Fréttablaðið - 29.04.2017, Blaðsíða 122
90 ára afmæli Sundfélagsins Ægis
Þann 1. maí nk. fagnar Sundfélagið Ægir 90 ára afmæli sínu
en félagið var stofnað þann dag árið 1927.
Dagskrá afmælishátíðar hefst kl. 9:30 í innilaug Laugardalslaugar og afmæliskaffi
verður frá 10:00 – 14:00 í sal Laugardalslaugar.
Við hvetjum alla Ægiringa og aðra velunnara félagsins til þess að mæta og taka
þátt í viðburðunum á afmælisdaginn. Allir velkomnir.
Stjórn Sundfélagsins Ægis
www.bjarmaland.is sími 770 50 60
bjarmaland@bjarmaland.is
Bjarmaland ferðaskrifstofa óskar vinnandi
fólki til hamingju með 1. maí 2017!
Við þökkum flugfólki, rútubílstjórum, hótel- og veitingamönnum,
starfsfólki þvottahúsa og öllum öðrum (víða um heim) óteljandi
handtök ykkar og frábært samstarf
„Bjarmalandsför“
Bjarmaland er við Hvítahaf í NV-Rússlandi en þangað sóttu hugaðir Norðmenn dýrmæta
skinnavöru í ábata- og áhættusömum verslunarleiðangrum. Heimamenn, þá af finn-úgrískum
uppruna („Bjarmar“ - Rússar ekki komnir) gátu verið mismunandi viðureignar og fjölkunnugir.
Menn lögðu sig í mikla hættu með Bjarmalandsferðum en urðu ríkir og frægir ef þeir komust
heim aftur heilir á húfi, ekki síst með dýrmætar loðhúfur og ýmis skinn. Það er í þessari merkingu
sem talað er um Bjarmalandsför einhvers, hættuför eða verkefni þar sem menn leggja mikið undir
en geta átt von á að auðgast eða eflast verulega ef vel tekst til. Nú eru heimamenn eystra hinir
vinsamlegustu í okkar garð, þannig að einungis er um ábata; efnislegan og andlegan, að ræða!
SIGLING
KEISARALEIÐIN
30. júlí - 09. ágúst I 10 nætur
298 000
kr.
Moskva-Pétursborg
379 000
kr.
Kákasusfjöll
GEORGÍA og
AZERBÆDSJAN
09. - 19. september I 10 nætur
Þetta var mikið ferli. Við byrjuðum á þessu í byrjun janúar og þessu var í raun ekki lokið fyrr en núna um daginn. Við sendum lista á fullt af
listamönnum sem við höfðum áhuga
á að myndu koma – það kom í ljós að
hann hafði í raun jafn mikinn áhuga
á að koma hingað og við að fá hann.
Hann ætlar að vera hérna í þrjá daga
á eigin kostnað – verður í fimm daga
á landinu í heildina,“ segir Samúel
Ásberg O’Neill úr nemendafélagi
MK, sem ásamt Guðlaugi Þór Ing-
ólfssyni, Andra Sveini Ingólfssyni,
Hrafni Lárusi Björnssyni, Sævari
Karli Svanssyni og Vigni Erni Ágústs-
syni stóð í því að koma rapparanum
iLoveMakonnen til landsins.
Samúel segir það mjög óvanalegt
að stórt nafn eins og Makonnen
mæti hingað til Íslands en hans síð-
asta gigg var að spila fyrir 150 þús-
und manns á tónlistarhátíð í Banda-
ríkjunum. Á ballinu hjá þeim
gætu allt frá 700-1.800
manns mætt á svæðið.
Samúel segir það
vera skemmtilegt
að skóli sem er
minna þekktur
en til að mynda
Verzló nái að
flytja inn lista-
mann af þessu
kalíberi.
„Við erum að
stefna á stærsta
ballið í sögu a.m.k.
okkar nemendafélags.
Þetta er líka í fyrsta sinn í
sögu okkar nemendafélags sem við
flytjum einhvern inn, hvort sem
er frá Evrópu eða hvaðan sem er,
og líka bara svona stóran gaur sem
hefur gert lag með Drake sem er með
300 milljón spilanir á YouTube.“
Ballið fer síðan fram fimmtudag-
inn 4. maí í reiðhöllinni í Víðidal.
Hinn litríki iLoveMakonnen
ILoveMakonnen er 28 ára gamall
rappari og söngvari frá Atlanta.
Hann vakti fyrst athygli árið 2014
fyrir smellinn sinn Club Goin’ Up
on a Tuesday og þá sérstaklega eftir
að poppkonungurinn Drake skellti
versi í remix af laginu. Makonnen
hefur átt nokkra smelli síðan og
hefur verið eitt litríkasta andlit Atl-
anta-rappsenunnar með því að setja
sinn sérstaka brag á helstu klisjurnar
sem vilja stundum koma þaðan.
Eins og margir rapparar frá Atl-
anta hefur hann unnið töluvert
með pródúserum eins og Mike Will,
808 Mafia hópnum og Sonny Digi-
tal – sem sá um að snúa tökkunum
á smellinum Club Goin’ Up on
a Tuesday. Það var ein-
mitt Sonny sem Drake
hafði samband við
eftir að hafa heyrt
Tuesday einhvers
staðar og bað um
að fá taktinn.
Tveimur dögum
síðar gaf Drake
óvænt út remixið sitt sem hann
kallaði bara Tuesday. Fljótlega eftir
það fór lagið eins og eldur í sinu
um allan heim, meðal annars hér á
landi. Drake samdi við Makonnen
og hann mætti yfir til OVO Sound,
útgáfufyrirtækis Drake.
Síðar meir slettist þó upp á vin-
skap Makonnens og Drake eftir
að Makonnen kvartaði sáran yfir
meðferðinni sem hann fengi á OVO
Sound. Nokkru síðar tilkynnti hann
að hann væri hættur að gera tón-
list, en hætti nánast strax við það. Í
janúar á þessu ári kom Makonnen
út úr skápnum með tilkynningu á
Twitter-reikningi sínum.
stefanthor@frettabladid.is
iLoveMakonnen vildi ólmur til Íslands
Samúel Ásberg O’Neill, Guðlaugur Þór Ingólfsson, Andri Sveinn Ingólfsson, Hrafn Lárus Björnsson, Sævar Karl Svansson og Vignir Örn Ágústsson unnu í því að
fá iLoveMakonnen til landsins. FréttABLAðIð/EyÞór
iLoveMakonnen
hefur unnið með
mörgum stærstu
nöfnunum í rapp-
bransanum.
Söngvarinn og
rapparinn iLove
Makonnen spilar á
skólaballi hjá MK á
fimmtudaginn. Hann
mun verja sam-
tals fimm dögum á
landinu, þar af ætlar
hann að ferðast um
í þrjá daga á eigin
kostnað vegna ein-
skærs áhuga á landi
og þjóð.
2 9 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r62 l í f i ð ∙ f r É T T a B l a ð i ð
2
9
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
C
2
-A
B
B
8
1
C
C
2
-A
A
7
C
1
C
C
2
-A
9
4
0
1
C
C
2
-A
8
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K