Morgunblaðið - 10.06.2017, Blaðsíða 17
Að efla frjálsa þjóðmenningu
með bókaútgáfu og annarri upplýsingastar fsemi
Þannig lýsir Bókmenntafélagið Mál og menning hlut verki sínu í f yrstu samþykktum félagsins.
Þann 17. júní eru 80 ár liðin frá því að fulltrúar
Félags byltingarsinnaðra rithöfunda og bókaútgáf-
unnar Heimskringlu lögðu grunn að félagi til að gefa
út vandaðar bækur á viðráðanlegu verði. Síðan þá hef-
ur gengið á ýmsu í sögu Máls og menningar, þar sem
finna má rússagull og rekstrarvanda, en líka heims-
bókmenntir og skáldaþing, að ótöldum þúsundum
bóka. Nú er félagið stoltur aðaleigandi Forlagsins,
stærstu bókaútgáfu á Íslandi, í félagi við Egil Örn
Jóhannsson. Af þessu tilefni er öllum velunnurum
Máls og menningar boðið til ...
• Flutt verða brot úr Sóleyjarkvæði eftir
Jóhannes úr Kötlum og Pétur Pálsson,
undir stjórn Árna Harðarsonar.
• Gerður Kristný og Halldór Armand flytja
skáldskap.
• Halldór Guðmundsson segir frá bók-
menntafélaginu og Sigþrúður Gunnarsdóttir
stýrir veislunni.
• Dagskráin tekur um klukkutíma og að-
gangur er ókeypis en vissara er að tryggja
sér miða í miðasölu Hörpu, s. 528 5050.
Í tilefni af afmælinu stendur MM að nýrri útgáfu
Sóleyjarkvæðis, sem Helgi Bernódusson, Gunnar
Guttormsson, Árni Björnsson og Þórður Helgason
önnuðust. Bókinni fylgir hljómdiskur með upphaf-
legum flutningi á kvæðinu sem aldrei hefur komið
út áður.
A FMÆ L I S V E I S L U
í Kaldalóni í Hörpu þann 16. júní kl . 19:30