Morgunblaðið - 10.06.2017, Blaðsíða 40
40 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2017
✝ Vilborg Frið-jónsdóttir
fæddist 28. janúar
1925 á Bjarnastöð-
um í Mývatnssveit.
Hún lést á Hvammi,
heimili aldraðra, á
Húsavík 31. maí
2017.
Foreldrar henn-
ar voru Friðjón
Jónsson, f. 15. októ-
ber 1871, d. 17. jan-
úar 1962, og Rósa Þorsteins-
dóttir, f. 24. september 1895, d.
25. september 1989. Systur
hennar voru Ingibjörg, f. 9.
október 1919, og Þóra, f. 31.
október 1922.
Maður Vilborgar var Arn-
ljótur Sigurðsson bóndi á Arn-
arvatni, f. 23. júní 1912, d. 15.
maí 2001. Börn þeirra: 1) Örlyg-
ur, f. 20.desember 1950, kona
hans Anna Ólafsdóttir, f. 30.
nóvember 1954, börn þeirra eru;
a) Hrafnhildur, hennar maður
Bergur Bragason. Þau eiga tvö
börn: Braga og Önnu, sonur
Hrafnhildar, Hlynur Hreinsson.
b) Erlingur Arnþór, kona hans
Inga Kristín Vil-
bergsdóttir, börn
þeirra: Anna Lilja
og Örlygur Vil-
berg. Börn Ingu:
Reimar, Júlía Fann-
ey og Ellý Sæunn.
c) Einar, eiginkona
hans Magnea Ólöf
Finnbogadóttir.
Sonur þeirra er
Finnbogi Þór, son-
ur Magneu er
Hörður Ingi. 2) Ingigerður, f.
27. febrúar 1959, maður hennar
Jóhann Böðvarsson, f. 2. októ-
ber 1957. Börn þeirra: Jóhanna
Björg, Arnljót Anna og Friðjón.
3) Kolbjörn, f. 2. mars 1960.
Vilborg gekk í farskóla í Mý-
vatnssveit og var einn vetur á
Alþýðuskólanum á Laugum.
Hún var félagi í Umf. Mývetn-
ingi og einnig í Slysavarna-
deildinni Hring í Mývatnssveit
og tók virkan þátt í störfum
þessara félaga.
Útför Vilborgar fer fram frá
Skútustaðakirkju í dag, 10. júní
2017, og hefst athöfnin klukkan
14.
Nú hefur Villa tengdamóðir
mín kvatt þetta jarðlíf.
Við þessi tímamót reikar hug-
urinn til baka. Hún og hennar
heimili áttu stóran þátt í að
móta mig og mína lífssýn því ég
var bara 16 ára krakkakjáni
þegar ég kom inn í þessa fjöl-
skyldu sem tengdadóttir og var
strax tekið sem einu barnanna.
Villa var skemmtileg kona og
vinamörg og þar skipti aldur
engu máli. Hún hafði sterkar
skoðanir á málefnum, allavega
við eldhúsborðið, en hún var lít-
ið fyrir að láta á sér bera eða að
hafa sig í frammi. Ég hef ekki
komið inn á heimili þar sem
gestagangur var meiri og þar
sem meiri gestrisni ríkti, allir
ávallt velkomnir og Villa bar
fram veitingar. Oft var glatt á
hjalla, rædd stjórnmál líðandi
stundar, farið með vísur og jafn-
vel ort. Villa var góð í að gera
vísur og reyndist henni það auð-
velt en ekki flíkaði hún því og
fyrir Ungmennafélagið var ým-
islegt samið af henni og Hildi
vinkonu hennar frá Gautlöndum,
sem svo var flutt fyrir sveitung-
ana á samkomum. Börnin mín
áttu yndislegt athvarf hjá ömmu
og afa og fyrir það er ég þakk-
lát. Hún spilaði við þau, las og
fór með þulur en í því var hún
snillingur og Ríkisútvarpið tók
upp flutning hennar á þeim og
því geta afkomendur hennar
hlustað á ismus.is og heyrt rödd
hennar um ókomna tíð.
Ég kveð mæta og góða konu
með þökk fyrir allt.
Anna Ólafsdóttir.
Elsku amma mín.
