Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Qupperneq 43
LITIÐ UM OXL
Kæru lesendur, eru þið ekki himinlifandi þessa dagana?
Ef þið eruð komnir á sjötugs-
aldur þá er aldeilis vænleg
staða komin upp hjá ykkur,
allir stjórnmálaflokkar vilja
eiga ykkur og gera allt fyrir
ykkur! Sama á að gera fyrir
ómálgabörnin, allt skal gert til
að blessaðir hvítvoðungarnir
fái bjarta framtið! Já við lifum
í hágæða samfélagi.
Með öllum þeim loforðum
sem flæða yfir okkur sjáum
við sæng okkar útbreidda, nú
verður hætt að tvískatta okkur, við fáum greiðan aðgang
að sjúkrahúsum og ef svo ótrúlega vildi til að við þyrfum
að fara á á öldrunastofnun, væri þjónustan eins og á 5
stjörnu hóteli, er ekki hægt að láta sig dreyma?
Helstu áhyggjur mína, svona prívat, er að við alla þessa
velferð verði æfi okkar alltof löng, 120 ár að meðaltali
og við þá löngu búin að yfir taka öll þau mál sem varða
okkur mest! Til dæmis einn eða tvo banka og svo einhver
„grúpp“ fyrirtæki. Hvað gera unglingarnir þá? Hvað eigum
við að gera með unga fólkið?
Lifið blasir við okkur og hugurinn er á flugi og það er
kominn tími til að skapa.
Með baráttukveðju. Pálína Sigurjónsdóttir formaður
Öldungadeildar.
Viltu fylgjast með þróun
hjúkrunar á norðurlöndum?
Ársáskrift aö vefútgáfu ViN
1500 kr
Várd i Norden er norrænt hjúkrunarfræðitímarit sem gefið er út af Samtökum
hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum (SSN). Tímaritið er gefið út fjórum sinnum
á ári og í því eru birtar rannsóknar- og þróunargreinar á ensku, sænsku, norsku
eða dönsku en allir abstraktar eru á ensku.
Hjúkrunarfræðingum og nemum býðst nú sérstakt áskriftartilboð að Várd i Norden.
Ársákrift á 3000 krónur blað með vefaðgangi en 1500 krónur ef eingöngu er um
vefútgáfu að ræða. Hjúkrunarfræðinemar fá 50% afslátt í allt að tvö ár.
Þú getur gerst áskrifandi að Várd i Norden á www.hjukrun.is
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2. tbl. 82. árg. 2006
41