Morgunblaðið - 10.06.2017, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2017
Viðskiptablaðið birti skoðana-könnun í vikunni sem sýnir að
meirihlutinn í Reykjavík mundi
halda ef kosið væri nú. Stuðningur
við flokkana í meirihlutanum er á
heildina litið
óbreyttur frá
kosningunum
2014, eða um
61%.
Þetta segirþó ekki
alla söguna. Stuðningur við ein-
staka flokka meirihlutans hefur
breyst verulega. Þannig hefur
flokkur borgarstjórans, Samfylk-
ingin, fallið um nær þriðjung og
mælist með 22% fylgi.
Björt framtíð hefur farið ennverr og mælist með innan við
þriðjung af fyrra fylgi, eða tæp 5%.
Á hinn bóginn mælast VG og Pí-ratar mun sterkari nú en í síð-
ustu kosningum, hafa meira en tvö-
faldað fylgi sitt. VG er með tæplega
21% og Píratar með tæplega 14%.
En það er langt í að kosið verðiog nýlegar kosningar í Bret-
landi sýna að ekki þarf nema tvo
mánuði til að snúa kjósendum ef
forsendur eru réttar.
Ekki þarf mikið til að Samfylk-ing, VG og Píratar lækki
verulega og óvíst er hvort Björt
framtíð á sér framtíð í borgar-
stjórn.
Meirihlutinn er því alls ekkiöruggur þó að tölur séu hon-
um í vil nú. En til að fella hann þarf
þó minnihluta sem býður upp á
skýra stefnu, og það þarf að auki að
vera önnur stefna en meirihlutinn
fylgir. Þar til þetta gerist er meiri-
hlutinn – óverðskuldað auðvitað –
nokkuð öruggur í ráðhúsinu.
Minnihlutinn hefur
val um meirihluta
STAKSTEINAR
Sterkir í stálinu
Skipastál • Lunningajárn • Bakjárn
Kælirör • Fíber- og galvanhúðaðar ristar
Svört- og ryðfrí rör og fittings
Ál • Ryðfrítt stál • PVC plötur
POM öxlar • PE plötur
Lokar af ýmsum gerðum
Opið virka daga kl. 8-17
Skútuvogi 4, Rvk
Rauðhellu 2, Hafnarfirði
Sími 568 6844 | ga@ga.is | ga.is
2024 SLT
L iðLé t t ingur
Verð kr
2.790.000
Verð með vsk. 3.459.600
Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Veður víða um heim 9.6., kl. 18.00
Reykjavík 12 léttskýjað
Bolungarvík 8 léttskýjað
Akureyri 10 léttskýjað
Nuuk 3 heiðskírt
Þórshöfn 11 heiðskírt
Ósló 13 rigning
Kaupmannahöfn 19 heiðskírt
Stokkhólmur 16 skýjað
Helsinki 17 léttskýjað
Lúxemborg 19 léttskýjað
Brussel 19 heiðskírt
Dublin 17 skýjað
Glasgow 16 skýjað
London 19 léttskýjað
París 21 heiðskírt
Amsterdam 18 léttskýjað
Hamborg 14 skúrir
Berlín 28 heiðskírt
Vín 26 heiðskírt
Moskva 17 heiðskírt
Algarve 23 heiðskírt
Madríd 33 heiðskírt
Barcelona 24 léttskýjað
Mallorca 26 léttskýjað
Róm 27 heiðskírt
Aþena 25 léttskýjað
Winnipeg 25 skýjað
Montreal 21 alskýjað
New York 22 skýjað
Chicago 26 heiðskírt
Orlando 27 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
10. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:03 23:53
ÍSAFJÖRÐUR 1:43 25:23
SIGLUFJÖRÐUR 1:16 25:16
DJÚPIVOGUR 2:19 23:35
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Undanfarin 45 ár hefur mér liðið
mjög illa yfir þessu og ég vona bara
að hún geti fyrirgefið mér þessi
hræðilegu mistök,“ segir hinn breski
David Bassett og vísar til þess þegar
hann sendi íslenska konu um tvítugt
um borð í ranga lest í Skotlandi. Var
þetta miðvikudaginn 12. júlí 1972.
Bassett hafði nýverið samband við
Morgunblaðið í þeirri von að fá frá-
sögn sína birta og freista þess þann-
ig að nálgast konuna íslensku. Vill
hann biðja hana afsökunar á lestar-
ferðinni röngu fyrir 45 árum.
„Tvítugur hélt ég til Íslands í
fyrstu utanlandsferð mína og átti ég
þar dásamlegt tveggja vikna frí. Svo
flaug ég frá Keflavík til Glasgow,
þaðan sem ég tók að lokum lest heim
til Liverpool,“ segir Bassett og bæt-
ir við að hann hafi hins vegar hitt
unga íslenska konu, að líkindum um
18 ára gamla, í rútubíl á leið á lestar-
stöðina í Glasgow. Hún var í sinni
fyrstu utanlandsferð og ætlaði að
hitta vini sína í Edinborg, en þangað
ætlaði hún með farþegalest.
Bauðst til þess að hjálpa
„Vegna þess að hún var í fyrstu
utanlandsferð sinni og hafði enga
reynslu af lestum, því það eru jú
engar lestir á Íslandi, bauðst ég til
þess að hjálpa henni um borð í rétta
lest,“ segir Bassett og heldur áfram:
„Svo fór ég bara í mína lest og hélt
af stað heim. En allt í einu áttaði ég
mig á því að ég sendi stúlkuna um
borð í kolvitlausa lest – hún fór að
vísu til Edinborgar en ekki á þá lest-
arstöð þar sem vinir hennar biðu eft-
ir henni. Mér finnst þetta alveg
hræðilegt og vil endilega fá að biðja
hana afsökunar á þessum ruglingi.“
Aðspurður segist Bassett ekki
muna hvað íslenska konan heitir né
heldur veit hann hvort vinirnir sem
hún ætlaði að hitta í Edinborg séu
íslenskir eða ekki. „Ég veit bara að
það er ekki gott að þiggja ráð frá
mér þegar viðkomandi er í fyrstu ut-
anlandsferð sinni,“ segir Bassett og
hlær við.
Fari svo að umrædd kona sjái
þessi skrif eða fái spurnir af þeim er
henni bent á að hafa samband við
ritstjórn Morgunblaðsins með því að
senda póst á ritstjorn@mbl.is.
Tókst þú ranga
lest árið 1972?
Vill biðja íslenska konu afsökunar
David Bassett,
tvítugur að aldri.
David Bassett, eins
og hann er í dag.
Stöðumælasektir í Reykjavík hækk-
uðu um allt að 140 prósent um síð-
ustu mánaðamót.
Almenn sekt hækkaði úr 2.500
krónum upp í 4.500 krónur sem
nemur 80 prósenta hækkun, en sé
sektin greidd innan þriggja virkra
daga, þá með afslætti, hækkar sekt-
in úr 1.400 krónum áður upp í 3.400
krónur sem nemur 142 prósenta
hækkun. Eftir fjórtán daga hækkar
gjaldið í 6.750 krónur og eftir 28
daga í 9.000 krónur.
Netverjar hafa rætt hækkunina
sín á milli, m.a. í Facebook-hópnum
„Stöðumælatips“ og eru meðlimir
hópsins ósáttir.
Ekki náðist í yfirmenn Bílastæða-
sjóðs eða upplýsingafulltrúa borg-
arinnar vegna málsins í gær. Í til-
kynningu á vefsíðu Bílastæðasjóðs
er þó greint frá hækkuninni.
Stöðumælasektin orðin 4.500 krónur
Allt um sjávarútveg