Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Page 44

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Page 44
Guörún Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur, MSo, gudrun@lydheilsustod.is Rannveig Þöll Þórsdóttir, hjúkrunarfræðingur, BSc GEGNSÆRRI GEÐHEILBRIGÐISÞJÓNUSTA Þróun RAI-MH-mælitækisins á Landspítala-háskólasjúkrahúsi Útdráttur í þessari grein verður fjallað um rannsóknar- og þróunarverkefnið RAI-MH (resident assessment instrument - mental health) á Landspítala-háskólasjúkrahúsi. Mæli- tækið RAI-MH er yfirgripsmikið þverfaglegt mælitæki sem metur þarfir, styrkleika og kjörþjónustustig legusjúklinga á geðdeildum og gefur vísbendingu um hvernig skipu- iagningu geðheilbrigðisþjónustu verði best við komið. Auk þess að innihalda mjög viðamiklar upplýsingar tengist mælitækið matslyklum, árangursmælingum, gæðavísum og kostnaðargreiningu. Abstract: The research and development project RAI-MH (Resident Assessment Instrument - Mental Health) on Landspítali- University Hospital in lceland will be discussed in this article. RAI-MH is a comprehensive inter-disciplinary instrument that assesses needs, strengths and service preferences of adult inpatient population in acute, rehabilitation, long-term, geriatric and forensic psychiatric units and indicates how to organize the psychiatric services. RAI-MH includes; comprehensive information on patients as well as it is intended to support care plan with mental health protocols, outcomes measures, quality indicators and case-mix cost per patient analysis. Inngangur Geðheilbrígðisþjónusta eins og önnur heílbrigðisþjónusta tekur örum breytingum. Einstaklingar með svipaðar eða sambærilegar þarfir hljóta þjónustu á mismunandi stöðum í heilbrigðiskerfinu og flutningur milli stofnana er algengur. Við stefnumótum í málaflokknum er vaxandi þörf fyrir samræmd upplýsingakerfi og aðgang að upplýsingum sem uppfylla kröfur um gæði og áreiðanleika, ásamt því sem skilvirkni þjónustunnar er metin og nýrri þekkingu komið á framfæri (Hirdes o.fl., 1999a; Hirdes o.fl., 2002; WHO, 2005). í greininni verður greint frá forsögu RAI-MH-mælitækisins, uppbyggingu þess og þróun erlendis sem og hérlendis. Þá verður að lokum greint frá framtíðarsýn höfunda í tengslum við þetta viðamikla mælitæki og þeirri hagræðingu og ávinningi sem upptaka þess og notkun mun hafa á geðheilbrigðisþjónustuna á íslandi. Meginmál InterRAI-hópurinn og RAI-mælitækin InterRAI-hópurinn er samstarfshópur rannsakenda frá 26 löndum sem hefur sett sér það markmið að stuðla að bættri heilbrigðisþjónustu í þágu aldraðra og annarra sem á einhvern hátt eru háðir þjónustu heilbrigðiskerfisins vegna veikinda eða fötlunar sinnar. Þannig hefur framtíðarsýn eða markmið hópsins beinst að því að efla gagnreynda (evidence-based) klíníska þjónustu og markvissa stefnumótun í málefnum þessara hópa í mismunandi geirum heilbrigðisþjónustunnar (Hawes o.fl., 1995; Hirdes o.fl., 1999a). InterRAI-hópurinn hefur tekið þátt í þróun ellefu RAI-mælitækja sem eru þó mislangt á veg komin eins og sakir standa (http://www.interrai.org/section/view/). Þróun allra RAI-mælitækjanna hefur verið studd með metnaðarfullum rannsóknum InterRAI-hópsins þar sem viðamiklar áreiðanleika- og réttmætismælingar fara fram (Anna Birna Jensdóttir o.fl., 1994; Anna Birna Jensdóttir o.fl.,1999; Hawes o.fl., 1995; Hirdes o.fl., 2002). Þó svo að sérhvert mælitæki, sém InterRAI- hópurinn hefur staðið að, hafi verið sett fram fyrir sérhæfða starfsemi eru mælitækin öll hönnuð til að vinna saman þannig að úr verði samþætt upplýsingakerfi. Mælitækin innihalda því öll sameiginlegar breytur (common language) sem vísa til sömu klínísku hugtakanna (Hirdes o.fl., 2000/2001). Þannig er meðferðaraðilum gert kleift að stuðla að meiri samfellu í meðferð og fylgjast með bata einstaklinga og framförum til lengri tíma. Á þann hátt er stuðlað að auknum gæðum í þeirri þjónustu og meðferð sem veitt er. Þá er ótalin hin mikla yfirsýn yfir starfsemina sem stjórnendur öðlast og kemur það til góða við alla stefnumótun og stjórnun. í öllum RAI- mælitækjum er MDS (minimum data set) grunnhluti kerfisins sem inniheldur mikilvægar upplýsingar um sjúklinginn og á honum byggjast aðrir þættir kerfisins. Fullþróað RAI-mælitæki er því samsett af upplýsingasöfnunarkerfi, matslyklum (mental health assessments protocols (MHAPS)) sem ætlað er að styðja við gerð meðferðaráætlunar, gæðavísum (mental health quality indicators) og árangursmælingum (outcome measures) þar sem að baki liggja viðurkenndir kvarðar, t.d. mælikvarði á sjálfsbjargargetu. Síðast en ekki síst tengist mælitækinu kostnaðargreiningarhluti (case mix model: system for a classification of in-patient psychiatry (SCIPP)) og greinargóð handbók varðandi upplýsingasöfnun og notkun matslykla (Hirdes o.fl., 1999a; Hirdes o.fl., 1999b). RAI-stýrihópur (lceRAI) á íslandi í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti íslands er starfandi RAI-stýrihópur (lceRAI) sem hefur umsjón með allri þróun og innleiðingu RAI-mælitækja hér á landi í samstarfi við InterRAI- hópinn. Hér á landi hófst vinna við undirbúning og notkun RAI- mælitækja í öldrunarþjónustunni fyrir 10-15 árum með upptöku RAI 2.0 sem er sérsniðið fyrir íbúa á öldrunarstofnunum. 42 Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 82. árg. 2006

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.