Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Side 36
AÐ HORFAST í AUGU
VIÐ LÍFSHÆTTULEGAN VÁGEST
Hvernig færi ef lífshættulegur smitsjúkdómur bærist til íslands? Vorið 2003
barst sjúkdómurinn HABL (heilkenni alvarlegrar bráðrar lungnabólgu - SARS)
til Toronto í Kanada og lagðist einkum á starfsfólk heilsugæslunnar. 44 manns
létust áður en tókst að hefta útbreiðslu hans. Margir eru enn áhyggjufullir eftir
að hafa horfst í augu við þennan lífshættulega vágest.
Smitaður?
Mesta ógnin var sú að bera HABL með
sér heim
Þegar Yvonne Warner var fengin til að sinna
HABL-sjúklingum ásamt samstarfsfólki
sínu við Markham Stoufville sjúkrahúsið í
nágrenni Toronto var hennar fyrsta hugsun
sú hvernig hún gæti tryggt að bera ekki
smit með sér inn á heimili sitt.
Að vinnudegi loknum á sjúkrahúsinu
fór Yvonne Warner einfaldlega úr öllum
fötunum sem hún hefði annars ekið heim
í og sett í þvottavél þar. Hún fékk svo
lánuð náttföt á sjúkrahúsinu og settist
upp í bílinn sinn. Áður en hún fór inn á
heimili sitt, raðhús í kyrrlátri götu með
milligengt inn í bílskúr og lóð framan
við, fór hún úr sokkunum og skildi þá
eftir aftur í þílnum. Þangað fleygði hún
sokkunum sínum í um það bíl mánuð. Var
eitthvað annað til ráða?
Hún afréð að senda dætur sínar, Liah
og Harley, 15 og 13 ára, til afa síns og
ömmu úti í sveit. Stjúpdæturnar Emily og
Devon fóru hins vegar til móður sinnar.
Yvonne varð að fara í tíu daga sóttkví
vegna þess að hún hafði e.t.v. smitast
áður en öllum varúðarráðstöfunum vegna
einangrunar hafði verið komið um kring á
HABL-deildinni.
Þegar sóttkvínni lauk fannst Yvonne
óhætt að leyfa dætrunum að koma heim
á ný. Þegar Liah og Harley mættu í
skólann sinn á ný var búið að setja upp
skilti þar sem stóð að engum yrði hleypt
inn sem hefði verið innan um HABL
- sjúklinga. „Við fórum engu að síður
inn,“ sagði Liah. „Við máttum ekkí faðma
Texti: Kioki Engström, aðstoðarritstjóri Várdfacket, Ijósmyndir: Simon Wilson
34
Tímarit hjúkrunaríræðinga - 2. tbl. 82. árg. 2006