Fréttablaðið - 29.04.2017, Page 100
Í síðasta pistli var fjallað um danska arkitektinn Alfred Råvad, þátt hans í þróun skipu-lagsmála í Chicago-borg og dvöl hans hjá Thor Jensen bróður sínum í Reykjavík árið 1915.
Þann tíma nýtti Råvad til að kynna sér
sitthvað í íslensku samfélagi og þá ekki
aðeins atriði sem tengdust byggingar-
list og bæjarskipulagi, heldur einnig
stjórnmálum og efnahagslífi.
Alfred Råvad hafði brennandi
áhuga á stjórnmálum og þar líkt og á
öðrum sviðum var hann maður stórra
hugmynda. Hann var gallharður þjóð-
ernissinni og taldi Danmörku á veru-
legum villigötum. Sár ósigur Dana
gegn Prússum og Austurríkismönnum
í stríðinu um Slésvík og Holtsetaland
árið 1864 hvíldi enn sem mara á þjóð-
inni. Sífellt erfiðara var að horfa fram
hjá þeirri staðreynd, að þrátt fyrir
forna frægð gat Danmörk ekki lengur
talist í hópi stórvelda Evrópu heldur
var hún að breytast í áhrifalítið smá-
ríki sem litlu skipti í valdatafli veiga-
meiri ríkja. Ráðamenn jafnt sem
almenningur voru, að mati Råvads,
hættir að sjá út fyrir Eystrasalt og
Norðursjó, en létu sér nægja agnar-
smátt danskt þjóðríki. Dönsk þjóð-
ernisvitund tók breytingum og fór
í vaxandi mæli að snúast um að lof-
syngja heiðvirt sveitalíf og smábúskap.
Draumurinn um að ná að endur-
heimta eitthvað af hinum töpuðu
landsvæðum syðst á Jótlandsskaga
var drifkrafturinn í danskri utanríkis-
stefnu á seinni hluta nítjándu aldar
og fram yfir fyrri heimsstyrjöldina.
Færa má fyrir því rök að þessi stefna
Dana hafi gert Íslendingum mögu-
legt að öðlast sjálfstæði, þar sem
dönsk stjórnvöld gátu illa krafist þess
að sjálfsákvörðunarréttur íbúa Slés-
víkur og Holtsetalands yrði virtur en
á sama tíma hundsað sjálfstæðiskröfur
Íslendinga.
Þetta taldi þjóðernissinninn Råvad
til marks um algjört metnaðarleysi og
hvatti landa sína í ræðu og riti til þess
að hugsa stærra og byggja upp nýja og
stóra Danmörku. Vaxtarmöguleikarn-
ir lágu að hans mati í hjálendunum:
Dönsku Vestur-Indíum, Færeyjum,
Íslandi en þó fyrst og fremst Græn-
landi. Verkefni næstu kynslóða væri
að byggja þar upp ný og kröftug sam-
félög á dönskum forsendum.
Råvad taldi sóknarfæri liggja í
nýlendunni í Vestur-Indíum, þar sem
reisa mætti stórskipahöfn til að þjóna
siglingum um Panamaskurðinn, sem
opnaður var árið 1914. Landbúnaðar-
framleiðslu á eyjunum, sem Råvad
vildi kalla Pálmaeyjar, hafði hrakað
á liðnum áratugum og komst arki-
Saga
til næsta
bæjar
Stefán Pálsson skrifar
um stórveldisdrauma
Alfreds Råvad.
Alfred Råvad hafði brennandi áhuga á stjórnmálum og þar líkt og á öðrum sviðum var hann maður stórra hugmynda.
tektinn að þeirri niðurstöðu að plant-
ekruræktun með þeldökku vinnuafli
væri úrelt fyrirbæri. Þess í stað ætti að
stefna að ávaxtaræktun fyrir danska
markaðinn, með dönskum bændum
sem flytja myndu til eyjanna gegn lof-
orði um jarðnæði og styrki.
Hér var ansi seint í rassinn gripið,
því dönsk stjórnvöld höfðu allt frá
aldamótum unnið ötullega að því að
selja Bandaríkjamönnum eyjarnar.
Um svipað leyti og Råvad gaf hug-
myndir sínar út á bók, var haldin
þjóðaratkvæðagreiðsla í Danmörku
um söluna, sem samþykkt var með
2/3 hlutum atkvæða. Í kosningunni í
Vestur-Indíum reyndust aðeins sjö
kjósendur hlynntir því að halda sam-
bandinu við Danmörku!
