Morgunblaðið - 10.06.2017, Side 20
Salmann Tamimi, formaður Félags
múslima á Íslandi, segist vera ósátt-
ur við að Ahmad Seddeeq, trúarleg-
ur leiðtogi (ímam) Menningarseturs
múslima, sem er næststærsta félag
múslima á Íslandi, skuli hafa sett
myndband með samsæriskenningu
um eftirmál hryðjuverkaárásarinnar
á Lundúnabrú á fésbókarsíðu Menn-
ingarseturs múslima, eins og fram
kom í frétt DV 7. júní sl.
Samsæriskenningin í myndband-
inu gekk út á að einhverskonar leik-
rit sé í gangi eftir árásirnar og
myndbandið sýndi störf lögreglu og
annarra á þann hátt. Ahmad hefur
viðurkennt í samtali við DV að hafa
sjálfur sett myndbandið á síðuna.
Myndbandið hefur nú verið fjarlægt
af fésbókarsíðu Menningarseturs
múslima, en í staðinn er komin
færsla sem leggur áherslu á að félag-
ið fordæmi árásirnar og að fólk reyni
að vera yfirvegað og halda sig við rök
og staðreyndir í umræðu um málið.
„Menn verða að bera ábyrgð á því
sem þeir setja svona fram,“ segir
Salmann og er hneykslaður á að
ímam Menningarseturs múslima
hafi deilt þessu efni, ekki síst stöðu
hans vegna.
Einfaldir gætu látið blekkjast
Salmann hefur jafnframt áhyggj-
ur af því að einfalt fólk gæti látið
blekkjast.
„Félag múslima á Íslandi fordæm-
ir árásirnar og vonar að friður kom-
ist á í heiminum,“ segir Salmann, en
sendiherra Bretlands heimsótti Fé-
lag múslima á Íslandi í fyrradag og
félagið bað hann fyrir samúðarkveðj-
ur til Bretlands og til allra sem eiga
um sárt að binda vegna árásanna.
Ekki náðist í Ahmad Seddeeq eða
talsmenn Menningarseturs múslima
við vinnslu fréttarinnar.
ernayr@mbl.is
„Mjög vandræðalegt“
Salmann Tamimi ósáttur við að maður í ábyrgðarstöðu í
samfélagi múslima deili myndbandi með samsæriskenningu
Salman
Tamimi
Ahmad
Seddeeq
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2017
Jakkafötin
fyrir útskriftina
fást hjá okkur
Laugavegi 77 | 101 Reykjavík | Sími: 551 3033 Flottir
í fötum
B E C K
U O M O
Með því að velja hráefnið
af kostgæfni, nota engin aukaefni
og hafa verkhefðir fyrri tíma
í hávegum, framleiðum við
heilnæmar og bragðgóðar
sjávarafurðir.
Söluaðilar:
Hagkaup, Kostur, Melabúðin,
Iceland verslanir, Kvosin,
Nettó, Samkaup, Pure Food
Hall flugstöðinni Keflavík,
Sunnubúðin, 10-11.
Alexander Gunnar Kristjánsson
agunnar@mbl.is
Út er komin bókin Martröð með
myglusvepp eftir Stein Kárason,
umhverfis- og garðyrkjufræðing.
Í bókinni eru átta reynslusögur
frá fólki sem hefur glímt við myglu-
svepp í húsum sínum og viðbrögð og
eftirmál þess rakin. Steinn lenti
sjálfur í því að myglusveppur kom
upp á heimili hans.
„Við lentum í martröð,“ segir
hann og bætir við að myglusveppur-
inn hafi haft mikil áhrif á hann og
fjölskylduna. Á meðan á úrbótum
stóð þurfti fjölskyldan að koma sér
fyrir utan íbúðarinnar og segir
Steinn þau hafa verið sem flótta-
menn í eigin landi. Sú lífsreynsla
hafi því orðið kveikjan að ritun bók-
arinnar.
Kvillar fara á kreik
Reynslusögurnar eru keimlíkar.
Fólk flytur grandalaust inn í nýja
íbúð. Smátt og smátt fara ýmsir
kvillar að gera vart við sig, útbrot,
áreiti í öndunarfærum, þreyta og
fleira. Oft líða nokkur ár þar til fólk
áttar sig loks á hvernig er í pottinn
búið en þá er sveppurinn oft búinn
að koma sér rækilega fyrir. Tjón
getur verið verulegt.
