Morgunblaðið - 10.06.2017, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2017
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Miklar framkvæmdir standa nú
yfir á svokölluðum Hafnarstræt-
isreit en þar er að finna hinn
heimsfræga og vinsæla pylsu-
vagn Bæjarins bestu.
Búið er að grafa mikla holu á
horni reitsins og vegna fram-
kvæmdanna hefur þrengt mjög
að pylsuvagninum.
Röðin, sem er oftast við vagn-
inn, hlykkjast nú um nýjar slóð-
ir.
Á horninu mun rísa spennistöð
og mun útlit hennar taka mið af
spennistöðvum sem Guðjón Sam-
úelsson teiknaði, t.d. á Vestur-
götu 2. Núverandi spennistöð er
innar á lóðinni og því er um til-
flutning að ræða innan reitsins.
Verkinu á að ljúka síðsumars.
„Þetta er erfitt meðan á þessu
stendur en svæðið verður glæsi-
legt þegar framkvæmdum lýkur.
Við erum alveg róleg,“ segir
Baldur Ingi Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Bæjarins bestu.
Hann segir að í næstu viku
verði planið málað til að lífga
upp á og auðvelda fólki að mynda
röð.
En fleira var gert til að flýta
afgreiðslu. „Við breyttum innrétt-
ingum á dögunum og settum inn
tvö sett af pottum. Um helgar
verða þrír á vaktinni svo röðin
ætti að ganga hratt fyrir sig,“
segir Baldur Ingi. Lausnin var sú
að stækka afgreiðslulúguna svo
nú verður hægt að afgreiða tvo í
einu.
„Það var búið að tala um þetta
í mörg ár. Við smíðuðum eftirlík-
ingu á skrifstofunni og sáum að
þetta var mögulegt. Starfsmenn
Bæjarins bestu hafa margra ára-
tuga reynsla af því að vinna í
litlu rými.“
Einnig stendur til að færa
pylsuvagninn í framtíðinni. Hann
mun standa 2-3 metrum innar á
lóðinni.
Núverandi vagn verður not-
aður, enda í toppstandi að sögn
Baldurs Inga. sisi@mbl.is
Framkvæmdir á Hafnarstrætisreit þrengja tímabundið að hinum fræga pylsuvagni Bæjarins bestu
Morgunblaðið/RAX
Hraðar mun
ganga á röðina
með stærri lúgu
Holan mikla Þarna mun í sumar rísa spennistöð. Meðan á framkvæmdum stendur verða þar mikil þrengsli.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Manndrápið í Mosfellsdal er ekki
endilega til merkis um aukið eða
harðnandi ofbeldi í undirheimunum,
að mati Gríms Grímssonar yfirlög-
regluþjóns. „Hluti þess sem við er-
um að rannsaka er hver ásetning-
urinn var, hvort hann var til
manndráps eða einhvers annars,“
sagði Grímur.
Hann segir að lögreglan fái til-
kynningar um að verið sé að beita
því sem kallað er handrukkanir.
„Við hvetjum fólk til að hafa sam-
band við okkur ef það lendir í slíku,“
sagði Grímur. „Slíkar aðferðir eru
gjarnan notaðar vegna einhvers
ólögmæts, til dæmis fíkniefnamála.
Sá sem fyrir verður lætur það
kannski yfir sig ganga og vill ekki
blanda lögreglunni í það. Þannig
verður þetta undirheimamál, ef svo
má segja. Engu að síður hvetjum við
til þess að lögreglan sé látin vita.“
Grímur sagði aðspurður að hæg
stígandi hefði verið í vopnaburði í
undirheimunum. Fyrir talsvert
löngu síðan hefði það heyrt til und-
antekninga að menn gengju með
hnífa, en nú sé það algengt að menn
séu vopnaðir hnífum. Hann sagði
það ekkert eiga frekar við um út-
lendinga en Íslendinga að bera
vopn.
„Þeir sem leita til okkar gera það
oftast vegna ofbeldis í nánum sam-
böndum, það er heimilisofbeldis,
kynferðisofbeldis, líkamlegs eða
fjárhagslegs ofbeldis,“ sagði Ragna
Björg Guðbrandsdóttir, verkefna-
stjóri Bjarkarhlíðar, ráðgjafarmið-
stöðvar fyrir þolendur ofbeldis.
