Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Side 32
Stigskipt tímaskeið heimsfaraldurs inflúensu / samræmi við hina nýju áætlun WHO eru skilgreind þrjú skeið heimsfaraldurs af völdum inflúensu. Innan hvers skeiðs eru skilgreind mismunandi stig.
1 STIG HEIMSFARALDURS MARKMIÐ AÐGERÐA
Skeið milli heimsfaraldra Stig 1. Enginn nýr stofn inflúensuveiru hefur greinst í mönnum. Styrkja viðbúnað við heimsfaraldri inflúensu.
Stig 2. Enginn nýr stofn inflúensuveiru hefur greinst í mönnum. Stofn inflúensuveiru geisar í fuglum og talinn geta ógnað mönnum. Lágmarka hættu á smiti manna á milli, uppgötva og tilkynna slíkt smit án tafar ef það á sér stað.
Viðvörunarskeið Stig 3. Nýr stofn inflúensuveiru hefur greinst í mönnum en ekki er vitað til þess að hann berist manna á milli nema í undantekningartilvikum og þá við mjög náið samband manna. Tryggja hraða greiningu á nýjum stofní veiru. Greina tilfelli fljótt og tilkynna þau án tafar. Hröð viðbrögð við fleiri tilfellum.
Stig 4. Litlar hópsýkingar brjótast út meðal manna á takmörkuðu svæði af völdum nýs stofns inflúensuveiru en hún virðist ekki hafa lagað sig vel að mönnum. Halda nýjum stofni innan afmarkaðs svæðis/uppsprettu eða seinka útbreiðslu og vinna tíma til að bregðast við (bóluefni o.fl.).
Stig 5. Umtalsverðar hópsýkingar brjótast út meðal manna en þær eru enn staðbundnar. Vísbendingar eru um að veiran hafi í vaxandi mæli aðlagast mönnum, þó ekki í þeim mæli að umtalsverð hætta sé á heimsfaraldri. Hámarksáhersla lögð á að koma í veg fyrir eða seinka útbreiðslu og, ef mögulegt, afstýra heimsfaraldri og vinna tíma til að hrinda í framkvæmd sóttvarnaráðstöfunum.
Skeið heimsfaraldurs Stig 6. Heimsfaraldur: Vaxandi og viðvarandi útbreiðsla smits meðal manna. Draga úr afleiðingum heimsfaraldurs eins og unnt er.
loftræstingu í rýminu þar sem hinn sýkti
dvelur (Bridges, C.B., o.fl., 2003).
Rannsóknir Bean o.fl. (1982) sýndu aö
inflúensuveirurnar, sem sýktir gefa frá
sér, hvort heldur eru af A- eða B-stofni,
geta lifað um nokkurn tíma í umhverfinu á
sjúkrahúsum og geta borist með snertingu
yfir í aðra. Veirurnar lifðu við 35%-45%
rakastig og 28°C hita á stáli og plasti í
allt að 24-48 klst. og á taui, pappír og
pappírsþurrkum í 8-12 klst. eftir sáningu
en aðeins í 5 mínútur á húðinni. Lifandi
veirur gátu borist af ógegndræpu yfirborði
á hendur í allt að einn sólarhring og af
bréfþurrkum á hendur í allt að 8-12 klst.
í rannsóknum Boone og Gerba (2005)
á algengi inflúensuveira á innanstokks-
munum á einkaheimilum og á barna-
heimilum kom fram að árstíðabundnar
sveiflur eru í fjölda veira á yfirborði og eins
og viðbúið var náði fjöldinn hámarki þegar
inflúensan var að ganga. Rannsóknirnar
sýndu að inflúensuveirur voru víða á
algengum snertiflötum og gátu lifað á
þurru yfirborði í tvo sólarhringa og í allt
að þrjá sólarhringa á blautu yfirborði.
Ekki hefur verið metið með rannsóknum
hversu smitandi veiran er þegar hún berst
af innanstokksmunum en gera verður ráð
fyrir að smit geti orðið af beinni snertingu
við húð og með óbeinni snertingu þegar
mengaðir hlutir í umhverfinu eru snertir,
s. s. borðplötur, rúmgrindur, rofar o.s.frv.
Vitað er að inflúensuveirur geta lifað úti í
náttúrunni í langan tíma, einkum við lágt
hitastig, eða í allt að 35 daga við 4°C en
í mun styttri tíma ef hitastigið er hærra,
t. d. í 7 daga í hægðasýni við 37°C (WHO,
2006).
Einkenni inflúensu og meðferð
Einkenni inflúensu byrja yfirleitt
snögglega og lýsa sér með háum hita,
höfuðverk og beinverkjum, þurrum
hósta, hálssærindum og nefrennsli og hjá
börnum oft með ógleði, uppköstum og
kviðverkjum. Flestir eru orðnir hitalausir
eftir 3-5 daga en slappleiki og hósti
geta staðið lengur. Einstaklingar með
langvinna sjúkdóma og þeir sem komnir
eru yfir 60 ára aldur eiga frekar á hættu
að fá fylgikvilla inflúensu sem er oftast
lungnabólga af völdum baktería. Meðferð
við inflúensu er fyrst og fremst hvíld
og ríkuleg vökvaneysla og hugsanlega
hitalækkandi lyf, s.s. parasetamól. Nú
eru einnig fáanleg tvö lyf, oseltamivir
(Tamiflu(R)) og zanamivir (Relenza(R)),
sem læknar geta ávísað til að draga úr
einkennum sjúkdómsins og stytta tímann
sem veikindin standa. Til að slík meðferð
komi að gagni þarf hún að hefjast innan4
tveggja sólarhringa frá upphafi veikinda
(Upplýsingar af heimasíðu, 2006). Það
eru þessar lyfjategundir sem fyrirhugað
er að nota í fyrirbyggjandi skyni ef til
heimsfaraldurs inflúensu kemur, fyrir fólk
í áhættuhópum og fyrir þá sem sinna og
meðhöndla veikt fólk (Viðbúnaðaráætlun
heilbrigðisþjónustunnar, 2006).
30
Tímarít hjúkrunarfræðinga - 2. tbl. 82. árg. 2006