Steinn segist til að mynda hafa
þurft að endurnýja nær alla búslóð-
ina og ráðast í gagngerar endur-
bætur á íbúð sinni. Þrátt fyrir það
hafi endursöluverð eignarinnar að
framkvæmdum loknum verið sjö
milljónum undir markaðsvirði. Alls
metur Steinn tjón fjölskyldunnar af
myglunni á þriðja tug milljóna en
húsfélagið hafi einungis tekið þátt að
litlu leyti. Tryggingafélög eru jafnan
ekki bótaskyld fyrir mygluskemmd-
um en viðraðar hafa verið hug-
myndir um að mygluskemmdir verði
færðar undir verksvið viðlagasjóðs
hins opinbera, sem bætir tjón af
völdum náttúruhamfara.
Steinn leitar fanga víða, meðal
annars hjá Íslendingi sem smitaðist
af myglusveppum í Danmörku og er
í dag öryrki. Þá segir skólastjóri
grunnskólans á Þorlákshöfn frá
sögu sinni en myglusveppur fannst
þar síðasta vetur auk þess sem sagt
er frá glímu Íslandsbanka við skað-
valdinn.
Siðleysi blasir við
Auk þess að taka fyrir reynslusög-
ur fólks fjallar Steinn almennt um
myglusveppinn, orsakir hans og af-
leiðingar. Raki er helsti valdur
myglu og sveppinn því helst að finna
í herbergjum þar sem vatn rennur;
eldhúsi, baðherbergi og þvotta-
húsum. Þak, gluggar og sprungur í
veggjum eru líka áhættusvæði.
Steinn kallar eftir að vandað sé til
verka við hönnun og byggingu húsa
og efnisval. Enn tíðkist að einangra
hús með steinull í málmgrind en þá
aðferð segir hann kolranga og ávís-
un á myglu.
Gagnrýnir Steinn einnig að engin
tilkynningaskylda sé við lýði vegna
mygluskemmda. Hann segir dæmi
um að fasteignir séu seldar án þess
að seljanda sé kunnugt um ástand
eignar en þannig reyni menn að
koma ábyrgð á ástandsskoðun yfir á
herðar kaupenda. Slíkt háttalag sé
siðlaust. Steinn brýnir fyrir fólki að
vera á varðbergi í öllum rýmum með
rennandi vatn en draga megi úr lík-
um á myglu með því að lofta vel út
reglulega.
Steinn segir mikilvægt að taka
málningarskemmdir og torkenni-
lega lykt alvarlega og leita strax til
fagmanna ef grunur leikur á um
mygluskemmd.
Í tilefni af útkomu bókarinnar
verður kynning og fræðsla í Nor-
ræna húsinu í dag, laugardag, kl.
13.30, og eru allir áhugasamir boðnir
velkomnir.
Flóttamaður í eigin landi
Reynslusögur af baráttu við myglusvepp útkomnar á bók Höfundur lenti í tugmilljóna tjóni
Morgunblaðið/Hanna
Beint úr prenti Steinn Kárason með nýútkomna bók sína.
Ljósmynd/Steinn Kárason
Vel varinn Með hlífðargalla, önd-
unargrímu og hanska yfirfer maður
búslóð sína áður en henni er fargað.
Svokallað litahlaup, eða Color Run,
fer fram í dag þar sem þátttakendur
fara 5 kílómetra leið í gegnum litríkt
litahaf í miðborg Reykjavíkur.
Að sögn Davíðs Lúthers Sigurðs-
sonar, framkvæmdastjóra hlaupsins,
er gert ráð fyrir rúmlega 11 þúsund
þátttakendum.
„Undirbúningur hefur gengið
rosalega vel, með hverju hlaupi
sjáum við atriði sem við viljum gera
betur,“ segir Davíð og bætir við að
þetta sé alltaf gríðarlega skemmti-
legt.
„Útaf velgengni okkar hérna er
búið að biðja okkur um að halda
hlaupin í Danmörku, Noregi, Finn-
landi og Færeyjum,“ segir Davíð en
auk hlaupsins í dag verður litahlaup-
ið á Akureyri þann 8. júlí og er það í
fyrsta skipti sem hlaupið er haldið
þar.
Hlaupið í dag hefst og endar í
Hljómskálagarðinum. Þess má geta
að nokkrum götum verður lokað í
miðbænum vegna hlaupsins, hægt er
að kynna sér þær á vef Color Run.
urdur@mbl.is
Litríkt litahaf í miðborginni
Búist við um 11
þúsund þátttak-
endum í Color Run
Morgunblaðið/Eggert
Litadýrð Litahlaupið verður haldið í dag í þriðja skiptið á Íslandi. Að sögn
framkvæmdastjóra hlaupsins hefur undirbúningur gengið vel