Fréttablaðið - 29.04.2017, Blaðsíða 4
Lottóvinningur þegar heilu
húsaraðirnar voru keyptar upp
Verktakafyrirtæki hefur lagt undir sig stórt svæði í Kópavogi með það að markmiði að rífa einbýlishús
á svæðinu og byggja fjölbýlishús. Ekkert vilyrði er komið frá bænum um deiliskipulagsbreytingu. Full-
trúum meirihlutans þykir verktakafyrirtækið kalt að ráðast í slíka fjárfestingu án viðræðna við bæinn.
Gríptu lyfin á leiðinni heim
Apótek Garðarbæjar í alfaraleið
Litlatún 3, Garðarbæ | Sími 577 5010
Agnes Þóra Kristþórsdóttir
íbúi í Reykjavík
auglýsti eftir
vinkonu á
Facebook. Hún
kvaðst sjaldan
hitta fólk og
þess vegna væri
erfitt að mynda
vinatengsl. Færslan
vakti mikla athygli og viðbrögðin
voru jákvæð. Daginn eftir fékk
hún sér kaffibolla með nýrri vin-
konu, Írisi Unu Smith.
Kristjáni Kárasyni
11 ára fjölfötluðum
dreng á Akureyri
hefur verið synj-
að um sjúkra-
kennslu sem
foreldrar hans
telja hann eiga
rétt á samkvæmt
lögum. Foreldrar Kristjáns hafa
kært synjun Akureyrarbæjar til
mennta- og menningarmála-
ráðuneytisins. Kristján hefur í
gegnum árin fengið miklar önd-
unarfærasýkingar og því getur
hann löngum stundum ekki verið
innan um önnur börn. Sjúkra-
kennsla fer annaðhvort fram á
heimili nemanda eða á sjúkra-
stofnun.
Heiða Björg Hilmisdóttir
formaður ofbeldisvarnanefndar
í Reykjavík
sagði óásættan-
lega lítið gert í
því að stemma
stigu við vændi
í Reykjavík.
Hún gat þess að
Reykjavíkurborg
vildi bjóða hótelum
vottun um að þau væru vændis-
og klámfrí. Hótelin tækju þannig
samfélagslega ábyrgð. Slíkt hefði
verið gert í Svíþjóð og Banda-
ríkjunum.
Tölur vikunnar 23.04.2017 – 29.04.2017
Þrjú í fréttum
Vinkona,
sjúkrakennsla
og vændi
40
kíló af plastumbúðum notar
Íslendingur að meðaltali á ári.
2,7
milljarða hyggst Glitnir
greiða í bónus til lykil-
manna.
2,5%
Íslendinga nota rafrettur samvæmt
könnun sem var gerð árið 2015.
1.500
hross voru flutt úr
landi í fyrra.
4
læknar stunda
nú sérnám í geð-
lækningum en
eru í venjulegu
árferði ríflega
þrefalt fleiri.
2.500
einstaklingar gengu úr
þjóðkirkjunni í fyrra.
800
milljónir króna er upp-
söfnuð fjárþörf flugvalla.
viðskipTi Verktakafyrirtækið Jáverk
hefur fest kaup á nánast hverju
einasta húsi við göturnar Háveg,
Skólatröð og Álftröð í Kópavogi.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að eignirnar hafi verið mikið yfir-
boðnar og í nokkrum tilvikum hafi
eigendur selt húsin með tugmilljóna
króna hagnaði. Ekkert deiluskipulag
er á svæðinu og ekkert vilyrði liggur
fyrir frá bænum um hvort Jáverk fær
að skipuleggja svæðið eins og hug-
myndir fyrirtækisins gera ráð fyrir.
„Við eigum eftir að ræða þetta við
sveitarfélagið og þetta er bara ein-
hver framtíðar spekúlasjón. Það er
ekkert fast í hendi,“ segir Gylfi Gísla-
son, framkvæmdastjóri Jáverks.
Húsin sem þarna standa eru ein-
býlishús og byggð upp úr 1950.
