Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2006, Side 45
FRÆÐSLUGREIN
QIMH
MHAPS
Stuðningur við gerð
meðferðaráætlunar
L_______________________1
Gagnagrunnur
MDS-MH
Gagnasafn/upplýsingar
um sjúkling
f s
QIMH
Gæðavísir
. /
Clinical outcome Scales
Árangursmælingar
'
SCIPP
Kostnaðargreining
Mynd 1 sýnir samspilið í RAI-MH-mælitækinu
Skyldunotkun er nú á RAl 2.0 á öllum hjúkrunarheimilum á
landinu samkvæmt reglugerð heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytisins. Líta má á hjúkrunarheimilismælitækið sem
móðurmælitækja allra annarra RAI-mælitækja (Anna Birna
Jensdóttir o.fl., 1994; Anna Birna Jensdóttir o.fl., 1999; Hirdes
o.fl., 1999a).
Mælitækið RAI-MH og þróun þess:
Mælitækið RAI-MH (RAI mental health assessment instrument)
er eitt af ofangreindum mælitækjum og tilheyrir þannig stórum
og metnaðarfullum interRAI-mælitækjahópi sem hvert um
sig er þróað fyrir sérhæfða heilbrigðisstarfsemi og er ætlað
að koma til móts við ofangreindar þarfir. Þróun RAI-MH í
samvinnu við InterRAI var í höndum Ontario Joint Policy and
Planning Committee (JPPC) sem er samstarfsnefnd á vegum
heilbrigðisráðuneytisins í Kanada (Hirdes o.fl., 2000/2001).
Skyldunotkun RAI-MH hefur nú verið tekin upp á öllum
geðdeildum í Ontaríó í Kanada að kröfu heilbrigðisyfirvalda.
RAI-MH-mælitækið er nú til á 5 tungumálum, þ.e. ensku,
þýsku, sænsku, spænsku og íslensku.
Kostnaðargreiningarlíkan fyrir geðheilbrigðisþjónustuna ?
Fyrir rúmum 10 árum var farið að skoða ýmis kostnaðar-
greiningarlíkön fyrir geðheilbrigðisþjónustuna í Kanada og
komust menn að þeirri niðurstöðu að tækin, sem fyrir hendi
væru, hentuðu ekki. Það voru kerfi eins og DRG ( diagnosis
related groups) sem byggjast aðallega á sjúkdómsgreiningum
og aðferðum til að spá fyrir um fjölda legudaga en ekki á
einkennum og þjónustuþörf einstakra sjúklinga. Stofnaður var
vinnuhópur (Psychiatric Working Group (PWG)) á vegum JPPC
sem ætlað var að útbúa sjúkiingaflokkunarkerfi sem hægt væri að
nota við kostnaðargreiningu í geðheilbrigðisþjónustu. Skömmu
eftir að vinnuhópurinn tók til starfa var tekin upp skyldunotkun
á mælitækinu RAI 2.0 (RAI-mælitæki fyrir hjúkrunarheimili)
á öllum langlegu- og öldrunardeildum í Ontaríó. Hópurinn
komst fljótlega að þeirri niðurstöðu að í stað þess að útbúa
kostnaðargreiningarkerfi eingöngu, eins og til stóð í upphafi,
væri affarasælla að búa til alhliða upplýsingasöfnunarkerfi sem
kæmi daglegri klínískri vinnu til góða enda væri ekkert slíkt
mælitæki til í geðheilbrigðisþjónustunni og minni hætta yrði á
að starfsfólki fyndist skráningin vera auknar kröfur eða álag frá
stjórnendum.
Alhliða klínískt upplýsingasöfnunarkerfi fyrir
geðheilbrigðisþjónustuna
Því varð það úr að í samvinnu við InterRAI var sett saman
yfirgripsmikið alhliða klínískt upplýsingasöfnunarkerfi sem
metur þarfir, styrkleika og kjörþjónustustig sjúklinga ásamt því
að gefa vísbendingar um hvernig skipulagningu þjónustunnar
verði best við komið (Hirdes o.fl., 2000/2001). Sjálft mælitækið
MDS-MH (minimum data set - mental health) er, eins og önnur
InterRAI-mælitæki, staðlað vegna þess að svör eru talnakóðuð
og því auðvelt að bera saman upplýsingar. Mælitækið inniheldur
um 270 breytur og gefur gríðarmiklar upplýsingar um heilsufar
og þjónustuþörf sjúklingsins. Til þess að upplýsingarnar nýtist í
klínísku starfi er nauðsynlegt að draga þær saman og fá þannig
fram það sem mestu máli skiptir í meðferð sjúklingsins hverju
sinni. Með þetta að leiðarljósi voru fylgihlutir mælitækisins
hannaðir sem getið var um hér að framan (sjá mynd 1).
Fylgihlutir RAI-MH-mælitækisins
Sérhver hluti mælitækisins hefur verið útbúinn af sérfræðingum
í hinu þverfaglega teymi sem vinnur að þróun þess (Hirdes o.fl.,
1999a). 30 matslyklar (mental health assessment protocols
(MHAPS)) hafa verið þróaðir. Matslyklunum er ætlað að
auðvelda gerð meðferðaráætlana við tilteknar aðstæður. Ef
ákveðnir þættir innan gagnasafnsins benda til vandkvæða gefa
matslyklar leiðbeiningar um hvernig best megi nálgast frekari
greiningu og meðferð. Matslyklunum er ekki ætlað að koma í
stað klínískra ákvarðana sem teknar eru í meðferðarferli, eða í
stað sjúkdómsgreininga, heldur að leiðbeina við skipulagningu
þjónustunnar. Þeir eru til dæmis mjög mikilvægir við gerð allra
hjúkrunaráætlana. Dæmi um matslykla eru hætta á ofbeldi,
sjálfsskaði og sjálfsumönnun, félagsleg virkni og fíkn. 9
árangursmælikvarðar (outcome measures) eru innbyggðir í RAI-
MH, þar af eru 6 sérstaklega gerðir fyrir geðdeildir. Sem dæmi
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 1. tbl. 82. árg. 2006
43