Morgunblaðið - 10.06.2017, Blaðsíða 36
36 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2017
ORÐ DAGSINS:
Kristur og
Nikódemus.
(Jóh. 3)
Aðventkirkjan í Reykjavík | Í dag,
laugardag. Biblíufræðsla kl. 11. Guð-
þjónusta kl. 12. Ræðumaður er Jens
Danielsen. Barnastarf.
Aðventkirkjan í Vestmannaeyjum
| Í dag, laugardag. Samvera kl. 12.
Bein útsending frá Reykjavíkurkirkju.
Aðventsöfnuðurinn á Suð-
urnesjum | Í dag, laugardag. Biblíu-
fræðsla kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12.
Ræðumaður Björgvin Snorrason.
Aðventsöfnuðurinn í Hafnarfirði | Í
dag, laugardag, guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður er Guðbjartur Gestur
Andrésson. Biblíufræðsla kl. 11.50.
Barna- og unglingastarf. Umræðuhóp-
ur á ensku. Súpa og brauð eftir sam-
komu.
AKRANESKIRKJA | Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 11. Sjómaður heiðraður.
Sr. Eðvarð Ingólfsson þjónar. Sveinn
Arnar og félagar úr Kór Akraneskirkju
sjá um tónlistina. Rut Berg Guð-
mundsdóttir leikur á harmónikku.
Gengið að minnismerki sjómanna á
Akratorgi að athöfn lokinni. Minning-
arstund um týnda sjómenn við minn-
ismerkið í kirkjugarðinum kl. 10.
ÁRBÆJARKIRKJA | Sumarguðs-
þjónusta og ferming kl. 11. Petrína
Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og þjón-
ar fyrir altari. Kór Árbæjarkirkju syngur
og Guðmundur Ómar Óskarsson er
organisti. Molasopi eftir stundina.
ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Ása Lauf-
ey Sæmundsdóttir prédikar og þjónar
fyrir altari. Kammerkór Áskirkju syng-
ur. Orgelleikari er Magnús Ragn-
arsson. Heitt á könnunni í Ási eftir
messu.
ÁSTJARNARKIRKJA | Alþjóðleg
helgistund kl. 11, sem fer fram á
ensku. Margir nýbúar munu taka þátt í
henni með því að lesa ritningartexta á
sínu eigin tungumáli. Á eftir verða al-
þjóðlegar veitingar. Allir erlendir gestir,
nýbúar og flóttamenn, eru sérstaklega
velkomnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Göngu-
messa. Gengið frá Breiðholtskirkju í
Seljakirkju kl. 10. Messa í Seljakirkju
kl. 11. Akstur heim eftir kirkjukaffi.
BÚSTAÐAKIRKJA | Messa kl. 11.
Ragnar Bjarnason syngur sjó-
mannalög ásamt Kór Bústaðakirkju.
Tónlistarflutning annast Jónas Þórir
organisti, Lawrence Wheeler lágfiðlu-
leikari og Erik Wheeler sellóleikari.
Látinna sjómanna minnst. Prestur
Pálmi Matthíasson. Heitt á könnunni
eftir messu
Dómkirkja Krists konungs,
Landakoti | Messa á sunnud. kl.
8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku,
kl. 13 á pólsku, kl. 15 á litháísku (7.
maí en síðan ekki aftur fyrr en í júlí) og
kl. 18 á ensku. Messa virka daga kl.
18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16
á spænsku og kl. 18 er sunnudags-
messa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Bisk-
up Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir,
þjónar fyrir altari ásamt séra Hjálmari
Jónssyni sem einnig prédikar. Viðar
Gunnarsson syngur einsöng. Organisti
er Douglas Brotchie. Dómkórinn syng-
ur. Herdís Ágústa Linnet og Ingibjörg
Ragnheiður Linnet leika á trompet.
Áhafnarliðar varðskipanna lesa ritn-
ingarlestra.
FELLA- og Hólakirkja | Sameiginleg
gönguguðsþjónusta kirknanna í Breið-
holti. Gangan byrjar hjá Breiðholts-
kirkju kl. 10 og er guðsþjónusta kl.
11. Eftir guðsþjónustu er boðið upp á
létta hádegishressingu og síðan er
rútuferð að þeirri kirkju sem gengið
var frá.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Kvöld-
messa kl. 20. Sönghópurinn við Tjörn-
ina og Fríkirkjubandið ásamt Gunnari
Gunnarssyni organista flytja okkur
ljúfa tónlist. Stundin er í umsjón sr.
Hjartar Magna Jóhannssonar.
