og fagdeild geðhjúkrunarfræðinga hafa
mótmælt niðurskurði á þjónustu við geðsjúka á SHR og
sent frá sér ályktun þess efnis.
• Stjórn félagsins hefur ályktað vegna niðurstaðna rann-
sókna um aðgengi að heilbrigðisþjónustu hér á landi.
• Bréf hefur verið sent tii yfirstjórnar SHR og Landspítala þar
sem farið er fram á að nýjar stjórnunarstöður, sem verða
til vegna sameiningar sjúkrahúsanna, verði auglýstar.
• Ákveðið hefur verið að hækka framlag félagsins til
fagdeilda í kr. 1.000.000. Umsóknarfrestur er til 15. apríl.
Þá hefur stjórn samþykkt, ef fjárhagur leyfir, hækkun á
framlagi til svæðisdeilda.
• Félagið hyggst gefa út bækling um störf hjúkrunarfræðinga.
• Félagið hefur beitt sér fyrir því að allir þeir nemendur, sem
náðu haustannarprófum á fyrsta ári í námsbraut í hjúkrunar-
fræði við H.Í., fái að halda áfram námi, eða 69 í stað 60 sem
fjöldatakmörkunin kveður á um. Það hefur verið samþykkt.
• Laganefnd BHM var falið að skoða fyrir félagið rétt félags-
manna á greiðslu fastrar yfirvinnu í námsleyfi. Laganefnd
hefur sent frá sér álit þar sem niðurstöður hennar eru á
þann veg að félagsmönnum beri að fá slíkar greiðslur.
• Nýir starfsmenn félagsins voru kynntir og boðnir velkomnir
til starfa en þeir eru Helga Birna Ingimundardóttir,
hagfræðingur, og Anna Árnadóttir, skrifstofumaður, sem
ráðin var í stað Áslaugar Guðjónsdóttur er hætti störfum
hjá félaginu í janúar sl.
Önnur mál:
• Hanna I. Birgisdóttir, formaður orlofsnefndar, bar undir
fundarmenn hugmynd nefndarinnar að selja orlofsíbúðina
að Suðurlandsbraut 22 og kaupa aðra íbúð á betri stað.
Fundarmönnum leist vel á þá hugmynd.
• Kristín Bjarnadóttir, formaður Norðausturlandsdeildar,
kynnti endurbyggingu Gudmanns Minde á Akureyri.
• Ákveðið var að hver fag- og svæðisdeild svo og nefnd
félagsins tilnefndi einn fulltrúa til setu á aðalfundi BHM
sem haldinn verður 31. mars og 1. apríl nk.
• Að lokum var sagt frá WENR-ráðstefnunni sem haldin verð-
ur hér á landi 25.-27. maí, undirbúningi að hjúkrunarþingi í
nóvember og alþjóðadegi hjúkrunarfræðinga 12. maí en
yfirskrift dagsins í ár er „Hjúkrun fyrir þig, alltaf, alls staðar."
Að lokum kvaddi Kristín Bjarnadóttir sér hljóðs og þakkaði
fyrir fundinn. Vildi hún beina þvi til stjórnar að hún tæki afstöðu
til mikillar vinnu hjúkrunarnema á meðan á námi stendur þar
sem hún telur það koma niður á bóklegu námi þeirra.
Aðalbjörg J. Finnbogadóttir
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 76. árg. 2000
31