Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Qupperneq 19
Ingibjörg H. Elíasdóttir, hjúkrunarfræðingur og ritari í stjórn AFA, Aðstandendafélags aldraðra. ingahe@islandia.is
„VÖKNUM OG BÆTUM AÐSTÖÐU ALDRAÐRA í DAG“
Tilgangur AFA, Aðstandendafélags aldraðra, sem var stofnað 26. mars sl., er
að vera þrýstihópur í þjóðfélaginu undir slagorðinu „vöknum og bætum aðstöðu
aldraðra í dag“. Á stofnfundinn komu um 250 manns og mikið var fjallað um
hann í fjölmiðlum.
Stefna AFA, sem lesa má á heimasíðu
félagins, www.hjaafa.is, er í stuttu máli:
• Styðja við kröfur aldraðar um úrbætur
í kjaramálum þeirra.
• Þrýsta á stjórnvöld um átak í búsetu-
málum aldraðra.
• Aukaskilningstjórnvaldaogalmennings
á stöðu aldraðra í samfélaginu.
• Stuðla að auknum upplýsingum um
stöðu aldraðra og efla virðingu fyrir lífi
þeirra og ævistarfi.
• Efla samvinnu og samheldni aðstand-
enda, m.a. með fundum, fræðslu- og
útgáfustarfi.
• Vinna með féiögum og stofnunum sem
vinna að málefnum aldraðra.
Þrengingar í kjörum eldri borgarar ásamt
lengingu á biðlistum eftir hjúkrunarrýmum
jafnt sem vist á dagdeildum svo ekki sé
minnst á skort á endurhæfingarrýmum
hafa bein áhrif á starfsaðstæður
hjúkrunarfræðinga. Það sem meira máli
skiptir er þó að aldraðir, sem þurfa
á faglegri þjónustu að halda, virðast
ekki geta fengið hana á viðeigandi stað
strax og þörf er á. í samtölum mínum
við aldraða og aðstandendur undanfarið
heyri ég líka sterkan undirtón sem lýsir
vantrausti í garð heimahjúkrunar og
heimaþjónustu sveitarfélaganna. Ég þekki
ekki þessar aðstæður af eígin raun eins
og nú háttar til en mér finnst lýsingarnar
almennt ekki eiga við þá sveigjanlegu
og einstaklingsmiðuðu þjónustu sem
hjúkrunarfræðingar segjast vilja veita.
Hjúkrunarfræðingar eru fagstéttin sem á
að gefa ráð, skipuleggja og samhæfa þá
þjónustu sem aldraðir eiga að fá heima
hjá sér. Getur verið að hjúkrunarfræðingar
séu staðnaðir í gömlu þjónustuhlutverki
og sjái ekki tækifærin sem felast í minni
forræðishyggju gagnvart öldruðum? Getur
verið að fordómar hjúkrunarfræðinga
viðhaldi óöryggi og vantrausti aldraðra og
aðstandenda þeirra í garð heimaþjónustu
til langs tíma?
Fram undan eru tvennar kosningar. AFA
stefnir að því að vekja samfélagið allt,
aðstandendur.aldraðaogstjórnmálamenn
til vitundar um að aðstandendur
aldraðra geta beitt sér saman sem stór
þrýstihópur. Við höfum mörg atkvæði og
við erum alls staðar í þjóðfélaginu. AFA
sættir sig ekki við að eldri borgarar, jafnt
sjúkir sem frískír, bíði lengur eftir að kjör
þeirra og aðstæður batni. Ég hvet því
hjúkrunarfræðinga til að ganga til liðs við
AFA, Aðstandendafélag aldraðra, og taka
þátt í þjóðfélagsbreytingu.
Sýnum að blóðið rennur okkur til
skyldunnar, tökum saman höndum og
þrýstum á stjórnvöld til aðgerða - í stað
orða.
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2. tbl. 82. árg. 2006
17