Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2000, Blaðsíða 27
Kristín Björnsdóttir
^Mxi-S'fcAY'AnÁw. í Kjúkrun uið -Hl
_
f* j/
'Í ’ V TqJ mk ' j
■1 A r , \W ÁWVAWx H Æ J j rWT Wmmj H _ m Lámm S Ijl'l\ 1//7Ú1 ■ I *1
Fyrstu nemarnir í meistaranámi við námsbraut í hjúkrunarfræði við H.í. ásamt nokkrum kennurum sem standa að
náminu. Efri röð frá vinstri: nemendurnir Herdís Gunnarsdóttir, Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, Ingibjörg Elíasdóttir,
Ingibjörg Hjaltadóttir, Arna Skúladóttir, Sigrún Gunnarsdóttir og Gyða Baldursdóttir, kennararnir Herdís Sveinsdóttir
og Rúnar Vilhjálmsson og Margrét Björnsdóttir sem er bæði nemandi og kennari. Neðri röð frá vinstri: Marga
Thome, Helga Jónsdóttir, Erla Kolbrún Svavarsdóttir, Kristin Björnsdóttir og Guðrún Kristjánsdóttir.
Haustið 1998 hófst meistaranám í námsbraut í hjúkrunar-
fræði. Námið er til 60 eininga og er reiknað með að það
taki tvö ár í fullu námi að Ijúka því. Margir nemendur kjósa
þó að vinna með námi og Ijúka því á 2 1/2 - 3 árum. Átta
nemendur hófu nám í fyrsta hópnum og er því að síga á
seinni hluta hjá þeim. I hópnum, sem hóf nám nú í haust,
eru einnig átta nemendur, þar af ein Ijósmóðir sem mun
vinna verkefni á sviði Ijósmóðurfræðinnar. Áhugasvið í
nemendahópnum er breitt, s.s. heilsuvernd og heilsuefling,
hjúkrun barna og fjölskyldna þeirra, umhyggja í hjúkrun,
gæðamál heilbrigðisþjónustunnar, hjúkrun aldraðra. Námið
er skipulagt þannig að hver nemandi lýkur þremur kjarna-
námskeiðum. Þekkingarþróun í hjúkrun veitir innsýn í ólíkar
stefnur varðandi eflingu þekkingar og færni í hjúkrun á
tuttugustu öldinni. í aðferðafræðinámskeiðunum eru ólíkar
rannsóknaraðferðir og hugmyndafræðilegur grunnur þeirra
kynntur. Að öðru leyti velur nemandi námskeið í samvinnu
við leiðbeinanda sinn, bæði hér heima og erlendis.
Framboð á námskeiðum á meistarastigi í Háskóla
íslands eykst stöðugt og jafnframt fjölgar möguleikum til
að skrá sig í sérhæfð námskeið sem kennd eru á inter-
netinu. Gert er ráð fyrir að hver nemandi Ijúki sem svarar
5-15 einingum við erlenda mennta- eða rannsóknar-
stofnun. Rannsóknarverkefnið er 30 einingar, eða helm-
ingur námsins, og er það samstarfsverkefni nemandans
og leiðbeinandans.
Hinn stóri þáttur rannsókna endurspeglar þá leið sem
Háskóli íslands hefur valið við eflingu framhaldsmenntunar.
Litlu fé hefur verið varið til verkefnisins en með því að
tengja það rannsóknum kennara hefur skapast grundvöllur
til fjármögnunar eftir ýmsum leiðum. Við skipulagningu
rannsóknarverkefna höfum við jafnframt lagt allt kapp á
klíníska tengingu. Það er bjargföst trú okkar sem að þessu
námi stöndum að sé rétt á málum haldið geti rann-
sóknartengt nám orðið til að efla færni nemandans til að
leysa klínísk vandamál í daglegu starfi hjúkrunarfræðinga
27
Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 1. tbl. 76. árg. 2000