Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.05.2017, Page 35
7.5. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
REYKJANESBÆ
Hafnargötu 61 | 230 Reykjanesbær | Sími: 421 7104
Full búð af
NÝJUMVÖRUM
Siemens - Adidas - Under Armour - Cintamani
fyrirbærum og hugtökum. Þetta er
að mínu viti ein skemmtilegasta hlið-
in á bandarískri menningu.
Miðbærinn lifnar við
Gamli miðbærinn gengur nú í end-
urnýjun lífdaga og við vorum á Ace
Hotel, þar sem er sögufræg bygging.
Hýsti áður United Artists-samsteyp-
una og er frá gullaldartímabili Holly-
wood. Þar er skemmtilegur bar uppi á
efstu hæð og fyrir þá sem það kunna
að meta er hönnunin öll úthugsuð og
skemmtileg.
Þaðan er ekki langt að fara á
Grand Central Market, þar sem
hægt er að fá alls kyns tegundir af
mat á skemmtilegum markaði sem
ég mæli hiklaust með. Í miðbænum
eru einnig söfn, tónlistarhúsið Disn-
ey Hall þar sem við fórum á frábæra
tónleika með Sigur Rós og Fílharm-
óníunni og ráðhúsið sem er eitt
þekktasta kennileiti borgarinnar, en
hægt er að fara inn í húsið og skoða
sig um. Töluvert vesen er að vera á
bílaleigubíl í borginni, þar sem það
kostar sitt að leggja og enn meira að
fá stöðumælasekt, en það er óneit-
anlega gaman að keyra götur eins og
Sunset Boulevard og upp í hæðirnar
til að fá smjörþefinn af ljúfa lífinu
þar.
Rúmir tveir sólarhringar í LA
duga náttúrulega engan veginn en
maður var þó fullur tilhlökkunar fyr-
ir því að fara til Palm Springs og á
Coachella-hátíðina.
Módernismi í eyðimörkinni
Palm Springs byggðist upp um miðja
síðustu öld í kringum glaumgosa á
borð við Frank Sinatra og Dean
Martin en í seinni tíð hafa samkyn-
hneigðir tekið ástfóstri við staðinn
og eru þar áberandi. Þurrt, hlýtt
loftslagið og margar sólarstundir
gera staðinn einstaklega vel til þess
fallinn að liggja á sundlaugarbakka
með glundur í glasi. Borgin er einnig
þekkt fyrir arkitektúr en þar eru
bæði einbýlishús og opinberar bygg-
ingar í módernískum stíl (e. midcent-
ury architecture) eftir arkitekta á
borð við Albert Frey, William Krisel
og Richard Neutra og hægt er að
skipuleggja ferðir í sum húsin. Í
febrúar á hverju ári er svo ráðstefna
um módernisma í borginni. Á auð-
veldan hátt er hægt að komast upp í
800 metra hæð og magnaða nátt-
úrufegurð með kláfi í San Jacinto-
fjöllunum. Mæli með því. Coachella-
hátíðin var síðan skemmtileg upp-
lifun eins og rakið var hér í blaðinu á
dögunum.
Nú var haldið til Santa Barbara,
sem er fallegur bær við ströndina.
Þeir sem hafa efni á því ættu að
skoða að dvelja á Belmond El Enc-
anto í hæðunum, en þangað hafa
stjörnurnar sótt frá því á gullaldar-
tímabili Hollywood. Mikill lúxus og
óviðjafnanleg þjónusta. Route 1 sem
liggur með ströndinni að San Franc-
isco var lokað vegna skriðufalla á
dögunum, sem voru mikil vonbrigði,
en þó er hægt að komast þar í óvið-
jafnanlega náttúrufegurð við strand-
lengjuna með því að taka smá krók á
leiðina. Monterey og Carmel eru síð-
an fallegir bæir við ströndina sem ég
mæli með að heimsækja.
Sjarmi í San Francisco
San Francisco er einstök borg og lega
hennar í hlíðunum við flóann gerir
hana að mörgu leyti óvenjulega.
Bragurinn á henni er evrópskari en í
flestum bandarískum borgum og líf-
rænni borgarbragur er á henni en
t.a.m. LA. Mikið er í boði fyrir ferða-
menn: Fisherman’s Wharf, japanski
garðurinn, ferðir í Alcatraz og svo er
gaman að kíkja á Golden Gate brúna.
Fjarlægðirnar eru hóflegar og því vel
hægt að vera fótgangandi í mið-
bænum. Hilton-hótelið við Union
Square er mjög vel staðsett og gott
hótel og þaðan var stutt að fara á alla
helstu staði. Eitt af því sem við gerð-
um var að kíkja á Union Street, þar
sem eru margir barir, kaffihús og
veitingastaðir. Mjög skemmtilegt
svæði í æðislegri borg. Það er engin
spurning að við verðum komin til
Kaliforníu fljótt aftur og þá verðum
við lengur, helst þrjá mánuði
Mýmörg falleg hús í módernískum stíl eftir þekkta arkitekta eru í Palm Springs. Þetta hús eftir svissneska arkitektinn Al-
bert Frey var áður bensínstöð. Líklega hefði hann mótmælt því að setja niður ljósastaur og byggja vegg fyrir framan það.
El Encanto er í hæðunum fyrir ofan Santa Barbara með útsýni yfir bæinn og
Kyrrahafið. Það er skiljanlegt að hótelið hafi verið í uppáhaldi hjá Clark Gable.
Griffith Observatory í ljómanum af Kaliforníu-sólsetrinu. Óhætt er að mæla
með göngunni upp að stöðinni, sem tekur u.þ.b. 30 mínútur.
Ströndin við smábæinn Carmel er sérlega
falleg. Skyldustopp á ferðalagi um svæðið.
Útsýnið yfir San Francisco frá Hilton
á Union Square er magnað.
San Francisco sést vel frá útsýnispall-
inum við Golden Gate-brúna.
Vel er hægt að vera fótgangandi í San
Francisco og nýta sporvagnakerfið.
Úr eyðimörkinni og upp fyrir
snjólínu á nokkrum mínútum.
Útsýnið af San Jacinto yfir Coachella-
dal. Palm Springs sést á milli trjánna.
’Hjólabrettagaurar,skvísur á línuskautum,heimilislausir tónlistar-menn, vöðvatröll á Muscle
Beach, hvítur sandur og
djúpblátt Kyrrahafið. Það
eina sem vantaði var
Fletch að vakna skelþunn-
ur á ströndinni.