Húsin eiga það sammerkt að standa
á stórum lóðum og mörg hver eru
farin að krefjast mikils viðhalds og
endurnýjunar. Jáverk bauð íbúum
svæðisins, sem ekki hugðu á flutn-
inga, verð sem „varla var hægt að
hafna“. Þeir íbúar sem Fréttablaðið
hefur rætt við tala sumir um að hafa
dottið í lukkupottinn eða fengið
lottóvinning.
„Ég held að það hljóti nú allir að
vera pínu glaðir með eitthvað þarna.
Vissulega er fólk að fá gott verð fyrir
íbúðirnar. Við erum að tala um yfir-
verð miðað við ástand fasteignanna
en þetta er engin vitleysa. Auðvitað
erum við að veðja á að lóðirnar
nýtist okkur betur til framtíðar og
þá er sjálfsagt að íbúðareigendur
njóti þess að einhverju leyti líka,“
segir Gylfi.
Hugmyndir Jáverks gera ráð
fyrir að fjölbýlishús verði byggð á
svæðinu. Engin vilyrði eru komin
um slíkt. „Við þurfum, þegar þar að
Heimildir Fréttablaðsins herma að bæjarfulltrúar í Kópavogi séu hissa yfir umsvifum Jáverks. Fréttablaðið/Eyþór
kemur, að vinna eitthvert skipulag
með bænum og hlökkum auðvitað
til þess því Kópavogur hefur verið
framsýnn í svoleiðis málum. Við
höfum ekki samið við þá enda eigum
við ekki allar eignirnar.“
Göturnar þykja vel staðsettar, eru
nálægt almenningssamgöngum,
skólum, sundlauginni og helstu
umferðaræðum Kópavogs.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að bæjarfulltrúar í Kópavogi séu
hissa yfir umsvifum Jáverks. Vís-
bendingar séu um að vinna sé hafin
við að kaupa upp önnur svæði í
bænum. Fulltrúar meirihlutans hafa
teiknað umsvif þeirra upp á kort og
virt fyrir sér svæðin sem Jáverk legg-
ur undir sig. Þó mæti verktökunum
ekki neikvætt viðhorf um mögulega
uppbyggingu á svæðinu.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri
Kópavogsbæjar, segir að Jáverk hafi
ekkert vilyrði fyrir því að deiliskipu-
lagsbreyting verði eftir þeirra höfði.
„Bærinn hefur ekki gefið nein vilyrði
fyrir þessu og kemur á engan hátt að
þessu máli.“ snaeros@frettabladid.is
Bærinn hefur ekki
gefið nein vilyrði
fyrir þessu og kemur á engan
hátt að þessu máli.
Ármann Kr.
Ólafsson,
bæjarstjóri
Kópavogs
Veggjatítlurnar uppgötvuðust í þessu húsi við austurgötu í Hafnarfirði þegar
íbúarnir fóru í smávægilegar framkvæmdir á dögunum. Fréttablaðið/Ernir
samfélag „Veggjatítlur geta flogið.
Á heitasta tíma sumars fljúga þær út
úr húsum og geta flogið inn í næsta
hús þess vegna. Þær þurfa þá sólar-
hita til þess. Þær væru ekki að fljúga
núna til dæmis,“ segir Erling Ólafs-
son, skordýrafræðingur hjá Nátt-
úrufræðistofnun Íslands.
Hjón í Hafnarfirði með þrjú
börn standa nú frammi fyrir því að
missa aleiguna eftir að í ljós kom að
veggjatítlur hafa étið sig í gegnum
burðarvirki og veggi heimilis þeirra.
Annað slíkt dæmi kom upp í
sama hverfi árið 2010. „Þær geta
flogið milli húsa og yfir í þarnæsta
hús en þá þurfa að vera aðstæður
fyrir þær til að setjast að. Þær setjast
ekki að í hvaða húsi sem er,“ segir
Erling.
„Venjulega er þetta fylgifiskur
þess að húsin eru illa farin að öðru
leyti líka, það þarf góðan raka í
viðnum.“ -sg
Veggjatítlur fljúga en eru vandlátar
2 9 . a p r í l 2 0 1 7 l a u g a r D a g u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a B l a ð i ð
2
9
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
C
2
-8
9
2
8
1
C
C
2
-8
7
E
C
1
C
C
2
-8
6
B
0
1
C
C
2
-8
5
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K