Morgunblaðið - 05.01.2017, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2017
Vancouver,Whistler&Victoria
sp
ör
eh
f.
Vor 4
Í þessari ferð okkar vestur á Kyrrahafsströnd er margt að sjá
og upplifa. Stórborgin Vancouver hefur upp á ótalmargt að
bjóða og munum við heimsækja hinn fallega Stanley Park,
markaðina á Granville Island, sigla yfir á Vancouvereyju og
líta merkasta skrúðgarð veraldar, Butchart Gardens ásamt
því að halda upp í fjöllin til Whistler. Njóttu dásamlegrar
vorkomu á Vesturströndinni.
20. apríl - 2. maí
Fararstjóri: Jónas Þór
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Verð: 288.400 kr. á mann í tvíbýli.
Mikið innifalið!
BAKSVIÐ
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Lilja Alfreðsdóttir, starfandi utan-
ríkisráðherra og varaformaður
Framsóknarflokksins, er sögð hafa
verið aðalhvatamaður þess að við-
ræður hófust milli jóla og nýárs á
milli Framsóknarflokks og Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs
um mögulegt stjórnarsamstarf þess-
ara tveggja flokka við Sjálfstæðis-
flokkinn.
Þingflokkur VG hélt fund síðdegis
í gær, samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins, og sömuleiðis er fullyrt
að Björt framtíð sé undir ákveðnum
þrýstingi að skoða aðrar leiðir, til
stjórnarmyndunarþátttöku, en sam-
starf við Sjálfstæðisflokk og Við-
reisn. Allt virðist því í boði, en ekkert
í hendi.
Sigurður Ingi Jóhannsson, starf-
andi forsætisráðherra og formaður
Framsóknarflokksins, Lilja Alfreðs-
dóttir, Katrín Jakobsdóttir, formað-
ur VG, og Svandís Svavarsdóttir,
formaður þingflokks VG, áttu sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
fundi á milli jóla og nýárs, þar sem
ýmsar hugmyndir um stjórnarsam-
starf voru reifaðar og settar niður á
blað, samkvæmt sömu upplýsingum.
Stór mál sett til hliðar
Fyrst og fremst munu hugmyndir
forystumanna Framsóknar og VG
lúta að innviðauppbyggingu, í sam-
göngu-, heilbrigðis- og mennta-
málum. Stór ágreiningsmál eins og
skattamál hafi verið lögð til hliðar,
nema hvað samhljómur mun hafa
verið á milli flokkanna um að endur-
skoða eigi grunninn að veiðigjöldum,
með hliðsjón af því að afkomutengja
gjöldin. Ekki munu vera lagðar til
skattahækkanir á fyrirtæki og ein-
staklinga.
Efnislega mun Bjarni Benedikts-
son, starfandi fjármálaráðherra og
formaður Sjálfstæðisflokksins, hafa
fengið skilaboð um hugmyndir flokk-
anna tveggja á nýársdag, og að
flokkarnir væru tilbúnir að láta á það
reyna hvort flokkarnir þrír gætu náð
saman á þessum nótum.
Á þingflokksfundi Sjálfstæðis-
flokksins í fyrradag, sem stóð mun
lengur en ráð hafði verið fyrir gert,
mun það hafa komið fram í máli
Bjarna, þegar hann fór yfir stöðuna,
að hann teldi sig ekki hafa neitt
áþreifanlegt í höndunum frá Fram-
sókn og VG þrátt fyrir þau skilaboð
sem honum hefðu borist á nýársdag.
Hann væri í stjórnarmyndunarvið-
ræðum við Viðreisn og Bjarta fram-
tíð og hefði engan hug á því að fara í
stjórnarmyndunarviðræður við tvo
aðila á sama tíma. Á þessu stigi
þyrftu stjórnmálin síst á því að halda
að sá sem væri með stjórnar-
myndunarumboðið léki tveimur
skjöldum.
Vill kippa Samfylkingu með
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins leggur VG enn á það
áherslu, komi til samstarfs Sjálf-
stæðisflokks, Framsóknar og VG, að
Samfylkingin fái að fljóta með.
Flestir þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins munu útiloka að Samfylkingin
gæti orðið einn samstarfsflokkanna.
Að öðru leyti er talsvert stór hluti
þingflokks Sjálfstæðisflokksins
sagður nokkuð jákvæður gagnvart
samstarfi við Framsókn og VG, sem
myndi þýða að slík ríkisstjórn hefði
39 þingmönnum á að skipa, traustan
meirihluta, í stað eins þingmanns
meirihluta Sjálfstæðisflokks, Við-
reisnar og Bjartrar framtíðar.
Ákveðinna efasemda gætir hjá ýms-
um þingmönnum Sjálfstæðisflokks-
ins gagnvart ákveðnum þingmönn-
um Framsóknarflokksins. Oftast var
Eygló Harðardóttir nefnd á nafn og
þingmenn Sjálfstæðisflokksins virð-
ast alls engan áhuga hafa á að starfa
með henni á nýjan leik í ríkisstjórn.
Enginn viðmælenda virðist gera sér
í hugarlund að samstarf við Sigmund
Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi
forsætisráðherra og fyrrverandi for-
mann Framsóknarflokksins, geti á
nokkru stigi máls komið til greina.
Umsagnir um framsóknarþing-
mennina Elsu Láru Arnardóttur og
Silju Dögg Gunnarsdóttur voru
sömuleiðis mjög neikvæðar.
Ummælin um formann og varafor-
mann Framsóknarflokksins eru á
allt annan veg. Flestir viðmælendur
úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins
báru Sigurði Inga og Lilju afar vel
söguna.
