Fréttablaðið - 29.04.2017, Blaðsíða 100

Fréttablaðið - 29.04.2017, Blaðsíða 100
Í síðasta pistli var fjallað um danska arkitektinn Alfred Råvad, þátt hans í þróun skipu-lagsmála í Chicago-borg og dvöl hans hjá Thor Jensen bróður sínum í Reykjavík árið 1915. Þann tíma nýtti Råvad til að kynna sér sitthvað í íslensku samfélagi og þá ekki aðeins atriði sem tengdust byggingar- list og bæjarskipulagi, heldur einnig stjórnmálum og efnahagslífi. Alfred Råvad hafði brennandi áhuga á stjórnmálum og þar líkt og á öðrum sviðum var hann maður stórra hugmynda. Hann var gallharður þjóð- ernissinni og taldi Danmörku á veru- legum villigötum. Sár ósigur Dana gegn Prússum og Austurríkismönnum í stríðinu um Slésvík og Holtsetaland árið 1864 hvíldi enn sem mara á þjóð- inni. Sífellt erfiðara var að horfa fram hjá þeirri staðreynd, að þrátt fyrir forna frægð gat Danmörk ekki lengur talist í hópi stórvelda Evrópu heldur var hún að breytast í áhrifalítið smá- ríki sem litlu skipti í valdatafli veiga- meiri ríkja. Ráðamenn jafnt sem almenningur voru, að mati Råvads, hættir að sjá út fyrir Eystrasalt og Norðursjó, en létu sér nægja agnar- smátt danskt þjóðríki. Dönsk þjóð- ernisvitund tók breytingum og fór í vaxandi mæli að snúast um að lof- syngja heiðvirt sveitalíf og smábúskap. Draumurinn um að ná að endur- heimta eitthvað af hinum töpuðu landsvæðum syðst á Jótlandsskaga var drifkrafturinn í danskri utanríkis- stefnu á seinni hluta nítjándu aldar og fram yfir fyrri heimsstyrjöldina. Færa má fyrir því rök að þessi stefna Dana hafi gert Íslendingum mögu- legt að öðlast sjálfstæði, þar sem dönsk stjórnvöld gátu illa krafist þess að sjálfsákvörðunarréttur íbúa Slés- víkur og Holtsetalands yrði virtur en á sama tíma hundsað sjálfstæðiskröfur Íslendinga. Þetta taldi þjóðernissinninn Råvad til marks um algjört metnaðarleysi og hvatti landa sína í ræðu og riti til þess að hugsa stærra og byggja upp nýja og stóra Danmörku. Vaxtarmöguleikarn- ir lágu að hans mati í hjálendunum: Dönsku Vestur-Indíum, Færeyjum, Íslandi en þó fyrst og fremst Græn- landi. Verkefni næstu kynslóða væri að byggja þar upp ný og kröftug sam- félög á dönskum forsendum. Råvad taldi sóknarfæri liggja í nýlendunni í Vestur-Indíum, þar sem reisa mætti stórskipahöfn til að þjóna siglingum um Panamaskurðinn, sem opnaður var árið 1914. Landbúnaðar- framleiðslu á eyjunum, sem Råvad vildi kalla Pálmaeyjar, hafði hrakað á liðnum áratugum og komst arki- Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um stórveldisdrauma Alfreds Råvad. Alfred Råvad hafði brennandi áhuga á stjórnmálum og þar líkt og á öðrum sviðum var hann maður stórra hugmynda. tektinn að þeirri niðurstöðu að plant- ekruræktun með þeldökku vinnuafli væri úrelt fyrirbæri. Þess í stað ætti að stefna að ávaxtaræktun fyrir danska markaðinn, með dönskum bændum sem flytja myndu til eyjanna gegn lof- orði um jarðnæði og styrki. Hér var ansi seint í rassinn gripið, því dönsk stjórnvöld höfðu allt frá aldamótum unnið ötullega að því að selja Bandaríkjamönnum eyjarnar. Um svipað leyti og Råvad gaf hug- myndir sínar út á bók, var haldin þjóðaratkvæðagreiðsla í Danmörku um söluna, sem samþykkt var með 2/3 hlutum atkvæða. Í kosningunni í Vestur-Indíum reyndust aðeins sjö kjósendur hlynntir því að halda sam- bandinu við Danmörku! Áhyggjur af Íslandi Á Íslandi sá Råvad fyrir