Þegar ég hugsa um barnæsku
mína þá koma ótal minningar í
hugann sem flestar eru tengdar
þér, afa og sveitinni. Alltaf nóg
að gera og ég upptekin með
ykkur í sauðburði og ýmsum
sveitaverkum. Það eru svo mikil
forréttindi að hafa fengið að
vera hjá ykkur afa og hafa feng-
ið að upplifa svo ótrúlega mikið
sem mörg börn í dag hafa ekki
tækifæri til að kynnast. Dvöl
mín í sveitinni er böðuð eins
konar ævintýraljóma og minn-
ingarnar um hestinn minn, kind-
urnar, ána og allt fólkið sem ég
hef hitt gegnum árin eru mér
svo kærar. Ekki fyrir alls löngu
voru ég og samstarfskonur mín-
ar beðnar um á starfsmanna-
fundi að hugsa um barnæskuna
og velta fyrir okkur hvað hefði
mótað okkur og gert okkur að
þeim sem við erum í dag. Mér
varð strax hugsað til þín í sveit-
inni og sá mig fyrir mér hlaup-
andi berfætta alsæla í sólinni.
Margar af samstarfskonum mín-
um kærðu sig ekki um að hugsa
til baka til barnæskunnar því
minningarnar voru það sárar að
þær vildu helst gleyma þeim.
Margar af þessum konum höfðu
flúið frá heimalandi sínu og
höfðu hafið nýtt líf og lagt hið
gamla að baki sér. Ég man að
ég hugsaði hversu ótrúlega
heppin ég væri að hafa fengið að
upplifa það að hafa verið
áhyggjulaus og hamingjusamt
barn í sveitinni hjá ykkur afa.
Þú hefur átt mikinn þátt í því að
gera mig að þeirri manneskju
sem ég er í dag, amma. Á hverju
kvöldi settist þú á rúmstokkinn
hjá mér og last fyrir mig eða
sagðir mér vísur og sögur, sögur
sem maður heyrir ekki í dag.
Gömlu brúnu ævintýrabókina,
sem þú last fyrir mig, hef ég
sem betur fer fundið í nýrri út-
gáfu og les fyrir mín börn sem
elska hana. Þessa sömu bók hef
ég líka fundið í Noregi og lesið
afturá bak og áfram fyrir börnin
sem ég vinn með og segi þeim
að þessi ævintýri hafi amma mín
lesið fyrir mig þegar ég var lítil.
Ég man líka að mér þótti það
svo notalegt að á kvöldin þvoðir
þú á mér tærnar með heitum
þvottapoka því ég var alltaf ber-
fætt og óhrein eftir daginn. Það
var svo notalegt og þetta sama
geri ég við mín börn. Mér hefur
alltaf fundist við hafa eitthvað
sérstakt á milli okkar, amma.
Við höfum alltaf verið mjög nán-
ar og getað spjallað um allt milli
himins og jarðar. Hvort sem það
er um börnin mín, slúður úr
sveitinni eða nýjasta sjónvarps-
þáttinn. Þú fylgdist svo sann-
arlega vel með því sem var að
gerast í samfélaginu og þú hafð-
ir skoðanir á flestu. Ég vildi
óska að við hefðum búið nær
hvor annarri núna síðustu ár, en
svona er lífinu háttað hjá mörg-
um í dag. Mér er mjög minn-
isstætt þegar við hittumst í síð-
asta sinn. Þá kom ég í heimsókn
til þín í sveitina og áttum við
ógleymanlega og dýrmæta
stund saman. Við spjölluðum,
hlógum og skemmtum okkur
langt fram á nótt eins og okkur
einum var lagið. Þegar að
kveðjustund kom daginn eftir
vissi ég að þetta væri mögulega
í síðasta skipti sem við myndum
vera saman. Það var því erfitt
að kyssa þig og faðma í síðasta
sinn vitandi að næst þegar ég
kæmi til Íslands værir þú
kannski ekki þar.
Þakka þér fyrir að vera þú,
elsku amma.
Þín
Hrafnhildur (Hrabba).
Í dag kveðjum við Villu
frænku.
Frá unga aldri þótti okkur
öllum óskaplega vænt um hana
því við fundum hversu hlýjan
hug hún bar til okkar systk-
inanna.
Í barnæsku skipaði hún stór-
an sess í lífi okkar. Um hver jól
áttum við t.d. öll pakka frá
henni undir trénu. Sitthvað
leyndist í þeim en alltaf eitthvað
spennandi og oftar en ekki jóla-
skraut til að hengja á tréð.
Eftir að við urðum fullorðin
hélst sambandið þótt heimsókn-
ir yrðu stopulli. Alltaf fengum
við þó fréttir af henni í gegnum
ömmu en þær heyrðust nánast
daglega meðan amma lifði.
Við þökkum fyrir vináttu og
hlýhug alla tíð. Fjölskyldunni
vottum við samúð okkar.
Grétar, Inga Arnhildur og
Elva.
