Fréttablaðið - 29.04.2017, Blaðsíða 111
Laus störf við Borgarholtsskóla haust 2017
Borgarholtsskóli auglýsir eftir framhaldsskólakennurum til kennslu í eftirtöldum námsgreinum:
• Stærðfræði, efri áfangar (heil staða)
• Viðskiptagreinar (allt að 75% staða, afleysing til vors 2018)
• Sérkennari á starfsbraut (heil staða, afleysing til áramóta)
Ráðning og kjör: Umsækjendur hafi háskólapróf í viðkomandi greinum ásamt kennsluréttindum í fram-
haldsskóla. Laun eru í samræmi við kjarasamning KÍ og stofnanasamning Borgarholtsskóla.
Að auki eru þessar stöður lausar:
• Náms- og starfsráðgjafi (heil staða, afleysing til 1. feb. 2018)
• Stuðningsfulltrúi (heil staða, afleysing til vors 2018)
Laun eru í samræmi við kjarasamning viðkomandi stéttarfélaga og stofnanasamning Borgarholtsskóla.
Umsækjendur um ofannefnd störf greini í umsókn frá menntun, fyrri störfum og öðru því sem telja má að
skipti máli.
Jafnt konur og karlar eru hvött til að sækja um störfin.
Sakavottorð fylgi umsókn.
Á heimasíðu skólans, www.bhs.is, eru upplýsingar um skólann og starfsemi hans.
Upplýsingar um kennarastarf í stærðfræði og viðskiptagreinum veitir Anton Már Gylfason, kennslustjóri,
s. 820 8892, anton@bhs.is.
Upplýsingar um kennarastarf á starfsbraut og starf stuðningsfulltrúa veitir Hrönn Harðardóttir, kennslust-
jóri, s. 864 1138, hronn@bhs.is.
Upplýsingar um starf náms- og starfsráðgjafa veitir Kristín Birna Jónasdóttir, s. 867 3410, kristin@bhs.is.
Umsóknir ásamt fylgigögnum sendist í tölvupósti til Ársæls Guðmundssonar, skólameistara, arsaell@bhs.
is, fyrir 15. maí 2017.
Skólameistari
Borgarholtsskóli er fjölbreyttur, framsækinn og skapandi skóli sem leggur áherslu á
að allir fái nám við sitt hæfi. Boðið er upp á margar námsleiðir; í bóknámi, listnámi,
iðnnámi og starfsnámi. Einkunnarorð Borgarholtsskóla eru: agi, virðing, væntingar.
Síðustu Tíbrártónleikar vetrarins
verða á morgun, sunnudag, klukk-
an 14 í Salnum. Þá leggur klarínett-
leikarinn Rúnar Óskarsson í það
þrekvirki að flytja öll fjögur verk
Johannesar Brahms sem hann
samdi fyrir klarínett. Tvær sónötur
fyrir klarínett og píanó, eitt tríó
fyrir klarínett, píanó og selló og
kvintett fyrir klarínett og strengja-
kvartett.
„Þetta eru allt stór verk en þau
eru góð,“ segir Rúnar og nefnir því
til sönnunar að hann hafi spilað þau
öðru hvoru í allan vetur til undir-
búnings tónleikunum og alltaf þótt
þau skemmtileg.
Áður en Brahms samdi verkin í
lok nítjándu aldar fyrir klarínett-
leikarann Richard Mühlfeld, hafði
hann tilkynnt að hann væri hættur
að semja tónlist, að sögn Rúnars.
„Fyrirmyndir Brahms voru fáar
og stórar klarínettsónötur eigin-
lega ekki til, þannig að hann varð
frumkvöðull og það er dásamlegt
að honum skyldi takast svona vel
upp,“ segir hann og tekur fram að
Sigurður I. Snorrason klarínett-
leikari muni fræða tónleikagesti um
tónskáldið og tilurð verkanna.
Rúnar segir klarínettleikara þakk-
láta fyrir að Brahms náði að kynn-
ast Mühlfeld. „Auðvitað væri rosa
gaman ef hann hefði gert konsert
fyrir heila hljómsveit og klarínett,
svona ef maður vill væla mikið!“
segir hann glaðlega.
gun@frettabladid.is
Allt stór verk en þau eru góð
Sigurður Bjarki Gunnarsson, Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir, Helga Bryndís
Magnúsdóttir, Þórunn Ósk Marinósdóttir og Una Sveinbjarnardóttir auk
Rúnars Óskarssonar sem verður í aðalhlutverki.
Tryggvi Ólafsson myndlistarmaður
opnar sýningu á grafíkverkum á
Mokka við Skólavörðustíg mánu-
daginn 1. maí næstkomandi. Tryggvi
vann lengst af að list sinni í Dan-
mörku þar sem hann bjó í rúm 40
ár. Hann hefur sýnt víða um heim
og sneri sér snemma að popplist
þar sem hann nýtir sér efni og form
bæði frá fortíð og nútíð. Það er mik-
ill skáldskapur í verkum Tryggva,
þau eru póetísk, djörf og mjög per-
sónuleg.
Tryggvi segir að hann hafi verið að
vinna við að búa til litógrafíur eftir að
hann lenti í slysi árið 2007. „Ég lærði
á sínum tíma að búa til litógrafíur og
það kemur mér til góða núna af því að
ég get ekki málað lengur. Ég hef verið
að vinna að þessu síðan 2013 þegar ég
fékk hjálp góðra manna, svona dags-
daglega þar sem ég er með aðstöðu
að Droplaugarstöðum. Þetta er svona
eins og lítil vinnustofa. Á sýningunni
á Mokka er ég að sýna svona blandað
úrval af þessu en þetta er bara lítil
sýning.“
Tryggvi er þekktastur fyrir mál-
verkin og hann segir að líkast til hafi
þau verið orðin á þriðja þúsundið á
sínum tíma. „Ég kannaði þetta árið
2000 þegar ég varð sextugur en þurfti
svo að stoppa árið 2007 en þá gerði
ég djöfulinn ekki neitt nema eitthvert
fúsk þangað til ég komst aftur í gang
og fór að gera litógrafíuna.
Þetta er reyndar allt orðið stafrænt
og breytt. Það er svo margt sem á að
vera svo einfalt en er orðið af völdum
tækninnar helmingi flóknara. Í dag
getur maður ekki haft tvær rollur
nema að maður eigi tölvu. Í gamla
daga gat maður blandað liti í dós en
núna þarf að blanda þetta allt öðru-
vísi. Prentarinn talar um númer en
ekki liti en ef maður lítur til himins þá
sér maður lit en ekki númer. Litirnir
eru fyrir augun og þetta er sjónrænn
miðill.
En ég hef óskaplega gaman af því
að geta fengið að vinna í friði. Það er
mitt líf því ég hef verið að því síðan að
ég var barn.“ – mg
Litir – ekki númer
Ein af myndum Tryggva á sýningunni
á Mokka.
Tryggvi Ólafsson myndlistarmaður.
RúnaR segiR klaRínett-
leikaRa þakkláta fyRiR að
BRahms náði að kynnast
mühlfeld.
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 51L A U g A R D A g U R 2 9 . A p R í L 2 0 1 7
2
9
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
C
2
-7
F
4
8
1
C
C
2
-7
E
0
C
1
C
C
2
-7
C
D
0
1
C
C
2
-7
B
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K