sér mikil tæki- færi í landbúnaði, sjávarútvegi og orkuvinnslu. Hann hafði hins vegar þungar áhyggjur af því að Danir svæfu á verðinum og leyfðu erlendum ríkjum að seilast til sífellt meiri áhrifa á Íslandi. Norðmenn væru umfangs- miklir í sjávarútvegi og sömu sögu mætti segja um Frakka, sem reyndu mjög að styrkja stöðu sína í landinu, til dæmis með því að reka flesta spítala í landinu. Að mati Råvads voru menningarleg áhrif Breta mest í landinu. Íslendingar vildu allir læra ensku og enskar bók- menntir væru þar í mestum metum. Þýsku áhrifanna gætti á hinn bóginn helst í verslun og viðskiptum, þar sem þýskur varningur hefði lengi verið áberandi í hillum verslana og væri afar eftirsóttur. Niðurstaða hans var því sú að þótt Ísland ætti að heita hluti af danska ríkinu, sæjust þess varla merki á götum Reykjavíkur. Þessu tómlæti Dana gagnvart Íslandi yrði að linna. Dönsk fyrirtæki yrðu að láta betur til sín taka á Íslandi og dönsk stjórnvöld að styrkja stöðu þeirra gagnvart útlendingum. Nauð- synlegt væri að efla stöðu Íslands innan danska ríkisins í stað þess að veita landinu stöðugt meira sjálfstæði sem að lokum hlyti að leiða til fulls aðskilnaðar. Råvad taldi forgangsmál að Íslend- ingar fengju sæti á danska þinginu. Væri þar rétt að miða við fjögur sæti, eitt fyrir hvern landsfjórðung og síðar mætti bæta því fimmta við þegar Reykvíkingar yrðu 50 þúsund talsins. Til að tryggja að Íslendingum þættu þeir velkomnir í stór-danska ríkinu væri tilvalið að taka upp sömu skipan og hjá bresku konungsfjölskyldunni, þar sem ríkisarfinn ber titilinn prins- inn af Wales. Þannig yrði danski krón- prinsinn titlaður prins af Íslandi en sá sem næstur gengi í erfðaröð nefndist þá prins af Grænlandi. Í tengslum við þetta mætti koma upp embættisbú- stað á Íslandi sem meðlimir konungs- fjölskyldunnar nýttu í heimsóknum sínum til landsins. Milljónasamfélag á Grænlandi Rauði þráðurinn í hugmyndum Råvads um Ísland var viðurkenning hans á að Íslendingar væru sérstök þjóð sem talaði sína eigin tungu og yrði að umgangast með virðingu til að særa ekki stolt hennar. Þannig yrði efl- ing Íslands sem hluti af dönsku stórríki að gerast með þeim hætti að Íslending- um sjálfum fjölgaði. Tómt mál væri að tala um að flytja Dani í stórum stíl til Íslands, slíkt skilaði engum ágóða og gæti bara leitt til árekstra. Allt öðru máli gegndi um Grænland í huga skipulagsfræðingsins metn aðar- fulla. Grænland væri ógnarstórt og þvert á það sem margir héldu, benti Råvad á, væri þar að finna ágæt land- búnaðarlönd. Lykillinn að nýtingu landgæða á Grænlandi væri að hanna nægilega hlý hús, sem arkitektinn treysti sér vel til að gera með því að horfa til fyrirmynda frá norðanverðri Skandinavíu. Til að skjóta styrkari stoðum undir búreksturinn sá Råvad fyrir sér að rækta mætti nýtt og harðgert nauta- kyn með kynblöndun á sauðnautum og evrópskum stórgripum. Þá væri til- valið að flytja mörgæsir frá Suðurhveli til Grænlands, sem hlytu að dafna þar vel og gætu gefið af sér góðar afurðir. Í huga Råvads hlyti uppbygging landbúnaðar á Grænlandi að vera í höndum danskra bænda, þótt sjálf- sagt væri að bjóða nokkrum hópi ungra íslenskra bænda að setjast að á Grænlandi á hverju ári, til að minnast sögulegra tengsla. Ekkert rými var hins vegar fyrir inúíta í þessari framtíðar- sýn. Innfæddir íbúar Grænlands, voru að mati