GARÐAKIRKJA | Sameiginleg
messa Garða- og Bessastaðasókna
kl. 11. Félagar úr kór Vídalínskirkju
syngja undir stjórn Jóhanns Baldvins-
sonar organista. Sr. Hans Guðberg Al-
freðsson prédikar og þjónar fyrir altari.
GLERÁRKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Kór
Glerárkirkju leiðir almennan söng und-
ir stjórn Valmars Väljaots. Eftir messu
verður lagður blómsveigur til minn-
ingar um drukknaða og týnda sjó-
menn.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Helgistund við naustið,
bátalægi fyrir neðan kirkjuna, kl.
10.30. Félagar úr Björgunarsveitinni
Ársæli sigla inn Grafarvoginn og taka
þátt í helgistundinni. Árni Bjarnason,
formaður Skipstjórnarmanna á Ís-
landi, flytur hugvekju, Örn Pálsson,
framkvæmdastjóri Landssambands
smábátaeiganda, flytur ritningarorð.
Þorvaldur Halldórsson syngur bæði
við bátalægið og í messunni. Séra Vig-
fús Þór þjónar fyrir altari. Kaffi og
kleinur eftir messu.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður
kl. 10, bænastund kl. 10.15, messa
kl. 11. Altarisganga. Samskot til ABC-
barnahjálpar. Messuhópur þjónar.
Kórstúlkur Selja- og Bústaðakirkju
syngja. Organisti er Ásta Haralds-
dóttir. Prestur er Ólafur Jóhannsson.
Molasopi eftir messu.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheim-
ili | Guðsþjónusta í hátíðarsal klukkan
14. Auður Inga Einarsdóttir heimilis-
prestur þjónar. Grundarkórinn leiðir
söng ungir stjórn Kristínar Waage org-
anista.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Guðsþjónusta kl. 11. Prestur Leifur
Ragnar Jónsson, tónlistarflutningur í
umsjá Ásbjargar Jónsdóttur og Sig-
urðar Helga Oddssonar píanóleikara.
Kirkjuvörður er Lovísa Guðmunds-
dóttir. Kaffisopi eftir messu.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa
í Víðistaðakirkju kl 11.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11.
Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt sr. Þorvaldi
Karli Helgasyni. Hópur messuþjóna
aðstoðar. Sögustund fyrir börnin. Fé-
lagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju
syngja. Organisti er Björn Steinar Sól-
bergsson. Laugardag kl. 17 og sunnu-
dag kl. 17 verður H-moll messa eftir
J.S. Bach flutt.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur er Eiríkur Jóhannsson. Org-
anisti er Kári Allansson.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Sjó-
mannadagurinn kl. 11. Upphaf sum-
arsamstarfs þjóðkirkjusafnaðanna í
Kópavogi. Sr. Karen Lind Ólafsdóttir,
sr. Sigurður Arnarson og sr. Guð-
mundur Karl Brynjarsson þjóna. Org-
anisti er Guðný Einarsdóttir. Félagar úr
Kór Hjallakirkju leiða safnaðarsöng-
inn.
Jóhannes Hilmarsson, yfirhúsvörður
hjá Kópavogsbæ og fyrrverandi sjó-
maður, flytur ræðu.
Hjálparsveit skáta í Kópavogi verður
með bíl við Hjallakirkju og hvetur alla
félagsmenn til að mæta.
HÓLANESKIRKJA Skagaströnd |
Guðsþjónusta laugardag kl. 11. Kór
sjómanna syngur undir stjórn Bene-
dikts Blöndal og Skarphéðins Ein-
arssonar, þeim til liðs er stórhljóm-
sveit. Ræðukona er Sigríður
Gestsdóttir. Bryndís Valbjarnardóttir
þjónar fyrir altari. Á eftir guðsþjónustu
verður gengið að minnisvarðanum um
sjómenn frá Skagaströnd sem hafið
hefur tekið og lagður þar blómsveigur.
HRAFNISTA Hafnarfirði | Hátíðar-
guðsþjónusta í Menningarsalnum kl.
10.45. Ræðumaður er Bylgja Bald-
ursdóttir kennari. Ritningarlestra lesa
Jón Kristinn Óskarsson og Ingibjörg
Hinriksdóttir. Einsöngur Kristrún Frið-
riksdóttir. Hrafnistukórinn syngur. Org-
anisti er Kristín Waage. Meðhjálpari er
Guðmundur Ólafsson. Sr. Svanhildur
Blöndal þjónar fyrir altari.
