Fréttablaðið - 29.04.2017, Blaðsíða 91
Farið er yfir helstu
þætti sem þarf að
hafa í huga við akstur
þessara þungu ferðahjóla
við erfiðar aðstæður,
ásamt því að þjálfa
líkamsbeitingu.
Eyþór segir mestan áhuga á svokölluðum ferðahjólum sem BMW kallar Adventure Motorcycles og að markaðurinn sé allur að lifna við. Hér er Eyþór á ferð um Fjallabak nyrðra,
Námskeiðin hafa farið fram á æfingasvæðum BMW í Þýskalandi og á Spáni. Til stendur að fara til Suður-Afríku að ári.
Við förum yfirleitt upp úr miðjum apríl svo ökumenn séu klárir þegar hjólatíma-
bilið hefst í lok apríl, byrjun maí,“
segir Eyþór Örlygsson, eigandi
RMC. „Hingað til hefur verið um
að ræða fimm daga pakka. Tveir
dagar fara í ferðalagið fram og til
baka en þrír í námskeiðið. Það fer
fram á sérstöku æfingasvæði BMW
og fara leiðbeinendur yfir helstu
þætti sem þarf að hafa í huga við
akstur þessara þungu ferðahjóla
við erfiðar aðstæður, ásamt því að
þjálfa líkamsbeitingu við þessar
sömu aðstæður,“ útskýrir Eyþór.
Aðspurður segir hann þátt-
takendur keyra erfiða slóða, fara í
krappar beygjur og æfa sig á undir-
lagi sem er blautt og sandborið en
allt er þetta góður undirbúningur
fyrir þá sem ætla sér að keyra við
íslenskar aðstæður. „Það er einmitt
það sem vakir helst fyrir okkur.
Að auka öryggi viðkomandi öku-
manna og annarra í umferðinni og
fækka þannig slysum.“
Eyþór segir ferðirnar hafa mælst
afar vel fyrir en þær eru bæði
hugsaðar fyrir byrjendur og lengra
komna og er þátttakendum skipt
upp í hópa á æfingasvæðinu eftir
getu. „Svo sér maður þá vaxa í getu
á meðan á námskeiðinu stendur.“
Miðað er við að þátttakendur í
hverri ferð séu um það bil fjórtán
og er matur og gisting innifalin.
Þátttakendur fá afnot af hjóli en
þurfa að koma með eigin búnað.
„Hingað til höfum við farið mest til
Þýskalands en nú síðast vorum við
á Spáni þar sem BMW er með sams-
konar æfingasvæði. Á næsta ári
stendur til að fara til Suður-Afríku
þar sem þeir eru líka með aðstöðu
en sú ferð mun standa í átta daga
þar sem þrír dagar fara í námskeið
og þrír í hjólaferð. Sú ferð er fyrir-
huguð í kringum 19. apríl 2018.“
Eyþór segir Evrópuferðirnar kosta
um 350.000 á mann, með öllu. „Við
gerum ráð fyrir að Suður-Afríku-
ferðin muni kosta um 450.000
miðað við gengi dagsins í dag.“
Reykjavík Motor Center býður
aðallega upp á BMW-mótorhjól.
„Þeir eru stærsti einstaki fram-
leiðandinn í svokölluðum ferða-
hjólum sem BMW kallar Adventure
Motorcycles. Þetta eru ekki götu-
hjól og ekki torfæruhjól heldur
þarna á milli og líður jafn vel á mal-
biki og á Sprengisandi.“ Eyþór segir
mestan áhuga á slíkum hjólum og
að markaðurinn sé allur að lifna.
Að sögn Eyþórs tala þeir sem
hafa sótt námskeiðin um að þeir
verði miklu öruggari á sínu eigin
hjóli á hálendinu og við aðrar
krefjandi aðstæður á eftir. „Það er
að okkar mati góður vitnisburður
og þá er markmiðinu náð.“
Námskeiðin auka færnina
Reykjavík Motor Center, eða RMC,
hefur síðastliðin fjögur ár staðið fyrir
þjálfunarnámskeiðum fyrir mótor-
hjólaáhugamenn á æfingasvæðum
BMW í Þýskalandi og á Spáni. Ferðirn-
ar, sem eru farnar einu sinni á ári, eru
hugsaðar fyrir fólk sem vill koma sér
í form fyrir vorið og ná upp aksturs-
færni við erfiðar aðstæður.
KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 2 9 . a p R í l 2 0 1 7
2
9
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
C
2
-E
B
E
8
1
C
C
2
-E
A
A
C
1
C
C
2
-E
9
7
0
1
C
C
2
-E
8
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K