Áhyggjur af Íslandi
Á Íslandi sá Råvad fyrir sér mikil tæki-
færi í landbúnaði, sjávarútvegi og
orkuvinnslu. Hann hafði hins vegar
þungar áhyggjur af því að Danir
svæfu á verðinum og leyfðu erlendum
ríkjum að seilast til sífellt meiri áhrifa
á Íslandi. Norðmenn væru umfangs-
miklir í sjávarútvegi og sömu sögu
mætti segja um Frakka, sem reyndu
mjög að styrkja stöðu sína í landinu,
til dæmis með því að reka flesta spítala
í landinu.
Að mati Råvads voru menningarleg
áhrif Breta mest í landinu. Íslendingar
vildu allir læra ensku og enskar bók-
menntir væru þar í mestum metum.
Þýsku áhrifanna gætti á hinn bóginn
helst í verslun og viðskiptum, þar sem
þýskur varningur hefði lengi verið
áberandi í hillum verslana og væri afar
eftirsóttur. Niðurstaða hans var því
sú að þótt Ísland ætti að heita hluti af
danska ríkinu, sæjust þess varla merki
á götum Reykjavíkur.
Þessu tómlæti Dana gagnvart
Íslandi yrði að linna. Dönsk fyrirtæki
yrðu að láta betur til sín taka á Íslandi
og dönsk stjórnvöld að styrkja stöðu
þeirra gagnvart útlendingum. Nauð-
synlegt væri að efla stöðu Íslands
innan danska ríkisins í stað þess að
veita landinu stöðugt meira sjálfstæði
sem að lokum hlyti að leiða til fulls
aðskilnaðar.
Råvad taldi forgangsmál að Íslend-
ingar fengju sæti á danska þinginu.
Væri þar rétt að miða við fjögur sæti,
eitt fyrir hvern landsfjórðung og síðar
mætti bæta því fimmta við þegar
Reykvíkingar yrðu 50 þúsund talsins.
Til að tryggja að Íslendingum þættu
þeir velkomnir í stór-danska ríkinu
væri tilvalið að taka upp sömu skipan
og hjá bresku konungsfjölskyldunni,
þar sem ríkisarfinn ber titilinn prins-
inn af Wales. Þannig yrði danski krón-
prinsinn titlaður prins af Íslandi en sá
sem næstur gengi í erfðaröð nefndist
þá prins af Grænlandi. Í tengslum við
þetta mætti koma upp embættisbú-
stað á Íslandi sem meðlimir konungs-
fjölskyldunnar nýttu í heimsóknum
sínum til landsins.
Milljónasamfélag á Grænlandi
Rauði þráðurinn í hugmyndum
Råvads um Ísland var viðurkenning
hans á að Íslendingar væru sérstök
þjóð sem talaði sína eigin tungu og
yrði að umgangast með virðingu til að
særa ekki stolt hennar. Þannig yrði efl-
ing Íslands sem hluti af dönsku stórríki
að gerast með þeim hætti að Íslending-
um sjálfum fjölgaði. Tómt mál væri að
tala um að flytja Dani í stórum stíl til
Íslands, slíkt skilaði engum ágóða og
gæti bara leitt til árekstra.
Allt öðru máli gegndi um Grænland
í huga skipulagsfræðingsins metn aðar-
fulla. Grænland væri ógnarstórt og
þvert á það sem margir héldu, benti
Råvad á, væri þar að finna ágæt land-
búnaðarlönd. Lykillinn að nýtingu
landgæða á Grænlandi væri að hanna
nægilega hlý hús, sem arkitektinn
treysti sér vel til að gera með því að
horfa til fyrirmynda frá norðanverðri
Skandinavíu.
Til að skjóta styrkari stoðum undir
búreksturinn sá Råvad fyrir sér að
rækta mætti nýtt og harðgert nauta-
kyn með kynblöndun á sauðnautum
og evrópskum stórgripum. Þá væri til-
valið að flytja mörgæsir frá Suðurhveli
til Grænlands, sem hlytu að dafna þar
vel og gætu gefið af sér góðar afurðir.