HRAFNISTA Reykjavík | Hátíðar-
guðsþjónusta kl. 13.30 í sam-
komusalnum Helgafelli. Ræðurmaður
dagsins er Gísli Gíslason, hafnarstjóri
í Reykjavík. Ritningarlestra les Sveinn
H. Guðmarsson, upplýsingafulltrúi
Landhelgisgælsunnar. Einsöngur Vig-
dís Sigurðardóttir. Félagar úr Kamm-
erkór Áskirkju syngja. Organisti er-
Magnús Ragnarsson. Svanhildur
Blöndal þjónar fyrir altari.
HVAMMSKIRKJA í Norðurárdal | Á
þjóðhátíðardaginn 17. júní verður
fermingarmessa í Hvammskirkju kl.
11. Organisti: Viðar Guðmundsson.
Prestur: Elínborg Sturludóttir.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sunnu-
daginn 11. júní 2017. Almenn sam-
koma með lofgjörð og fyrirbænum.
Ólafur H. Knútsson prédikar. Kaffi og
samfélag eftir stundina.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Messa í Du-
us-húsi klukkan 11. Þá verður frum-
fluttur nýr sjómannasálmur eftir Arnór
Vilbergsson organista og sr. Gunnþór
Ingason. Liðsmenn úr kór Keflavík-
urkirkju leiða söng undir stjórn Arnórs.
Prestur er Eva Björk Valdimarsdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Jóhanna Gísladóttir þjónar.
Organisti er Sólveig Anna Aradóttir.
Aðalsteinn Guðmundsson kirkjuvörður
aðstoðar við helgihaldið. Kaffi og
meðlæti eftir stundina.
LAUGARDÆLAKIRKJA í Flóa |
Messa kl. 11. Söngkór Villingaholts-
og Hraungerðissókna syngur undir
stjórn Inga Heiðmars Jónssonar org-
anista. Prestur er Ninna Sif Svav-
arsdóttir. Að messu lokinni verður
haldinn aðalsafnaðarfundur Laug-
ardælasafnaðar.
LAUGARNESKIRKJA | Kvöldmessa
kl. 20. Arngerður María Árnadóttir org-
anisti leiðir tónlistarflutning. Davíð Þór
Jónsson þjónar fyrir altari og prédikar.
Þriðjudagur 13. júní kl. 16. Hásal-
urinn, Hátúni 10. Helgistund með sr.
Davíð Þór og Hjalta Jóni.
LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11 leidd af Rut G. Magnúsdóttur,
djákna. Kirkjukór Lágafellssóknar
syngur og leiðir söng undir stjórn Kjart-
ans Jósefssonar Ognibene, organista.
Kirkjuvörður er Hildur Backmann.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta kl. 20.
Tónlistina annast Óskar Einarsson og
Áslaug Helga Hálfdánardóttir. Guð-
mundur Karl Brynjarsson þjónar.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar
úr Kór Neskirkju syngja. María Kristín
Jónsdóttir leikur á orgelið. Prestur er
Skúli S. Ólafsson. Samfélag og kaffi-
sopi á Torginu eftir messu.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Göngu-
guðsþjónusta laugardag kl. 9. Pétur
þjónar fyrir altari og liðsmenn úr Gra-
duale Nobili syngja undir stjórn org-
anistans Árna Heiðars Karlssonar.
Ólafur Kristjnsson tekur á móti kirkju-
gestum. Lesmessa sunnudag kl. 11.
SAFNKIRKJAN í Árbæjarsafni |
Messa kl. 14. Sigrún Steingrímsdóttir
organisti stjórnar almennum safn-
aðarsöng. Kristinn Ágúst Friðfinnsson
prédikar og þjónar fyrir altari.
SALT kristið samfélag | Samkoma
kl. 17 í Kristniboðssalnum. Ræðu-
maður Margrét Jóhannesdóttir. Túlkað
á ensku. Barnastarf.
SELJAKIRKJA | Gönguguðsþjónusta
Breiðholtssafnaðanna, gengið frá
Breiðholtskirkju kl. 10 til Seljakirkju í
messu kl. 11. Bryndís Malla Elídóttir
þjónar og Kór Seljakirkju leiðir almenn-
an safnaðarsöng. Boðið upp á létta
hádegishressingu að guðsþjónustu
lokinni og rútuferð til baka að Breið-
holtskirkju.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur er Bjarni Þór
Bjarnason. Organisti er Bjarni Þór Jón-
atansson. Guðrún Lóa Jónsdóttir leiðir
almennan safnaðarsöng. Veitingar í
anda sjómannadagsins.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa
kl. 11. Egill Hallgrímsson sókn-
arprestur annast prestsþjónustuna.
