Morgunblaðið - 10.06.2017, Side 35
ILVA Korputorgi, s: 522 4500
www.ILVA.is laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18,
mánudaga - föstudaga 11-18:30
Revolve-borðstofuborð.Grá borðplata með viðarfótum. 100 x 220 cm. 119.900 kr.
Nú 79.900 kr. Framlenging 45 x 100 cm. 19.900 kr. Nú 13.900 kr. Bow-stóll.Grátt
áklæði með viðarfótum. 24.900 kr. Nú 16.900 kr.
ÚTSALAN
ER Í FULLUM GANGI
Nú 9.995 kr. Lítil. 34 x 27 cm. 11.995 kr.
Nú 6.995 kr. Perustæði seld sér.
Vita Silvia-ljósakróna.
Kopar. Stór. 45 x 45 cm. 16.995 kr.
50%AFVÖLDUMVÖRUMALLTAÐ
Revolve-borðstofuborð
Nú 79.900.
SPARAÐU 40.000
Torrent-hornsófimeð legubekk. L338 x D224 cm. 289.900 kr. Nú 199.900 kr.
30%
Paris-borðstofustóll. Hvít, grá eða
svört seta með viðarfótum. 14.900 kr.
Nú 7.450 kr.
50%
25-35%AF ÖLLUMSUMARVÖRUM
Panama-stóll. Ýmsir litir. 13.900 kr. Nú 8.900 kr.
Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2017
Fasteignasalan Grafarvogi kynnir glæsilega
eign á Heiðarvegi 9, Vestmannaeyjum
GOTT TÆKIFÆRI FYRIR FJÁRFESTA
- MÖGULEIKI Á AÐ BREYTA EIGNINNI
Í GISTIHEIMILI
Íbúðarhluti eignarinnar er 295 m2. Auk þess er verslunar-
húsnæði á jarðhæð hússins 151,9 m2 og er því heildar-
fermetratala eignarinnar um 400,4 m2. Gólfflötur er þó
meiri þar sem hluti eignar er undir súð. Þetta er eign
sem býður uppá mikla möguleika. Hægt væri að breyta
jarðhæðinni í matsölustað eða kaffihús. Hægt er að byggja
við húsið til suðurs eða þá að nýta það svæði sem fallegan
garð með sætum fyrir 50-70 manns. Ef húsinu yrði breytt í
gistiheimili væri hægt að vera með 12 herbergi í húsinu.
Nánari upplýsingar veitir
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasala Grafarvogs, s. 588 1550/863 1126
josep@fastgraf.is, www.fastgraf.is
Opið hús þriðjudaginn 13. júní á milli klukkan 13:00 og 18:00
OPIÐ
HÚS
Ég var búinn að lofa
lesendum Morgunblaðs-
ins að þeir fengju að
fylgjast með sam-
skiptum mínum við
stjórnsýsluna vegna við-
skipta við Orkuveitu
Reykjavíkur (OR), en sá
vindmylluslagur hefur
nú staðið yfir í 3+ ár.
Forsagan er sú að OR
hefur í rúm 15 ár gert
mér að greiða tvöfalt meira en aðrir í
hitakostnað fyrir sumarhús í Borg-
arfirði. Sé ég ósáttur við það hef ég
„frelsi til að fara annað“ með mín við-
skipti og þar sem OR er eini aðilinn
sem má bjóða þessa þjónustu á svæð-
inu er væntanlega átt við að ég færi
húsið út fyrir þjónustusvæði OR.
Eftir árangurslausa viðkomu hjá
Neytendasamtökunum hófst ferðalag
um stjórnsýsluna, enda réttlætir OR
gjaldtöku sína með reglugerð þaðan.
