Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Page 23
ívið hærri á Stór-Reykjavíkursvæðinu
en á landsbyggðinni. Um það bil 60%
af heildargreiðslum til hjúkrunarheimila
sveiflast með þyngdarstuðlinum og það
sem eftir stendur er þá fastur kostnaður,
s.s. húsnæði, þrif og fleira. Auk þess að
nota þyngdarstuðulinn til að reikna út
greiðslur til hjúkrunarheimila má einnig
nota hann sem hjúkrunarálagsmælingu.
Kvarðar innan RAI-matsins eru vitrænn
kvarði, þunglyndiskvarði, verkjakvarði,
ADL-kvarðar, virknikvarði og lífskvarði.
Þegar niðurstöður matsins liggja fyrir er
hægt að skoða kvarðana og meta ástand
viðkomandi íbúa á hverjum matstíma og
sjá breytingar milli tímabila með því að
skoða eldra mat. Allir kvarðarnir hafa verið
vel rannsakaðir og prófaðir til að tryggja
að mælingarnar séu sambærilegar við
aðra viðurkennda kvarða.
Gæðavísar gefa vísbendingar um gæði
hjúkrunar og umönnunar sem veitt er á
hjúkrunarheimilum. Þeir gefa starfsfólki og
stjórnendum á stofnunum vísbendingar
um það sem vel er gert og það sem betur
má fara.
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2. tbl. 82. árg. 2006
21