Organisti er Jón Bjarnason.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Sjómannadagurinn 11. júní: Minning-
arstund kl. 10.45 við altari sjómanns-
ins. Blómsveigur lagður að minn-
ismerkinu.
Sjómannadagsmessa kl. 11. Kór Víði-
staðasóknar syngur undir stjórn Krist-
ínar Jóhannesdóttur. Prestur er Bragi
J. Ingibergsson.
ÞORLÁKSKIRKJA | Sjómannadags-
messa kl. 11. Blómsveigur lagður að
minnismerki. Baldur Kristjánsson og
Guðmundur Brynjólfsson þjóna fyrir
altari. Organisti er Ester Ólafsdóttir.
Kór Þorlákskirkju.
Morgunblaðið/Sigurður ÆgissonStóradalskirkja.
✝ Jóhann Vil-hjálmur Vil-
bergsson fæddist á
Eyrarbakka 30.
maí árið 1931.
Hann lést á heimili
sínu 1. júní 2017.
Foreldrar hans
voru Vilbergur Jó-
hannsson, bifreiða-
stjóri og sjómaður,
f. 23.3. 1899, d.
3.7. 1939, og Ragn-
heiður Guðmunda Ólafsdóttir
húsfreyja og verkakona, f. 1.3.
1906, d. 9.6. 1998.
Jóhann kvæntist Auði Krist-
jánsdóttur ráðskonu, frá Felli í
Biskupstungum, f. 1.10. 1932,
þann 26.12. 1963.
Börn þeirra eru Kjartan, f.
17.2. 1964, kvæntur Steinunni
Bjarnadóttur, börn þeirra eru
Auður, Ragnheiður, Sigrún og
Jóhann. Agnar, f. 17.2. 1964, í
sambúð með Margréti Gunn-
arsdóttur. Börn þeirra eru Æv-
ar, Björg og Eyrún.
Guðbjörg Jóhannsdóttir, f.
21.1. 1966, gift Grími Guð-
mundarsyni. Börn þeirra eru
Loftur Óskar, Jón-
ína Sigríður, Auð-
ur Hanna og Lauf-
ey Ósk.
Barnabarnabörn
Jóhanns eru Bjarn-
ey Birta, Róbert
Arnar, Breki, Kar-
en Lilja, Guðbjörg,
Hildur Eva, Katla
Björk og Þorgeir
Atlas.
Jóhann fæddist
á Eyrarbakka og ólst þar upp.
Hann stundaði sjómennsku frá
unglingsaldri, en vann við línu-
lagnir hjá Rafveitunum á
sumrin. Hann flutti að Felli ár-
ið 1963 og tók þar síðar við
búinu, en stundaði þá vetrar-
vertíðir í mörg ár eftir það.
Starfaði síðar í nokkur ár í
Límtré á Flúðum, eftir að það
tók til starfa. Var hann sund-
laugarvörður í Reykholtslaug
uns hann lét af störfum vegna
aldurs.
Útför Jóhanns fer fram í
Skálholtsdómkirkju í dag, 10.
júní 2017, kl. 14. Jarðsett verð-
ur í Haukadalskirkjugarði.
Afi, elsku afi minn.
Orð fá því ekki lýst hvað það
er sárt að setjast niður og
skrifa þessa minningargrein
Þú fórst svo óvænt frá okkur,
við sem ætluðum að gera svo
margt saman í sumar. Taka
fleiri föstudagsbíltúra með Guð-
björgu sem fannst alltaf svo
mikið sport að fara í langafabíl,
og sagði í hvert skipti, ef bíllinn
var úti, að hana langaði sko að
fara í langafabíl og keyra. Þið
höfðuð svo gaman af hvort
öðru, mest fannst henni gaman
þegar þú tókst í nefið og gátuð
þið hlegið mikið af því. Eins
þegar við komum til þín á af-
mælisdaginn þinn síðasta og
færðum þér ís í tilefni hans þá
var hún ekki alveg til í að leyfa
þér einum að eiga afmæli, hún
vildi líka, og söng síðan afmæl-
issönginn hátt og skýrt aftur og
aftur. Það fannst þér gaman.
Og alltaf áttir þú til mandarín-
ur í ísskápnum því þú vissir að
það var hennar uppáhald.
Elsku afi, takk fyrir allt, þú
varst einstakur. Vildir og gerð-
ir allt fyrir mann og taldir það
ekki eftir þér.
Ég sakna þín sárt, og ég veit
fyrir víst að það var tekið vel á
móti þér þarna uppi.
Hvíldu í friði, elsku afi minn.