Fyrsta viðkoma var hjá umboðsmanni
Alþingis, sem vísaði á innanríkisráðu-
neytið (irr), sem vísaði á atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneyti (anr). Eftir
ítarlega – og tímafreka – gagnaöflun
og umþóttun treysti anr sér ekki til að
túlka eigin reglugerð, en vísaði á
kærunefnd lausafjár- og þjónustu-
kaupa, sem vísaði málinu frá, lofaði svo
endurupptöku vegna eigin vanreif-
unar en efndi ekki það loforð. Þá var
leitað til umboðsmanns Alþingis sem
úrskurðaði frávísun kærunefnd-
arinnar ólögmæta og sendi málið aftur
til nefndarinnar þar sem það liggur
nú.
Nú eftir 40 mánaða hringferð um
kerfið er staðan þessi:
Neytendasamtökin hafa tvívegis
vísað málinu frá – í seinna skiptið með
aðild að ákvörðun kærunefndar.
Ekkert bólar á nýjum lögum eða
reglugerð frá atvinnu- og nýsköp-
unarráðuneyti eins og þar var látið í
veðri vaka.
Umboðsmaður Alþingis hefur
endursent málið til kærunefndar og
segir frávísun ólögmæta.
Ekki er vitað til að kærunefnd sé
að fjalla um málið, hefur þó haft það á
sínu borði í rúm tvö ár –
þar af í 10 mánuði frá því
að umboðsmaður Al-
þingis mæltist til endur-
upptöku.
Atvinnuvega-
ráðherra er upplýstur
um þessi vinnubrögð
kærunefndar en sér
ekki tilefni til athuga-
semda.
Og Orkuveita
Reykjavíkur heldur
áfram að gera mér him-
inháa reikninga.
Kærunefnd lausafjár- og þjónustu-
kaupa á skilinn sérstakan kapítula í
þessari sögu. Nefndinni er ætlað að
bjóða upp á skjótvirka og ódýra leið til
að leita úrlausnar á deilum um við-
skipti og skal skila áliti innan 8 vikna
frá því að gögn liggja fyrir. Neytenda-
samtökin og Samtök atvinnulífsins til-
nefna hvor einn nefndarmann en
atvinnuvegaráðherra skipar þann
þriðja án tilnefningar.
Öll gögn þessa máls lágu fyrir þegar
í upphafi og hafði verið aflað af anr, en
samt tók það kærunefnd 8 mánuði að
vísa því frá. Nefndin lofaði síðan end-
urupptöku en stóð ekki við það. Þótt
nú séu liðnir 10 mánuðir frá því að um-
boðsmaður Alþingis snupraði nefnd-
ina, og alls rúm 2 ár frá því að hún
fékk málið fyrst á sitt borð, er þar ekk-
ert aðhafst í þessu efni svo vitað sé.
En atvinnuvegaráðherra finnst
þetta í fínu lagi.
Í þessu ströggli mínu hef ég aldrei
orðið var við að hlutaðeigandi finnist
þetta óæskileg eða óheppileg vinnu-
brögð. Hvorki kærunefnd né viðkom-
andi ráðuneyti. Hvað þá að beðist sé
afsökunar á aðgerðaleysinu. Það
mætti lesa út úr þessu ásetning til
þöggunar, en mér finnst þó líklegra að
þessir embættismenn telji sig bara
hafa mikilvægari hnöppum að hneppa
og láti hvorki landslög né reglugerðir
trufla sig við þá iðju.
Ég ætla nú samt að halda áfram að
rjúfa þessa þögn eftir því sem aldur og
heilsa leyfir. Og heilsan er enn ágæt
svo hætt er við að fleiri pistlar eigi eft-
ir að sjást um þetta efni.
Sagan endalausa um viðskipti
við Orkuveitu Reykjavíkur
Eftir Karl
Sigurhjartarson » Líklegra er að þessir
embættismenn telji
sig hafa mikilvægari
hnöppum að hneppa og
láti hvorki landslög né
reglugerðir trufla sig
við þá iðju.
Karl Sigurhjartarson
Höfundur sinnti áður ferðamálum.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.