Fréttablaðið - 29.04.2017, Blaðsíða 8
Inntökupróf í Læknadeild HÍ
Læknisfræði og sjúkraþjálfun
Inntökupróf í Læknadeild Háskóla Íslands fyrir nám í læknisfræði
og sjúkraþjálfunarfræði verður haldið í Reykjavík fimmtudaginn
8. og föstudaginn 9. júní 2017.
Nánari upplýsingar verða sendar próftakendum eftir að skráningu er lokið. Þátttakendur
þurfa að skrá sig sérstaklega í inntökuprófið og er skráning opin til og með 20. maí 2017.
Skráning fer fram á netinu (www.laeknadeild.hi.is). Próftökugjald er 20.000 kr.
Þegar inntökuprófið er þreytt skal nemandinn hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sambæri-
legu prófi og skilað inn staðfestingu því til sönnunar. Umsóknin telst því ekki gild fyrr en
staðfest afrit af stúdentsprófsskírteini eða rafrænt stúdentsprófsskírteini úr Innu hefur
borist skrifstofu Nemendaskrár Háskóla Íslands, Háskólatorgi, Sæmundargötu 4, 101
Reykjavík.
Skráning í inntökuprófið getur farið fram þótt nemandi hafi ekki lokið stúdentsprófi
en þá skal skila staðfestingu til Nemendaskrár Háskóla Íslands um að stúdentsprófi verði
lokið áður en inntökupróf hefst. Staðfesting þarf að berast eigi síðar en 20. maí 2017.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér nánari
upplýsingar um prófið og dæmi um prófspurningar
sem nna má á heimasíðu Læknadeildar,
www.laeknadeild.hi.is
Undirbúningur prófsins fer fram af hálfu Læknadeildar
með sérstakri ráðgjöf, m.a. frá kennurum framhalds-
skóla og Menntamálastofnun. Inntökuprófið tekur tvo
daga og samanstendur af fjórum tveggja tíma próf-
lotum og Aðgangsprófi fyrir háskólastig (A-prófi) sem
tekur 3,5 klst. A-prófið gildir 30% af inntökuprófinu.
Niðurstaða prófsins birtist í einni einkunn sem verður
reiknuð með tveimur aukastöfum. Reiknað er með
að niðurstaða liggi fyrir ekki síðar en um miðjan júlí.
Árið 2017 fá 48 nemendur í læknisfræði og 35
í sjúkraþjálfunarfræði rétt til náms í Læknadeild
Háskóla Íslands og skulu þeir hafa skráð sig hjá
Nemendaskrá fyrir 20. júlí. Þeir sem ekki öðlast
rétt til náms í Læknadeild, eiga þess kost að skrá
sig, innan sömu tímamarka, í aðrar deildir gegn
greiðslu skrásetningargjalds skv. reglum
Háskóla Íslands.
LÆKNADEILD
Bandaríkin Átta ára árás banda
rískra stjórnvalda gegn byssueigend
um er nú lokið. Þetta sagði Donald
Trump, forseti Bandaríkjanna, þegar
hann ávarpaði Landssamband skot
vopnaeigenda (NRA) í gær, fyrstur
forseta síðan Ronald Reagan gegndi
því embætti á níunda áratugnum.
„Alríkisstofnanir munu ekki
lengur beina sjónum sínum að lög
hlýðnum byssueigendum. Ríkis
stjórnin mun ekki lengur reyna
að grafa undan réttindum og frelsi
Bandaríkjamanna,“ sagði forsetinn.
Þess í stað myndi ríkisstjórn hans
vinna með byssueigendum.
