Fréttablaðið - 29.04.2017, Blaðsíða 16
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Gunnar
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Mín skoðun Logi Bergmann
Kollegi minn Sólmundur Hólm lenti í hroða-legri lífsreynslu um daginn. Hann var sem sagt að koma heim frá Búdapest, en vélin
lenti í rokinu í Keflavík svo hann komst ekki
frá borði fyrr en tveimur tímum eftir lendingu.
Hundrað og tuttugu mínútum!
Í átta stundarfjórðunga, heilan ítalskan fót-
boltaleik, rúmlega eina íslenska fermingu eða
hálfa James Cameron mynd komst hann ekki
út úr vélinni. Hann leyfði sér að kvarta eins og
frægt er orðið og fékk náttúrlega á baukinn fyrir
aumingjaskapinn. En ekki frá mér. Ég engdist
með honum hverja einustu mínútu sem hann var
lokaður inni í vélinni.
Fólk gerir sér kannski ekki grein fyrir því, en
flugvélar draga fram það versta í okkur. Eins og ég
hef gaman af að ferðast, er ekkert sem getur látið
mér líða jafn illa og flugvél.
Bara um daginn lenti ég í því að slefsofna á
handleggnum á mér og fá móður allra náladofa.
Ég hélt í alvöru að ég myndi ekki geta notað
handlegginn aftur og myndi framvegis þurfa að
heilsa öllum með vinstri. Og ég svaf samt bara í tíu
mínútur!
Fyrirmunað að sofna í flugvélum
Fyrir þessum stutta svefni voru tvær ástæður.
Annars vegar, að við hliðina á mér var öskrandi
Svíi sem þurfti að tala við vini sína alla leiðina.
Sem hefði mögulega verið í lagi ef hann hefði
setið nálægt þeim. Eða ef hann hefði kannski sagt
eitthvað skemmtilegt en ekki bara þusað enda-
laust um mótorhjól eða eitthvað álíka spennandi.
Krafthnerrandi landi hans í næsta sæti var heldur
ekki til að hressa mig. Hann hnerraði að minnsta
kosti hundrað sinnum, með þvílíkum látum að
flestir farþegarnir hrukku í kút.
Hin ástæðan er vitaskuld sú að mér er nánast
algjörlega fyrirmunað að sofna í flugvélum. Þó að
hefðbundinn undirbúningur hjá mér fyrir flug
sé að hámarki þriggja tíma svefn, er mér lífs-
ins ómögulegt að sofa, nema kannski í nokkrar
mínútur. Sem er líklega vegna þess að ég er yfir
meðalhæð og hef ekki enn náð að reikna út hvar
er gert ráð fyrir að ég hafi fæturna.
Lágvaxinn vinur minn ferðast alltaf á fyrsta
farrými. Situr þar eins og kóngur með lappirnar
dinglandi því hann nær ekki niður á gólf. En ég?
Ég sit tryggilega aftur í, með hnén á bak við eyrun
og verð pirraðri en orð fá lýst.
Var seinkun?
Ég tengi við flugdólga. Þegar ég heyri af þeim þá
spyr ég alltaf fyrst hvort það hafi verið seinkun.
Eins og það réttlæti hegðun sem verður til þess að
þú ert teipaður niður.
Reyndar þarf ekki seinkun til að pirra mig í
flugi. Gaurinn sem stendur í miðjum gangvegin-
um, þegar verið er að hleypa í vélina, og ákveður
að taka sér góðan tíma í að sortera farangur
meðan allir hinir bíða.
Sípissandi fólk í gluggasætum, flugfreyjur sem
virðast taka sérstakt tilhlaup bara til að geta
dúndrað vagninum í hnéð á mér, fólk sem heldur
að prumpulykt finnist ekki í flugvélum og fólk
sem ætti ekki að drekka. Hvergi.
Þegar ég stíg út úr flugvél finnst mér að ég hafi
sigrast á einhverju. Ég hafi klifið fjall eða klárað
leiðinlega bók. Mér finnst nánast að ég ætti að fá
verðlaun.
Og já, já, þetta er allt eitthvert fyrstaheimsvæl.
En trúið mér; ef ég festist í flugvél í tvo tíma eftir
lendingu, þá fyrst mynduð þið fá að heyra alvöru
væl.
Flugvéladrama
Þess vegna er
það ekki
endilega
sorgarsaga
þegar fyrir-
tæki sem
verða til utan
um frumlegar
hugmyndir
leggja upp
laupana.
Húsið er með tveimur svefnherbergjum,
bjartri og rúmgóðri stofu, einnig er lagt
fyrir þvottavél og þurrkara í forstofuskáp.