Vilborg
Friðjónsdóttir
Mig langar til að
minnast góðrar
vinkonu minnar og
samstarfsfélaga til margra ára,
Guðfríðar Guðmundsdóttur, eða
Fríðu eins og hún var alltaf
kölluð. Hún kvaddi þetta jarð-
neska líf nokkuð óvænt um
miðjan maí, fáum dögum áður
en undirrituð fór af landi brott
og gat því ekki fylgt henni síð-
asta spölinn og þykir mér það
afar leitt. Fríða var tryggur
Guðfríður Möller
Guðmundsdóttir
✝ GuðfríðurMöller Guð-
mundsdóttir fædd-
ist 27. maí 1942.
Hún varð bráð-
kvödd 15. maí 2017.
Útför Guðfríðar
fór fram 26. maí
2017.
vinur vina sinna
með ríka réttlætis-
kennd. Fríða hafði
gaman af söng og
skemmtilegum
textum og gengum
við saman í þann
skemmtilega hóp
Samstillingu, sem
hittist á mánudags-
kvöldum og sung-
um saman fram
eftir kvöldi. Ég vil
þakka þessari góðu vinkonu
samveruna hvort heldur var í
húsbíl á ferðalagi þar sem sleg-
ið var upp grillveislu að hætti
Fríðu eða bara í venjulegri
heimsókn. Að lokum viljum við
hjónin votta Birni og fjölskyldu
okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Minning þín lifir elsku vinkona.
Lilja Magnúsdóttir.
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Útfararstofa kirkjugarðanna
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Við önnumst alla þætti undir-
búnings og framkvæmd útfarar
ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og
umhyggju að leiðarljósi
og af faglegum metnaði.
Lára Árnadóttir,
skrifstofustjóri
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir
síðan 1996
ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
KOLBRÚN ÓLAFSDÓTTIR,
Grandavegi 47, Reykjavík,
lést mánudaginn 29. maí. Útför fer fram í
Dómkirkjunni miðvikudaginn 14. júní
klukkan 15.
Áslaug Stefánsdóttir Einar Örn Kristinsson
Ingibjörg Þórðardóttir
Einar Baldvin Stefánsson Ragnhildur Steinbach
barnabörn og langömmubörn
Kæru sveitungar, vandamenn og vinir nær
og fjær,
PÁLMAR ÞORGEIRSSON
á Flúðum.
Hlýjar hugsanir og bænir ykkar hjálpa okkur
í sorginni og í gegnum erfiða tíma. Með
þakklæti og góðum óskum förum við út í sumarið.
Til minningar um Pálmar Þorgeirsson viljum við benda á söfnun
fyrir sjálfvirkum hjartahnoðara sem Björgunarfélagið Eyvindur
stendur fyrir núna. Reikningsnúmer 0325-13-30138, kt.
460100-2590.
Ragnhildur Lára Bryndís
Rúnar Svavar Geir
og fjölskyldur
Svava Pálsdóttir og stórfjölskyldan öll
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
ALBERT GUÐLAUGSSON,
lést á dvalarheimilinu Jaðri Ólafsvík,
fimmtudaginn 8. júní.
Útförin fer fram frá Ingjaldshólskirkju
föstudaginn 16. júní klukkan 14.
Guðlaugur Jakob Albertsson Margrét Magnúsdóttir
Lára K. Albertsdóttir Kenneth Snider
Þröstur Albertsson Sóley Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
FALLEGIR LEGSTEINAR
Verið velkomin
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Á GÓÐU
VERÐI
Hugheilar þakkir til allra þeirra sem sýnt
hafa okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför
DÓRU NORDAL
Jóhannes Nordal og fjölskylda
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ERNU MARGRÉTAR
JÓHANNESDÓTTUR,
Kirkjubæjarbraut 2,
Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hraunbúða í Vest-
mannaeyjum og félagskonum í Oddfellow-stúkunni Vilborgu í
Vestmannaeyjum fyrir ómetanlega aðstoð og sýnda virðingu.
Guðrún Sveinbjörnsdóttir Gunnlaugur Claessen
Guðbjörg Sveinbjörnsdóttir Sigurður V. Vignisson
Egill Sveinbjörnsson Guðný Þórisdóttir
Ásdís I. Sveinbjörnsdóttir Kristján Þ. Jakobsson
barnabörn og barnabarnabörn
Hjartans þakkir til ættingja og vina fyrir
auðsýnda samúð og styrk við andlát og
útför ástkærs eiginmanns míns, sonar,
föður og afa,
ÓMARS BRAGA BIRKISSONAR.
Kærar þakkir til utanríkisþjónustu Íslands í
Washington og flugfélagsins WOW air fyrir ómetanlega aðstoð.
Helga Sigríður Harðardóttir Steffensen
Birkir Baldvinsson Guðfinna Guðnadóttir
börn og barnabörn