Hundraðasti dagur Trumps á
valdastóli er í dag. Greinir CNN,
sem Trump hefur reyndar sagt
flytja „mjög falskar fréttir“, frá því
að með ávarpinu reyni hann að
vinna sér inn traust bandarískra
íhaldsmanna sem gætu hafa snúið
baki við honum eftir að hann skipti
meðal annars um skoðun á Kín
verjum og árásum á Sýrland. – þea
Segir átta ára árás lokið
Ferðaþjónusta Samtök ferða
þjónustunnar óttast að fyrirhug
aðar breytingar á skattheimtu
í ferðaþjónustu, það er að færa
fyrirtæki úr neðra virðisaukaskatt
þrepi í hið efra, hafi neikvæð áhrif á
rekstur fyrirtækja, einkum á lands
byggðinni. „Fyrirtækin eru búin að
fjárfesta mjög mikið og eru því við
kvæm. Við teljum að þetta geti haft
verulega slæm áhrif,“ segir Helga
Árnadóttir, framkvæmdastjóri SAF.
Helga segir SAF hafa greint stöð
una undanfarið. Staða fyrirtækja í
ferðaþjónustu sé sú í dag að afkoma
fari versnandi þrátt fyrir fjölgun
ferðamanna. „Ástæðan er sú að
gengi hefur styrkst mikið og laun
hækkað. Neyslumynstur ferða
manna er að breytast út af hækk
andi verði. Þeir dvelja skemur, fara
í færri og styttri ferðir og svo fram
vegis,“ segir Helga sem telur breyt
inguna koma á versta tíma.
Skortur á samráði er annar þáttur
í gagnrýni SAF á fyrirhugaða breyt
ingu. „Við fréttum af þessu klukku
stund áður en þetta var tilkynnt og
við teljum að þetta sé illa ígrundað.
Það eru ófullnægjandi greiningar
sem liggja þarna að baki.“
Þá segir hún að hækkunin muni
bitna á samkeppnisstöðu íslenskr
ar ferðaþjónustu. „Ferðaþjónustan
er almennt í lægra skattþrepi
erlendis. Það er ástæðan fyrir því
að við viljum vera þar, til að stand
ast samkeppnina,“ segir Helga.
– þea
Breytingar á skattheimtu bitni á þeim viðkvæmustu í greininni
þýskaland Þýsk flugfélög hafa nú
ákveðið að afnema reglu um að tveir
aðilar þurfi að vera í flugstjórnar
klefanum öllum stundum. Reglan
var sett á í kjölfar þess að flugmaður
Germanwings, Andreas Lubitz, læsti
sig inni í flugstjórnarklefa og brot
lenti flugvélinni með þeim afleið
ingum að 150 fórust. Talið er að
Lubitz hafi brotlent vélinni viljandi.
Samtök flugfélaga í Þýskalandi,
BDL, tilkynntu um ákvörðunina
í gær og mun reglan falla úr gildi
þann 1. júní næstkomandi. Sam
kvæmt samtökunum hafi reglan
engin áhrif á öryggi og sé því gagns
laus.
Flugfélagið Eurowings, sem Ger
manwings rann saman við, er eitt
flugfélaganna sem afnemur regluna.
Í tilkynningu BDL segir að hvert
og eitt flugfélag hafi metið áhrif
reglunnar og þau hafi komist að því
að hún væri gagnslaus. – þea
Germanwings-reglan afnumin
Ferðamönnum hefur fjölgað stöðugt undanfarin ár. Sækja þeir margir hverjir Þingvelli. Fréttablaðið/Pjetur
regla sem komið var á eftir að vél Germanwings var brotlent árið 2015 verður
afnumin á næstunni. Hún þykir ekki auka öryggi farþega. NordicPHotoS/aFP
Forseti bandaríkjanna stendur með byssueigendum. NordicPHotoS/aFP
Gengi hefur styrkst
mikið og laun hafa
hækkað. Neyslumynstur
ferðamanna er að breytast út
af hækkandi verði. Þeir
dvelja skemur, fara í færri og
styttri ferðir og svo fram-
vegis.
Helga Árnadóttir,
formaður SAF
2 9 . a p r í l 2 0 1 7 l a u G a r d a G u r8 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
2
9
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
C
2
-B
0
A
8
1
C
C
2
-A
F
6
C
1
C
C
2
-A
E
3
0
1
C
C
2
-A
C
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K