Fréttablaðið - 29.04.2017, Page 14
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæwww.volkswagen.is
Við látum framtíðina rætast.
Passat GTE. Hlaðinn fjölskyldubíll með fimm ára ábyrgð.
Volkswagen Passat GTE er jafnvígur á rafmagn og bensín. Þú kemst flestra þinna ferða á raforkunni
einni saman, en í langferðum tekur sparneytin bensínvélin við. Snerpan og mýktin sem hann býr yfir gerir
aksturinn að hreinni skemmtun. Láttu framtíðina rætast og skiptu yfir í Passat GTE.
Verð frá 4.790.000 kr.
Rafmagn, bensín
og hrein skemmtun.
Tækni Margar af skærustu stjörnum
myndbandaveitunnar YouTube
hafa nýverið lýst þungum áhyggj-
um sínum af auglýsingamálum á
síðunni. Um síðustu mánaðamót
birtu fjölmiðlar á borð við Wall
Street Journal og Times of London
fréttir af auglýsingum stórfyrirtækja
sem birtust við myndbönd sem sögð
voru innihalda fordómafullar skoð-
anir og óviðeigandi efni.
Varð þetta til þess að fyrirtæki á
borð við McDonald’s, Audi og AT&T
eru tímabundið hætt að auglýsa á
síðunni. YouTube hefur í kjölfarið
breytt stefnu sinni í auglýsinga-
málum og býður auglýsendum upp
á að velja hvort þeir auglýsi við öll
myndbönd, myndbönd sem merkt
eru örugg eða velja að undanskilja
myndbönd sem innihalda fordóma,
umræðu um stjórnmál, blótsyrði og
þar fram eftir götunum.
Auglýsendur hafa þó ekki enn
flykkst til baka á YouTube og greindi
Sundar Pichai, forstjóri Google, frá
því að starfsmenn hans hefðu hringt
persónulega í auglýsendur og reynt
að telja þeim trú um að öruggt væri
að auglýsa á síðunni.
Eins og áður segir lýsa margir
sem halda úti rásum á síðunni yfir
þungum áhyggjum af stöðunni.
Þannig sagði Philip DeFranco, sem
er með fimm milljónir fylgjenda,
að stór hluti vandamálsins væri
skortur á gagnsæi. „Við fáum ekki
að sjá hvernig myndböndin okkar
eru merkt,“ sagði DeFranco í nýlegu
myndbandi.
Hjónin Ethan og Hila Klein, sem
halda úti rásinni h3h3Productions
og eru með fjórar milljónir fylgj-
enda, eru svartsýn í nýlegu mynd-
bandi. „Við vorum að vona að þetta
færi að lagast, og það hefur gert það
fyrir ýmsa. En fyrir okkur er þetta að
versna. Við sjáum ekki fyrir okkur
að við getum starfrækt rásina áfram
í óbreyttri mynd.“
Ethan segir ákvörðun auglýsenda,
sem og framferði stjórnenda You-
Tube, vera að eyðileggja rás þeirra
hjóna og þar með atvinnu þeirra.
„Af síðustu átta myndböndum
okkar höfum við fengið eðlilegar
auglýsingatekjur fyrir eitt þeirra
en svo gott sem engar fyrir hin
sjö,“ sagði Ethan sem sjálfur hefur
gagnrýnt fréttaflutning Wall Street
Journal og sagt hann byggjast á
ýkjum og útúrsnúningum.
Þá segir Steven Williams, sem
heldur úti rásinni Boogie2988 og
hefur fjórar milljónir fylgjenda, að
auglýsendur treysti því ekki lengur
að þeir hagnist á því að auglýsa á
YouTube. „Frá því Google keypti
YouTube hefur síðan verið byggð á
auglýsingum. Þannig hefur YouTube
aflað tekna og þannig hef ég aflað
tekna,“ sagði Williams.
Hank Green, annar helmingur
rásarinnar Vlogbrothers sem hefur
þrjár milljónir fylgjenda, segir tekjur
allra sem halda úti rásum á YouTube
hafa minnkað. „Hef ég áhyggjur?
Algjörlega. Það var hryllilegt að sjá
tekjur mínar hríðlækka um mánaða-
mótin.“ thorgnyr@frettabladid.is
Hafa miklar áhyggjur af framtíð YouTube
YouTube-stjörnur telja sig ekki geta haldið úti rásum sínum mikið lengur. Sniðganga auglýsenda og ný stefna í auglýsingamálum lækk-
ar tekjur þeirra sem halda úti rásum á síðunni. Google hefur hringt þúsundir símtala til að biðja auglýsendur um að hafa ekki áhyggjur.
Reynsla þessa ágæta snjallsímaeiganda af YouTube gæti orðið síðri ef rásum er lokað vegna tekjutaps. NoRdicphoTos/AFp
Stór hluti vanda-
málsins er skortur á
gagnsæi. Við fáum ekki að
sjá hvernig myndböndin
okkar eru
merkt.
Philip DeFranco,
YouTube-stjarna
Hef ég áhyggjur?
Algjörlega. Það var
hryllilegt að sjá tekjur mínar
hríðlækka um mánaða-
mótin.
Hank Green,
YouTube-stjarna
2 9 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r14 f r é T T i r ∙ f r é T T a B l a ð i ð
2
9
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
C
2
-8
4
3
8
1
C
C
2
-8
2
F
C
1
C
C
2
-8
1
C
0
1
C
C
2
-8
0
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K