Þótt ákveðnir þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins séu spenntari fyrir
stjórnarsamstarfi við Framsókn og
VG en við Viðreisn og Bjarta framtíð
er fullyrt af heimildarmönnum úr
þingflokki Sjálfstæðisflokksins að
formaðurinn hafi óskorað umboð
þingflokksins til stjórnarmyndunar
og nái hann saman við Viðreisn og
Bjarta framtíð um stjórnarsáttmála
muni ekki einn einasti þingmaður
Sjálfstæðisflokksins mótmæla eða
greiða atkvæði gegn slíku samstarfi.
Helstu efasemdir í þingflokki
Sjálfstæðisflokksins um stjórnar-
myndun með Viðreisn og Bjartri
framtíð snúa vitaskuld að hinum
nauma meirihluta, sem margir telja
að vart sé á vetur setjandi.
Vantraust í þingflokki Sjálfstæðis-
flokksins í garð Katrínar Jakobs-
dóttur og raunar fleiri þingmanna
VG er sagt mikið. Sömuleiðis benda
ákveðnir þingmenn á „galnar tillög-
ur“ VG í desember um skattahækk-
anir við aðra umræðu fjárlaga og
jafnfram var á það bent að VG hefði
ekki verið lengi að detta í stjórnar-
andstöðuhlutverkið þegar kom að af-
greiðslu hins gífurlega þýðingar-
mikla frumvarps um jöfnun
lífeyrisréttinda. Þá hefðu þingmenn
VG ekki verið að láta það trufla sig
að friður á vinnumarkaði yrði í upp-
námi í næsta mánuði ef frumvarpið
væri ekki afgreitt fyrir áramót.
Góður gangur en ekkert fast í hendi
Einhverjar efasemdir í þingflokki Sjálfstæðisflokksins um samstarf við Viðreisn og Bjarta framtíð
Bjarni með óskorað umboð þingflokksins Lilja helsti hvatamaður viðræðna Framsóknar og VG
Morgunblaðið/Eggert
Til þrautar Bjarni Benediktsson reynir að mynda ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar.
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins
benti blaðamanni á teikningu
Halldórs Baldurssonar í Frétta-
blaðinu í gær, sem sýnir Bjarna
Benediktsson skoða jakkaföt á
herrafataútsölu. Á einu herða-
trénu hangir Katrín Jak-
obsdóttir, og yfirskriftin á henn-
ar jakkafötum er: „ÚTSALA
50% AFSLÁTTUR“ !
„Er yfirhöfuð einhver ástæða
til þess að við tökum mark á
svona málatilbúnaði VG og
Framsóknar nú?“ spurði þing-
maðurinn.
50% afslátt-
ur á útsölu
MÁLATILBÚNAÐUR VG
Hjörtur J. Guðmundsson
hjortur@mbl.is
Fjöldi ráðuneyta og skipting þeirra
á milli flokkanna eru meðal þeirra
atriða sem rædd hafa verið í
stjórnarmyndunarviðræðum Sjálf-
stæðisflokks, Viðreisnar og Bjartr-
ar framtíðar. Óttarr Proppé, for-
maður Bjartrar framtíðar, sagði
eftir fund forystumanna flokkanna
í Alþingishúsinu í gær, að niður-
staða væri ekki fengin í því efni.
Málefnin hefðu forgang.
Fundur Sjálfstæðisflokksins, Við-
reisnar og Bjartrar framtíðar um
myndun ríkisstjórnar stóð yfir í um
tvo tíma og við tók málefnavinna
hvers flokks fyrir sig. Stefnt er að
því að áfram verði fundað í dag,
líklega um hádegisbilið. Flokkarnir
munu síðan bera saman bækur sín-
ar á morgun.
Vinnan gengur vel
„Þetta var góður fundur í dag
[gær] og við höfum haldið áfram að
fara yfir málin. Þetta skýrist smám
saman en við erum ekki komin á
endastöð heldur. Þannig að vinnan
gengur vel og ástæðan til bjartsýni
á að þetta geti gengið saman eykst
alltaf hægt og rólega,“ sagði Óttarr
eftir fundinn í gær. „Við erum nátt-
úrulega alltaf að kafa dýpra ofan í
málin og það er allt saman já-
kvætt.“
Fram hefur komið að stóll for-
sætisráðherra er frátekinn fyrir
formann Sjálfstæðisflokksins.
Spurður hvort rætt hafi verið um
skiptingu ráðuneyta og skipan
þeirra sagði Óttarr: „Það hefur
auðvitað verið rætt meðfram alveg
frá upphafi en við erum ekki búin
að setjast niður og klára að semja
um þau mál. Við höfum sett mál-
efnin fram fyrir í vinnunni. En við
eigum ekki von á að steyta muni á
því.“
Málefnin séu í fyrirrúmi og for-
senda endanlegrar skiptingar ráðu-
neyta sé að flokkarnir nái saman í
þeim. „Við erum núna komin inn á
nýtt ár og komið á þriðja mánuð
frá kosningum og ég held að
ábyrgðin sem hvílir á okkur og
okkur öllum að koma á starfhæfri
ríkisstjórn, hún banki alltaf meira
upp á hjá okkur,“ sagði Óttarr.
Ekki komin niðurstaða
um skiptingu ráðuneyta
Finna fyrir ábyrgð á að koma á starfhæfri ríkisstjórn
Morgunblaðið/Eggert
Viðræður Forystumenn flokkanna þriggja funduðu í Alþingishúsinu í gær