Stöðin var opnuð fyrir um þremur
mánuðum og hefur fengið yfir 100
mál frá opnun. Ragna sagði að það
væri meira en búist var við.
Ragna sagði allt ofbeldi jafnvont
og að ekki væri gerður greinarmun-
ur á því. „Maður er alltaf að sjá fleiri
og fleiri birtingarmyndir ofbeldis
með netvæðingu og öðru sem bætist
við,“ sagði Ragna. Hún sagði að of-
beldi sem tengist undirheimunum
hefði ekki enn komið til kasta þeirra
í Bjarkarhlíð.
Rannsóknarlögreglukona er í
teyminu sem vinnur í Bjarkarhlíð.
Hún talar við flesta sem leita til mið-
stöðvarinnar. „Þegar lög eru brotin
og brotið er á einstaklingum er allt-
af rétta leiðin að leita til lögregl-
unnar og láta opinbera aðila hafa að-
komu að þeim málum. Það er sú leið
sem við vinnum eftir,“ sagði Ragna.
Hún sagði að þegar fólk kæmi með
gömul og fyrnd mál, t.d. ofbeldi í
æsku, ætti það oft ekki við. Engu að
síður væri gott fyrir fólk að geta
rætt við lögregluna, kannað sinn
rétt og fengið ráð.
Hnífaburður algengur
Atburðurinn í Mosfellsdal ekki endilega merki um harðnandi ofbeldi Ráðgjaf-
armiðstöð fyrir þolendur ofbeldis hefur fengið yfir 100 mál á þremur mánuðum
Morgunblaðið/Ófeigur
Ofbeldi Frá vettvangi í Mosfellsdal.
Stórbruni varð í uppsjávarverk-
smiðju færeyska fyrirtækisins Varð-
in Pelagic P/F, en fyrirtækið er
dótturfélag Varðin P/F og Delta
Seafood P/F. Skaginn hf. á Akranesi
og Kælismiðjan Frost ehf. á Akur-
eyri byggðu verksmiðjuna frá
grunni fyrir um fimm árum, en hún
er á Tvøroyri á Suðurey.
Verksmiðjan brann nánast til
kaldra kola og slökkvilið slökkti í
glæðum fram eftir gærkvöldi.
Ingólfur Árnason, forstjóri Skag-
ans 3X, segir tjónið mikið og að for-
svarsmenn fyrirtækjanna beggja
séu í áfalli enda hafi náinn vinskapur
tekist með forsvarsmönnum þeirra í
tengslum við uppbygginguna. Enn-
fremur sé það mikið högg fyrir fyrir-
tækið færeyska að verða fyrir tjóni
þegar tveir mánuðir séu í makrílver-
tíð.
Stórbruni varð í Færeyjum
Verksmiðja ónýt Íslendingar byggðu upp starfsemina
Portal.fo/Kjartan Johannessen
Bruni Verksmiðjan er talin ónýt, en íbúum var ráðlagt að halda sig fjarri
vegna hættu af gufum sem mynduðust þegar ammóníakbirgðir brunnu.
Jón Trausti Lúthersson, einn sex-
menninganna sem handteknir voru
í tengslum við manndrápsmálið í
Mosfellsdal á miðvikudag, neitar
því að hafa ráðið manninum bana.
Þetta segir lögmaður Jóns
Trausta, Sveinn Andri Sveinsson, í
samtali við mbl.is. Hann neitar hins
vegar ekki aðkomu að málinu.
„Hann var á þessum vettvangi, en
það breytir því ekki að minn um-
bjóðandi réð hinum látna ekki
bana,“ segir Sveinn. Jón Trausti
var úrskurðaður í gæsluvarðhald
til 23. júní en Sveinn segir ólíklegt
að gæsluvarðhaldsúrskurðurinn
verði kærður til Hæstaréttar. „Ég
reikna nú ekki með því. Þetta er
alvarlegt mál sem snýr að andláti
manns og rannsókn málsins er á al-
gjöru frumstigi. Það tvennt leiðir
til þess að það eru alltaf 99,9% lík-
ur á því að dómstóll samþykki
gæsluvarðhald.“
Neitar sök á
manndrápi
Var á vettvangi