Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Side 21
FRETTAPUNKTUR
Eins og margoft hefur komið fram er
hlutfall aldraðra á stofnunum hærra hér
á landi en hjá flestum nágrannaþjóða
okkar. Helsta skýringin er sú að um langt
skeið tók uppbygging öldrunarþjónustu
nánast öll mið af þörf fyrir stofnanarými.
Aldraðir og aðstandendur þeirra sáu líka
oft stofnanir sem einu lausnina á vanda
sínum enda var skortur á aðstoð utan
stofnana og stuðningi í ýmsum myndum.
Því beindist þrýstingur að þeim kostum
sem fyrir voru, óháð ágæti þeirra og hvort
þeir í raun hentuðu í hverju tilviki.
í stofnanaþjónustunni er mikilvægt
að breyta ýmsum áherslum og á
mörgum stöðum þarf að taka upp nýja
hugmyndafræði. Það þarf að efla gæða-
og umbótastarf og vinna markvisst að
því að auka hlutfall fagmenntaðs fólks.
Þá þarf að skoða ýmislegt varðandi
vistunarmatið og innlagnir á stofnanir til
að tryggja betur forgang þeirra sem hafa
mesta þörf fyrir stofnanavist.
Öldrunarþjónustanermargþættogþannig
þarf hún að vera af því að með henni
viljum við fullnægja þörfum einstaklinga
með mismunandi þarfir og væntingar.
Mörgum öldruðum og aðstandendum
þeirra finnst erfitt að átta sig á því hvaða
þjónusta stendur þeim til boða, hver séu
bestu og raunhæfustu stuðningsúrræðin
og hvernig beri að snúa sér til að fá þann
stuðning. Því tel ég nauðsynlegt að komið
sé á fót upplýsinga- og ráðgjafarmiðstöð
fyrir aldraða um land allt.
Grundvallaratriðið í þjónustunni við
aldraða þarf að vera viljinn til að virða
sjálfstæði aldraðra og reisn til æviloka. Til
að það verði unnt verða margir aðilar að
taka höndum saman.
„Hættu fyrir lífið“- nýr bæklingur með
ráðleggingum fyrir þá sem vilja hætta að reykja
Krabbameinsfélag Reykjavíkur, í samvinnu við Reykleysismiðstöð
Landspítala - háskólasjúkrahúss og Lýðheilsustöð, hefur gefið út bæklinginn
„Hættu fyrir lífið“. Bæklingurinn heitir á frummálinu „Giving up for life“ og er
saminn af Jennifer Percival, hjúkrunarfræðingi og ráðgjafa í tóbaksvörnum
fyrir National Health Service í Bretlandi.
Megináhersla er lögð á að veita fólki auðveldar og góðar leiðbeiningar við
að hætta að reykja. f bæklingnum eru upplýsingar, ráðleggingar og gagnleg
verkefni sem hjálpa þeim sem reykja að átta sig á því af hverju þeir reykja
og hvernig þeir geta hætt - fyrir fullt og allt. Bæklingurinn tekur mið af
íslenskum aðstæðum og veitir upplýsingar um meðferðarúrræði hérlendis.
Þeir sem standa að útgáfunni fullyrða að þetta sé ýtarlegasti bæklingur
sem komið hefur út hér á landi í mörg ár. Enda þótt mikið hafi dregið
úr reykingum síðustu áratugi reykja enn um 19% fullorðinna íslendinga.
Kannanir sýna að stór hluti þeirra vill hætta og mörgum þeirra tekst það á
hverju ári. Útgefendur vænta þess að bæklingurinn „Hættu fyrir lífið“ komi
að góðum notum og verði þeim sem vilja hætta að reykja stuðningur í
baráttunni til reyklauss lífs.
Bæklingurinn mun liggjaframmi á heilsugæslustöðvum og f apótekum, einnig
er hægt að panta bæklinginn hjá Lýðheiisustöð: pantanir@lydheilsustod.is.
Hægt að skoða hann og prenta út af vefsíðu Krabbameinsfélagsins: www.
krabb.is/rit.
Tímarit hjúkrunarfræöinga - 2. tbl. 82. árg. 2006
19