Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2000, Blaðsíða 29

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2000, Blaðsíða 29
Heiti verkefnis: Heilsuefling starfsmanna á sjúkrahúsi. Hvernig er að vera starfsmaður á sjúkrahúsi og líða vel? Tilgangur rannsóknarinnar er að kanna hvaða þættir hjá starfsmönnum og á vinnustað einkenna og hafa áhrif á vellíðan starfsmanna. Rannsóknin er eigindleg og byggt er á túlkandi fyrirbærafræði og tilvistarstefnu. Litið er á heilsueflingu samkvæmt skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunarinnar frá 1986 sem er kennd við Ottawa. Auk þess er litið sérstaklega á mátt til heilsueflingar og vellíðan frekar en varnir gegn sjúkdómum. Við gagnaöflun verða notaðar þátttökuathuganir, opin viðtöl og rýnihópar. Þátttakendur eru starfsmenn sjúkrahúss í Reykjavík og gagnaöflun fer fram á tímabilinu október 1999 til maí 2000. Meistaranemandi: Arna Skúladóttir Leiðbeinandi: dr. Marga Thome, dósent, námsbraut í hjúkrunarfræði. Heiti verkefnis: Þróun aðferðar til skráningar og greiningar á svefnvandamálum ungbarna. Rannsóknin er megindleg. Rannsóknin er hluti af verkefninu „Þróun göngudeildar fyrir foreldra barna með svefnvandamál". Við barnadeild SHR hefur verið starfrækt göngudeild fyrir þessar fjölskyldur síðan í janúar 1997 og veitir höfundur henni forstöðu. í rannsókninni er skráning upplýsinga metin og endurskoðuð, bæði með tilliti til greiningar og meðferðar. Búnir verða til greiningarflokkar sem byggjast á þeim upp- lýsingum sem teknar hafa verið, gerðar verða viðmiðanir fyrir hvern flokk, áreiðanleiki þeirra prófaður og í lokin verður skráningarkerfið sett á rafrænt form. Ef vel tekst til ætti skráningar- og flokkunarkerfið að nýtast hverjum þeim sérfræðingi sem fæst við svefnvanda- mál ungbarna. Sem stendur er ekkert skráningar- eða flokkunarkerfi til fyrir þennan hóp. Meistaranemandi: Ragnheiður Erlendsdóttir Leiðbeinandi: dr. Erla Kolbrún Svavarsdóttir, lektor, náms- braut í hjúkrunarfræði. Heiti verkefnis: Mat foreldra á sálfélagslegri aðlögun systkina barna sem haldin eru langvinnum astmasjúkdómi. Rannsóknin er megindleg. Þessi rannsókn fjallar um aðlögun systkina barna sem haldin eru langvinnum astmasjúkdómi en hann er einn algengasti langvinni sjúkdómur barna á íslandi. Rannsak- endur, sem hafa skoðað aðlögun systkina að langvinnum sjúkdómum, eru nú í auknum mæli farnir að skoða aðlögun systkinanna í tengslum við starfsermi fjölskyld- unnar. Tilgangur þessarar rannsóknar er tvíþættur. í fyrsta lagi að kanna frá sjónarhóli foreldra sálfélagslega aðlögun systkina barna sem haldin eru langvinnum astmasjúkdómi. í öðru lagi að kanna tengsl milli sálfélagslegrar aðlögunar systkinanna og einstaklingsbundinna þátta þeirra, alvar- leika sjúkdómsins og fjölskyldubundinna þátta. Meistaranemandi: Herdís Gunnarsdóttir Leiðbeinandi: dr. Guðrún Kristjánsdóttir, dósent, náms- braut í hjúkrunarfræði. Heiti verkefnis: Þróun stuðningsferlis fyrir foreldra veikra ungbarna. Rannsóknin er megindleg. Tilgangurinn með verkefninu er að lýsa almennum þörfum foreldra veikra nýbura og ungbarna og athuga hversu mikil þörf er fyrir stuðning heilbrigðisstétta. Skoð- aður verður sérstaklega hópur foreldra sem eiga börn á sjúkrahúsi sem eru ársgömul eða yngri og þarfir þeirra skráðar. Einnig verða athuguð áhrif hjúkrunar, í formi skipulagðs stuðnings, á líðan foreldra í veikindum nýbura nokkrum dögum eftir innlögn barnsins á vökudeild. Meistaranemandi: Margrét Björnsdóttir Leiðbeinandi: dr. Auðna Ágústsdóttir, hjúkrunarfram- kvæmdastjóri, SHR. Heiti verkefnis: Gæði frá sjónarhóli sjúklinga. Markmið: 1) Að þýða og staðfæra sænskt mælitæki sem kannar gæði sjúkrahúsþjónustu frá sjónarhóli sjúklinga. 2) Að kanna gæði sjúkrahúsþjónustu frá sjónarhóli sjúklinga. Hugmyndafræðilegur rammi: Model Wilde o.fl. (1993) um hvað sjúklingar telja til gæða. Megindleg aðferð - símavið- töl, byggð á spurningalista, við 150-200 sjúklinga sem hafa útskrifast af sjúkrahúsi 1 -2 vikum fyrir viðtal. Meistaranemandi: Anna Björg Aradóttir Leiðbeinandi: dr. Guðrún Kristjánsdóttir, dósent, náms- braut í hjúkrunarfræði. Heiti verkefnis: Heilsa íslenskra skólabarna - Þættir sem tengjast heilbrigði og mati á áhrifum heilsueflingar. Meistaranemandi: Anna Ólafía Sigurðardóttir Leiðbeinandi: dr. Erla K. Svavarsdóttir, lektor, námsbraut í hjúkrunarfræði. Heiti verkefnis: Þarfir foreldra barna með langvarandi astma. Meistaranemandi: Eygló Ingadóttir Leiðbeinandi: dr. Marga Thome, dósent, námsbraut í hjúkrunarfræði. Heiti verkefnis: Stofnun faghóps í heilsugæslu til að veita ráðgjöf foreldrum sem eiga óvær ungbörn. Meistaranemandi: Hlíf Guðmundsdóttir Leiðbeinandi: dr. Kristín Björnsdóttir, dósent, námsbraut í hjúkrunarfræði. Heiti verkefnis: Meta heilsufar og hjúkrunarþarfir aldraðra er útskrifast frá öldrunarsviði SHR. Timarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 76. árg. 2000 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.