Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Qupperneq 22
Sigríður Egilsdóttir, hjúkrunarfræðingur, verkefnisstjóri RAI-mats
hjá landlæknisembættinu, sigridure@landlaeknir.is
HVAÐ ER RAI-MAT í ÖLDRUNARRJÓNUSTU?
margþætt matstæki
Á Islandi búa að jafnaði um það bil þrjú þúsund einstaklingar á öldrunar-
stofnunum, þ.e. á dvalar- og hjúkrunarheimilum, og dvelur meirihluti þeirra í
hjúkrunarrýmum vegna heilsubrests. Hjúkrunarfræðingar, sem starfa á öldrunar-
stofnunum, bera ábyrgð á að heilsufar og hjúkrunarþarfir íbúa séu metnar að
jafnaði þrisvar á ári eftir RAI-mati. RAI 2.0 er mælitæki sem notað er til að meta
hjúkrunarþarfir og heilsufar íbúa á öldrunarstofnunum og RAI er skammstöfun
á enska heitinu Resident Assessment Instrument sem á íslensku hefur verið
nefnt „raunverulegur aðbúnaður íbúa“. Mælitækið var búið til f Bandaríkjunum á
níunda áratug síðustu aldar með það að leiðarljósi að jafna gæði þjónustunnar
sem veitt er á hjúkrunarheimilum.
Markmiðið með RAI-mati er að stuðla að
bættri umönnun og hjúkrunarþjónustu
á öldrunarstofnunum og tryggja að
þjónusta við aldraða sé í samræmi við
lög um málefni aldraðra (nr. 125/199).
Landlæknisembættið á samkvæmt lögum
um heilbrigðisþjónustu að hafa eftirlit með
og fylgjast með gæðum þjónustunnar.
Verkefnisstjóri RAI-mats starfar hjá
embættinu og ber faglega ábyrgð á
eftirliti með RAI-mati og leiðbeinir um
notkun þess.
RAI 2.0 mælitæki á hjúkrunar-
heimilum
Mælitækið tilheyrir stórri „fjölskyldu" mats-
/mælitækja sem hvert fyrir sig má nota
á margvíslegum þjónustustigum og má
þar nefna mælitæki fyrir heimaþjónustu,
bráðaþjónustu, öldrunarlækningadeildir,
geðdeildir og líknardeildir. Sameigínlegt
öllum þessum mælitækjum er að þau
„tala“ sama málið, þ.e. innihalda sömu
atriði. Þar af leiðir að samfella í meðferð
verður auðveldari jafnvel þótt einstaklingar
færist milli þjónustustiga, t.d. fari úr
heimaþjónustu yfir á hjúkrunarheimili.
RAI 2.0 mælitækið er samsett úr fimm
þáttum og er RAI í raun samheiti yfir
þessa þætti sem eru: gagnasafn (MDS,
minimum data set), gæðavísar (Ql, quality
indicators), matslyklar (RAP, resident
assessment protocols), álagsmælingar
(RUG, resident utilization groups) og
þyngdarstuðlar (case mix index).
Skráning RAI-mats er á ábyrgð
hjúkrunarfræðinga sem sótt hafa RAI-
námskeið og lært að meta. Aðrar fagstéttir
taka þátt í RAI-matinu, svo sem sjúkraliðar,
læknar, sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar.
Hópur vísindamanna, sem kallast
interRAI, frá a.m.k. 20 löndum hefur
unnið að þróun mælitækjanna til að
stuðla að bættri heilbrigðisþjónustu.
Hópurinn ber ábyrgð á að RAI-mælitækin
séu endurskoðuð með reglulegu millibíli
til að tryggja að þau séu ávallt í takt við
það klíníska starf sem unnið er.
Margvíslegt notagildi
RAI 2.0 eryfirgripsmikið, staðlað mælitæki
og klínískt upplýsingakerfi sem metur
styrkleika, heilsufar og umönnunarþarfir
aldraðra á hjúkrunarheimilum. Skráning
RAI-mats er á rafrænu formi og er
nettengt. Þegar upplýsingasöfnun í
gagnasafn er lokið og búið að staðfesta
matið er hægt að skoða niðurstöður
hvers mats strax. í niðurstöðunum má
sjá RUG - flokka, þyngdarstuðul, kvarða,
gæðavísa og matslykla.
RUG - flokkar (álagsþyngdarflokkar) eru
hlutí af greiðslukerfi til hjúkrunarheimila.
Flokkunarkerfíð lýsir umönnunarþörf
ákveðínna hópa einstaklinga og hugsunin
með greiðslukerfinu er sú að greiða
hjúkrunarheimilum í samræmi við þá
vinnu sem þarf til að annast íbúana.
Þyngdarstuðull er reiknaður út frá RUG
flokkun og tímamælingum. Hægt er að
sjá þyngdarstuðul fyrir hvern einstakling,
hverja deild eða alla stofnunína
í heild. Þyngdarstuðlar gefa til kynna
hlutfallslegan kostnað við umönnun
íbúa og endurspegla þá umönnunarþörf
sem íbúinn fær. Því veikari og meira
ósjálfbjarga sem íbúinn er þeim mun hærri
verður þyngdarstuðullinn. Árið 2005 var
meðalþyngdarstuðull fyrir hjúkrunarrými
á landinu öllu 1,02 og er stuðullinn
20
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2. tbl. 82. árg. 2006