Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2000, Blaðsíða 21
innan hjúkrunar"
Breytingarnar í samfélaginu eru örar, svo örar að
nýjungar dagsins eru orðnar úreltar á morgun.
Það er ekki bara tæknin sem býður upp á hverja
nýjungina á fætur annarri, allt virðist í
endurskoðun og endurmótun. Heilbrigðiskerfið
hefur ekki farið varhluta af umbrotum samtímans
og að undanförnu hefur mikið verið rætt um
önnur og ný rekstrarform sjúkrahúsanna. Anna
Stefánsdóttir, hjúkrunarforstjóri Landspítalans,
var sótt heim til að ræða þessi mál.
Anna er menntaður gjörgæsluhjúkrunarfræðingur og
vann í 10 ár sem slík á Landspítalanum, en þar hefur hún
unnið frá 1975. Síðustu fimm árin í starfi sem gjörgæslu-
hjúkrunarfræðingur var hún deildarstjóri á gjörgæslunni.
„Síðasta árið mitt sem deildarstjóri leitaði Vigdís Magnús-
dóttir hjúkrunarforstjóri til mín til að leysa af sem hjúkrunar-
framkvæmdastjóri á handlækningadeildinni," segir Anna
þar sem við sitjum í vistlegri skrifstofu hennar á Landsþítal-
anum. Á veggnum við hlið okkar hanga myndir af fyrrum
forstöðukonum Landspítalans, þeim Kristínu Thoroddsen
og Sigrlði Backmann, myndum sem Anna segist halda
mikið uþp á.
Anna hefur verið fastráðin sem hjúkrunarforstjóri frá
1. júlí 1998 en áður hafði hún leyst Vigdísi af eða frá 1.
desember 1995 er Vigdís varð forstjóri Ríkisspítala. Áður
hafði hún verið fastráðin hjúkrunarframkvæmdastjóri á
handlækningadeild, eða frá 1986, utan 13 mánaða tíma-
bils er hún var við nám í hjúkrunarstjórnun í Edinborg.
Hverjar hafa breytingarnar orðið helstar frá því hún tók
við?
Hún segir miklar breytingar hafa átt sér stað og verði
eflaust áfram. „Við höfum m.a. verið að skoða breytt
rekstarform með það fyrir augum að efla hjúkrunina og
bæta þjónustu við sjúklinga. Eitt af fyrstu verkefnunum
mínum, eftir að ég tók við þessu starfi, var að setja á fót
sjúkrahústengda heimaþjónustu og vorum við með tilraun í
því sambandi í eitt ár. Með sjúkrahústengdri heima-
þjónustu erum við að fjölga kostum sjúklinga við útskrift og
nýta sérþekkingu í hjúkrun fyrir sjúklinga í heimahúsum.
Sérhæfing í hjúkrun er mjög mikilvægur þáttur sjúkra-
húshjúkrunar," segir hún og bætir við að mjög mikilvægt
sé að hjúkrunarfræðingar leiti ráða hver hjá öðrum varð-
andi klíníska hjúkrun. „Við eigum orðið sérfræðinga innan
hjúkrunar á fjölmörgum sviðum og það er mjög mikilvægt
að miðla þessari þekkingu."
Hún segist eiga von á því að sjá önnur rekstrarform í
heilbrigðisþjónustuni í framtíðinni. „Við munum sjá
hátæknisjúkrahús eins og Landsþítalann og Sjúkrahús
Reykjavíkur, öflugar endurhæfingarstofnanir, öflugar dag-
og göngudeildir, sjúkrahústengda heimaþjónustu, sjúkra-
hótel og hjúkrunarheimili. Ég held að dvalarheimili aldraðra
21
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 76. árg. 2000