höfundarins engan veginn á því menningarstigi að vænta mætti þess að þeir sköpuðu nútímasamfélag. Réttast væri að leyfa þeim að halda sínum gömlu siðum í norðurhéruðum Grænlands og ef til vill gætu einhverjir þeirra með tímanum lært af háttum Dananna og orðið siðmenntaðir. Það voru þó ekki bara dönsk sauð- nautabýli sem Råvad sá fyrir sér sem lykilatriði í nývæðingu Grænlands. Hann horfði til námavinnslu, sjávar- útvegs og skipaþjónustu. Varðandi síðastnefnda atriðið horfði Råvad sér- staklega til tilrauna Kanadamanna til siglinga norður til Hudson-flóa. Þegar sú siglingaleið yrði almenn, sköpuðust gríðarleg tækifæri til reksturs stórskipahafnar á suðurodda Grænlands. Höfn þessa mætti kenna við Eirík rauða og yrði hún þunga- miðjan í nýjum höfuðstað Grænlands sem Råvad skemmti sér við að teikna frá grunni. Með tímanum mætti svo hugsa sér að byggja upp fleiri þétt- býlisstaði á Grænlandi og kæmu þar meðal annars til greina bæði Garðar og Brattahlíð, sem hvort tveggja fæli í sér sögulegar skírskotanir til eldra landnáms norrænna manna á Græn- landi. Óþarft er að taka fram að fæstar þessara draumsýna danska skipulags- fræðingsins náðu fram að ganga. Má raunar draga í efa margt af ályktunum hans, svo sem þá skoðun að Græn- land gæti hæglega staðið undir í það minnsta milljón manna byggð. En þótt gaman sé að velta fyrir sér loftköstulum á borð við þá sem Råvad reisir í skrifum sínum, er óþægilegra að lesa grímulausa kynþáttafordómana sem víða koma fram í skrifunum. Höf- undurinn er ekki í minnsta vafa um að svertingjar og inúítar séu frá nátt- úrunnar hendi óæðri hvítum Dönum. Má raunar segja að kynþáttahyggja Råvads hafi ráðið miklu um þann sess – eða öllu heldur skort á viðurkenn- ingu – sem hann hefur hlotið í danskri sögu. Alfred Råvad á sér ýmsa aðdá- endur sem harma mjög að hann hafi ekki öðlast heimsfrægð fyrir störf sín í Chicago en þó sérstaklega í Dan- mörku, þar sem hið fræga borgar- skipulag Kaupmannahafnar sem var samþykkt fljótlega upp úr seinni heimsstyrjöldinni hafi í raun hvílt á hugmyndum hans. Þögnin um Råvad í sögunni hefur að hluta verið skýrð með óheppni og einbeitingar- skorti, þar sem ekki liggi nógu mörg áþreifanleg verk eftir hann. Önnur veigamikil skýring er rasísk skrif Råvads og þá einkum gyðingaandúð, en hann var um árabil einn af forystu- mönnum félagsskapar gyðingahatara í Danmörku. Það kann að skýra að sagnfræðingar hafi veigrað sér við að hampa afrekum hans. Enginn öðlast frægð í sögunni án þess að sleppa í gegnum nálarauga sagnfræðinganna. Nýtt danskt heimsveldi Snyrtistofan Hafblik ER HÚÐIN FARIN AÐ SLAPPAST? NÝ LAUSN “SÉRMEÐFERД Í DEMANTSHÚÐSLÍPUN Hraunbæ 102 • Reykjavík • S. 893 0098 • snyrtistofanhafblik@gmail.com PANTAÐU FRÍAN TÍMA Í SKOÐUN STRAX Í SÍMA 893-0098 Húðin verður þéttari - mýkri – hreinni & unglegri á náttúrulegan hátt Fyrir Eftir Fyrir Eftir 2 9 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r40 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð 2 9 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 1 2 8 s _ P 1 0 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 0 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C C 2 -9 3 0 8 1 C C 2 -9 1 C C 1 C C 2 -9 0 9 0 1 C C 2 -8 F 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 2 8 s _ 2 8 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.