Húsið getur henntað sem íbúðarhús,
sumarhús eða í ferðaþjónustu.
Húsið skilast fullbúið og ti lbúið ti l utnings.
Upplýsingar í síma: 893-3837
Verð 14.900.000 kr.
Stærð 57 m2
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Stofa 1
Byggingarár 2017
FALLEGT VIÐAHALDSFRÍTT HEILSÁRSHÚS
Fleir i myndir á https://goo.gl/hDjQD3
Ef marka má bandarískar rannsóknir enda níu af hverjum tíu sprota- og nýsköpunar-fyrirtækjum í blindgötu – á kúpunni eins og sagt er. Þau sem lifa og dafna eru undan-tekningarnar. Þetta eru alkunn sannindi. En þó finnast, sem betur fer, alltaf einhverjir
sem eru tilbúnir að veðja fé sínu á óvissuna. Enda getur
ávöxtunin orðið ævintýraleg þegar dæmið gengur upp.
Nokkur stærstu fyrirtæki heims eru vitnisburður um
þetta. Nöfn sem allir þekkja eru á þessum lista: Airbnb,
Google, Tesla, Microsoft og Apple. Öll byggðust þau á
hugmynd sem sigraði heiminn, oftast eftir að frum-
legir og ástríðufullir stofnendur höfðu gengið í gegnum
hremmingar, sem fáir trúðu að þeir kæmust í gegnum.
Frumkvöðlarnir verða andlit fyrirtækja sinna. En
að baki árangrinum er oft blóð, sviti, tár og fórnir
starfsmanna, sem hafa sjálfir reynt fyrir sér með afurðir
sinna eigin hugmynda en orðið að lúta í lægra haldi.
Ekki af því að þeirra varningur hafi endilega verið
lakari eða seiglan og ástríðan minni.
Heppni og tímasetning skilja oft milli feigs og ófeigs
– réttur maður á réttum stað á réttum tíma. Margir,
sem ekki hafa náð alla leið með eigin rekstur, ganga til
liðs við hina, sem dafna, með ómetanlega reynslu og
þekkingu í farteskinu. Reynslan í síkvikum tækniheim-
inum er gulls ígildi.
Þess vegna er það ekki endilega sorgarsaga þegar
fyrirtæki sem verða til utan um frumlegar hugmyndir
leggja upp laupana. Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri
leikjafyrirtækisins CCP, minnti eftirminnilega á það
fyrir nokkrum árum, að gamlir starfsmenn hugbúnað-
arfyrirtækja, eins og OZ, sem fór á hausinn með braki
og brestum, eru lykilstarfsmenn í nýjum fyrirtækjum,
sem blómstra. Sprota- og nýsköpunarfyrirtæki skilja
nefnilega ekki eftir sig niðurnídda verksmiðjubygg-
ingu ef þau leggja upp laupana, heldur fólk með verð-
mæta þekkingu sem gjarnan nýtist í næsta verkefni.
Þorsteinn B. Friðriksson stofnaði Plain Vanilla
fyrir fáum árum. Fyrirtækið þróaði leikinn vinsæla
QuizUp. Peningamenn lögðu fimm milljarða króna í
þróun leiksins. Fyrirtækið varð óskabarn landsmanna.
Hæfileikafólk fékk útrás fyrir sköpunarkraftinn og vel
launaða vinnu. En því miður, dæmið gekk ekki upp.
Stofnandinn fór ekki leynt með, að honum urðu á mis-
tök – lagði of mörg egg í sömu körfuna. En hann talaði
um dýrmætan skóla.
Gjaldþrot Plain Vanilla skildi nokkra erlenda fjár-
festa eftir með sárt ennið. En þeir vissu allir að hverju
þeir gengu. Í Fréttablaðinu í dag er greint frá því að
Þorsteinn sé kominn af stað aftur. Hann hafi fengið
fjárfesta til að veðja á nýja hugmynd um nýjan leik.
Nú er hann reynslunni ríkari. En enginn gengur að því
gruflandi að áhættan í heimi tölvuleikja er mikil.
Ferðamenn og fiskur standa undir blómlegu efna-
hagslífi þessa stundina. Minna heyrist af fyrirtækjum
frumlegra athafnamanna nú en á mögru árunum eftir
hrun. Það er ekki gott. Heilræðið um að setja eggin í
fleiri en eina körfu á nefnilega ekki bara við um unga
frumkvöðla. Hún á við um allt atvinnulífið.
Skóli mistakanna
2 9 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r16 s k o ð U n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
SKOÐUN
2
9
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
C
2
-7
0
7
8
1
C
C
2
-6
F
3
C
1
C
C
2
-6
E
0
0
1
C
C
2
-6
C
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K