Fréttablaðið - 29.04.2017, Blaðsíða 24
Landsvirkjun hefur um áratugaskeið
starfrækt sumarvinnuflokka ungs
fólks. Hóparnir sinna viðhaldi,
uppbyggingu og fegrun starfsstöðva
Landsvirkjunar og vinna jafnframt að
ýmsum samstarfsverkefnum víða um
land. Samvinna sumarvinnuflokka
Landsvirkjunar og félagasamtaka,
sveitarfélaga og stofnana hefur skilað
sér í auknum umhverfisgæðum og betri
aðstöðu til útivistar og ferðamennsku.
Í boði er vinnuframlag sumarvinnu
flokka og flokksstjórn yfir þeim. Verkefnin
lúta að ræktun, hreinsun, viðhaldi og
öðrum umhverfisbótum ásamt ýmsum
samfélagsverkefnum.
Óskað er eftir að samstarfsaðilar leggi fram
vel skilgreind verkefni. Umsóknarform
með nánari upplýsingum er að finna á vef
Landsvirkjunar, www.landsvirkjun.is.
Nánari upplýsingar veitir Þóra María
Guðjónsdóttir í síma 515 9000 og á
netfanginu lettverk@landsvirkjun.is.
Umsóknarfrestur er til og með 14. maí
2017. Umsóknarform er að finna
á landsvirkjun.is.
Landsvirkjun auglýsir eftir
samstarfsaðilum að verkefninu
Margar hendur vinna létt verk
sumarið 2017.
Hælisleitendur hafa nákvæmlega ekk-ert að gera og mér datt í hug að setja upp vikuleg nám-skeið fyrir börn
og ungmenni úr þeirra hópi, í sam-
vinnu við Rauða krossinn. Oft komu
í kringum fimmtán. Þau vissu öll að
til greina kæmi að verkin yrðu sett
á sýningu,“ segir Ásdís Kalman,
myndlistarkennari og meistaranemi
í Listaháskólanum.
Teiknuðu manneskjur í lausu lofti
Á sjálfsmynd einnar stúlku er enginn munnur. „Þessi stúlka talaði ekki neitt
því enginn í hópnum skildi hennar tungumál,“ lýsir Ásdís. Fréttablaðið/GVa
Sem mynd-
listarkennari
skynjaði
Ásdís Kalman
óöryggið sem
birtist í verkum
barnanna.
Fréttablaðið/GVa
„Ég hafði ákveðnar hugmyndir
um verkefnið en það varð öðru-
vísi en ég bjóst við, enda átti
ég í erfiðleikum með að koma
hugsunum mínum til skila til
barnanna. Fá þeirra skildu ensku
og engin íslensku,“ lýsir Ásdís en
segir verkefnið hafa snúist um að
gefa börnunum tækifæri til að tjá
sig og einnig að skapa vellíðan
og öruggt umhverfi í smá stund.
Ásdís telur einungis tvö ungmenni
eftir á landinu sem tóku þátt í lista-
smiðjunum. „Ef börnin hættu að
mæta vissi ég aldrei hvort það væri
af því þau hefðu verið flutt út aftur
eða væru komin í skóla. Sýningin
snýst einmitt um það tómarúm
sem þau voru í. Stundum var Ísland
þriðja eða fjórða landið sem þau
komu til, mörg vissu að það væri
engin von en reyndu að halda áfram
að lifa eins og aðrir.“
Sem myndlistarkennari skynjaði
Ásdís óöryggið sem endurspeglaðist
í verkum barnanna og fannst það
átakanlegt. „Þau áttu í erfiðleikum
með að klára myndirnar og þau
teiknuðu manneskjur í lausu lofti
eins og þær vantaði tengingu við
jörðina.“
Sýningin er hluti af Barnamenn-
ingarhátíð og henni lýkur á morgun.
Ókeypis er inn.
gun@frettabladid.is
Óvissa hælisleitandi
barna endurspeglast
í sýningu í anddyri
Þjóðminjasafnsins.
Myndverkin eru af-
rakstur listasmiðju
sem Ásdís Kalman
setti upp sem sjálf-
boðaliði í samvinnu
við Rauða krossinn.
Stundum var ÍSland
þriðja eða fjórða
landið Sem þau Komu
til, mörg viSSu að það
væri engin von en
reyndu að halda Áfram
að lifa einS og aðrir.
2 9 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r24 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
helgin
2
9
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
C
2
-B
A
8
8
1
C
C
2
-B
9
4
C
1
C
C
2
-B
8
1
0
1
C
C
2
-B
6
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K