Þér friður af jörðu fylgi nú
og friðurinn himni frá.
Og lækjanna friður sé með þér
og friður um höfin blá.
Djúp kyrrð komi yfir þig,
Guðs frið gefi Drottinn þér.
(Sálmur 895.)
Þín
Ragnheiður.
Hann mágur minn, Jóhann
V. Vilbergsson, er látinn, 86 ára
að aldri. Skyndilegt andlát
kemur alltaf á óvart, ekki síst
þegar um jafnaldra er að ræða.
Jóhann fæddist á Helgafelli á
Eyrarbakka, sonur Ragnheiðar
Ólafsdóttur og Vilbergs Jó-
hannssonar. Á Eyrarbakka var
hann í uppvextinum venjulega
kallaður Jói á Helgafelli, en
löngu síðar, þegar hann rúm-
lega þrítugur fluttist upp í
Biskupstungur, kvæntist og
gerðist bóndi á Felli, varð hann
auðvitað Jói á Felli. Jóhann var
fjórða barn þeirra hjóna, en
systkini hans eru Karen, f.
1926, Sigurður, f. 1927, dó í
frumbernsku, Ólafur, f. 1929,
Ásta Þórunn, f. 1932, og Sigríð-
ur Vilborg, f. 1939. Þau eru öll
látin nema Sigríður Vilborg.
Það vita víst flestir sem
fæddust beint inn í heims-
kreppuna miklu, að lífið var
ekki eintómur dans á rósum.
Átta ára gamall mátti hann sjá
á eftir föður sínum í gröfina.
Nærri má geta að erfitt hefur
verið að sjá fyrir fimm börnum
á þessum tíma fyrir ekkju, 33
ára, svo unga að ekkjubætur
voru ekki tiltækar í þá daga
fyrir svo ungar ekkjur. Allt
bjargaðist samt, en ung að aldri
fóru börnin að hjálpa til, eins
og títt var þá. Níu ára gerðist
Jóhann kúasmali og snúninga-
strákur hjá Eyþóri Guðjónssyni
á Skúmsstöðum og var hjá hon-
um tvö sumur, síðan var hann í
sveit á sumrin, m.a. á Brúna-
stöðum hjá Ágústi Þorvalds-
syni. Hann fór ungur til sjós,
eins og strákar gerðu sem ólust
upp við sjávarsíðuna, og fyrstu
vertíðina var hann hjá Jóhanni
Bjarnasyni á Gunnari, en 1952
kaupir hann með félögum sín-
um 26 lesta bát, Faxa ÁR 25,
og var formaður á honum
næstu sjö vetrarvertíðir og
farnaðist vel, var aflakóngur á
fyrstu vertíðinni sem skipstjóri.
Jóhann vildi helst vera á landi á
sumrin, þó að hann reyndi bæði
togara- og farmennsku. Mörg
sumur vann hann við línulagnir
hjá Rarik í vinnuflokki þeirra
feðga, Hannesar Andréssonar
og Hannesar Hannessonar, og
eitt sumarið var ráðskona hjá
þeim, Auður Kristjánsdóttir frá
Felli, sem varð hans lífsföru-
nautur í löngu og farsælu
hjónabandi. Þá settust þau Jó-
hann og Auður að búi á Felli, í
fyrstu með föður hennar, en
tóku svo alfarið við búinu,
byggðu nýtt íbúðarhús og end-
urnýjuðu önnur. Jóhann skildi
þó ekki alfarið við sjóinn því
hann var margar vetrarvertíðir
hjá Guðmundi Friðrikssyni á
Friðriki Sigurðssyni. Alls stað-
ar fékk Jóhann gott orð, enda
góður verkmaður, hæglátur,
traustur en lét ekki mikið yfir
sér, vinur vina sinna og kunni
vel að gleðjast, þegar svo bar
undir. Á Felli fæddust þeim
þrjú mannvænleg börn og var
oft gestkvæmt á heimili þeirra,
enda húsbændurnir góðir heim
að sækja. Síðustu árin bjuggu
þau í Reykholti og þar gerðist
Jóhann sundlaugarvörður um
hríð. Í starfi eldri borgara kom
fram þvílíkur völundur Jóhann
var og handlaginn. Eftirlifandi
eiginkonu hans, sem dvelur nú
að Lundi á Hellu, börnum Jó-
hanns, barnabörnum og barna-
barnabörnum sendum við
„Helgafellsafleggjarar“ okkar
dýpstu samúðarkveðjur.
Óskar Magnússon.
Jóhann Vilhjálmur
Vilbergsson
Minningar