Í huga Råvads hlyti uppbygging
landbúnaðar á Grænlandi að vera í
höndum danskra bænda, þótt sjálf-
sagt væri að bjóða nokkrum hópi
ungra íslenskra bænda að setjast að á
Grænlandi á hverju ári, til að minnast
sögulegra tengsla. Ekkert rými var hins
vegar fyrir inúíta í þessari framtíðar-
sýn. Innfæddir íbúar Grænlands, voru
að mati höfundarins engan veginn á
því menningarstigi að vænta mætti
þess að þeir sköpuðu nútímasamfélag.
Réttast væri að leyfa þeim að halda
sínum gömlu siðum í norðurhéruðum
Grænlands og ef til vill gætu einhverjir
þeirra með tímanum lært af háttum
Dananna og orðið siðmenntaðir.
Það voru þó ekki bara dönsk sauð-
nautabýli sem Råvad sá fyrir sér sem
lykilatriði í nývæðingu Grænlands.
Hann horfði til námavinnslu, sjávar-
útvegs og skipaþjónustu. Varðandi
síðastnefnda atriðið horfði Råvad sér-
staklega til tilrauna Kanadamanna
til siglinga norður til Hudson-flóa.
Þegar sú siglingaleið yrði almenn,
sköpuðust gríðarleg tækifæri til
reksturs stórskipahafnar á suðurodda
Grænlands. Höfn þessa mætti kenna
við Eirík rauða og yrði hún þunga-
miðjan í nýjum höfuðstað Grænlands
sem Råvad skemmti sér við að teikna
frá grunni. Með tímanum mætti svo
hugsa sér að byggja upp fleiri þétt-
býlisstaði á Grænlandi og kæmu þar
meðal annars til greina bæði Garðar
og Brattahlíð, sem hvort tveggja fæli
í sér sögulegar skírskotanir til eldra
landnáms norrænna manna á Græn-
landi.
Óþarft er að taka fram að fæstar
þessara draumsýna danska skipulags-
fræðingsins náðu fram að ganga. Má
raunar draga í efa margt af ályktunum
hans, svo sem þá skoðun að Græn-
land gæti hæglega staðið undir í það
minnsta milljón manna byggð.
En þótt gaman sé að velta fyrir sér
loftköstulum á borð við þá sem Råvad
reisir í skrifum sínum, er óþægilegra að
lesa grímulausa kynþáttafordómana
sem víða koma fram í skrifunum. Höf-
undurinn er ekki í minnsta vafa um
að svertingjar og inúítar séu frá nátt-
úrunnar hendi óæðri hvítum Dönum.
Má raunar segja að kynþáttahyggja
Råvads hafi ráðið miklu um þann sess
– eða öllu heldur skort á viðurkenn-
ingu – sem hann hefur hlotið í danskri
sögu.
Alfred Råvad á sér ýmsa aðdá-
endur sem harma mjög að hann hafi
ekki öðlast heimsfrægð fyrir störf sín
í Chicago en þó sérstaklega í Dan-
mörku, þar sem hið fræga borgar-
skipulag Kaupmannahafnar sem
var samþykkt fljótlega upp úr seinni
heimsstyrjöldinni hafi í raun hvílt
á hugmyndum hans. Þögnin um
Råvad í sögunni hefur að hluta verið
skýrð með óheppni og einbeitingar-
skorti, þar sem ekki liggi nógu mörg
áþreifanleg verk eftir hann. Önnur
veigamikil skýring er rasísk skrif
Råvads og þá einkum gyðingaandúð,
en hann var um árabil einn af forystu-
mönnum félagsskapar gyðingahatara
í Danmörku. Það kann að skýra að
sagnfræðingar hafi veigrað sér við að
hampa afrekum hans. Enginn öðlast
frægð í sögunni án þess að sleppa í
gegnum nálarauga sagnfræðinganna.
Nýtt danskt
heimsveldi
Snyrtistofan Hafblik
ER HÚÐIN FARIN AÐ SLAPPAST?
NÝ LAUSN
“SÉRMEÐFERД Í DEMANTSHÚÐSLÍPUN
Hraunbæ 102 • Reykjavík • S. 893 0098 • snyrtistofanhafblik@gmail.com
PANTAÐU FRÍAN TÍMA
Í SKOÐUN STRAX Í SÍMA
893-0098
Húðin verður þéttari - mýkri – hreinni & unglegri á náttúrulegan hátt
Fyrir Eftir
Fyrir Eftir
2 9 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r40 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
2
9
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
C
2
-9
3
0
8
1
C
C
2
-9
1
C
C
1
C
C
2
-9
0
9
0
1
C
C
2
-8
F
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K