Morgunblaðið - 10.06.2017, Page 42
42 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2017
Smáauglýsingar
Bækur
Bækur til sölu
Hæstaréttardómar frá 1920-
1966 IB 40 bækur., Úlfljótur
1947-1970 IB 7 bækur., Íslensk
stjórnlagafræði L.B. 1913 ób.,
Skotveiðar í íslenskri náttúru.,
Horfnir góðhestar 1-2., Einföld
Landmæling, Björn Gunnlaugs-
son 1868 ób., Biblía 1859
Reykjavík., Saga Jörundar
Hundadagakonungs 1892 óbmk.
V - Skaftfellingar 1-4., Vestur
Skaftfellingar og íbúar hennar
óbmk. Jeppabókin., Byggðir og
bú sþ 1963., Ættir Austfirðinga
1-9., Hrakningar á Heiðarvegum
1-4., Sögur herlæknisins 1-6
ibmk., Sáðmenn Steinar Sigur-
jónsson., Saga Vestmannaeyja
1-2., Hvað er bak myrkur lokaðra
augna., Lestrarbók handa alþýðu
á Íslandi 1874., Austantórur 1-3.,
Inn til fjalla 1-3., Dýrafræði- og
steinafræði Benedikts Gröndal.,
Húsabætur á sveitabæjum
s.j.1898., Kirkjuritið 1-23 ár,
glæsiband. Vesturfaraskrá.,
Krossaætt 1-2., Kortasaga
Íslands 1-2., Íslensk myndlist 1-
2., Bréf til Láru tölusett áritað.
Upplýsingar í síma
898 9475.
Húsnæði óskast
Þýska sendiráðið óskar eftir
4ja herb. íbúð til leigu í fjögur ár frá
15.08.2017 í Reykjavík eða nágrenni,
helst m/bílskúr-skýli.
Uppl. vinsamlegast í síma 530 1100
og á info@reykjavik.diplo.de
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Rotþrær og heitir pottar
Rotþrær-heildarlausnir með
leiðbeiningum um frágang.
Ódýrir heitir pottar-leiðbeiningar
um frágang fylgja.
Borgarplast.is,
sími 5612211, Mosfellsbæ.
Námskeið
Professional Personal-
and Executive Business
Coaching
for organisations and private
persons. Highly qualified coach
with many years of experience in
Leadership Development, Burn-
out Coaching, HR-Consulting und
Life Coaching from Germany, will
accompany you with empathy,
crystal clear perception and pro-
fessional expertise.
Absolute confidentially is self-
evident. There is a way!
Netfang: info@pconsultant.com
Til sölu
Þjónusta
Háþrýstiþvottur,
& sandblástur
Alhreinsun/ Strípun á
t.d. stein, múr, stáli og fl.
Mikil reynsla, öflug tæki.
S. 860 2130
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
LOKAÐ 6. til 20. júní
Ýmislegt
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
Húsviðhald
VIÐHALD
FASTEIGNA
Lítil sem stór verk
Tímavinna eða tilboð
℡
544 4444
777 3600
jaidnadarmenn.is
johann@2b.is
JÁ
Allir iðnaðarmenn
á einum stað
píparar, múrarar, smiðir,
málarar, rafvirkjar
þakmenn og flísarar.
Hreinsa
þakrennur
ryðbletta þök og tek
að mér ýmis smærri
verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Kennsla
Fagleg einkakennsla
fyrir nemendur og fullorðna í
þýsku og rússnesku kennt af x
málfræðing (móðurmál þýska)
með margra ára reynslu í
kennslu. Kennt í litlum hópum
eftir samkomulagi. Þýska: öll stig
(byrjenda- til viðskiptaþýska);
rússneska: byrjendur – til lengra
komin. 4500 kr. p/ kennslustund.
languagecourses@mail.com
mbl.is
alltaf - allstaðar
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Tengdafaðir
minn, Einar Sturlu-
son, söngvari og
söngkennari, fædd-
ist 10. júní árið 1917.
Foreldrar hans voru
Sturla Einarsson frá
Jarlsstöðum í Bárð-
ardal og bóndi á
Fljótshólum í Gaul-
verjabæjarhreppi
og Sigríður Einars-
dóttir frá Hæli í
Gnúpverjahreppi. Sturla vann
það afrek í upphafi síðustu aldar
að ganga einsamall úr Bárðardal
þvert yfir hálendið til að fastna
sér stúlku á Suðurlandi. Einar var
elstur sjö systkina og ólst upp á
Fljótshólum. Þar á bæ var tónlist í
hávegum höfð, hljóðfæri fyrir
hendi og mikið sungið og var það
án efa kveikjan að tónlistarferli
Einars. Sturla faðir hans lék á
orgel og amma hans, Jóhanna
Sigursturludóttir, lék á fiðlu. Ein-
ar fór sextán ára í Íþróttaskólann
í Haukadal og var þar í tvö ár. Að
því námi loknu flutti hann til
Reykjavíkur, fór í gagnfræða-
skóla og gekk í Iðnaðarmanna-
kórinn. Þá sótti hann söngtíma
hjá Sigurði Birkis og Pétri Jóns-
syni. Einar fékk í vöggugjöf ein-
staklega ómþýða og fallega ten-
órrödd sem lék sér að háa c-inu
allt fram á níræðisaldur.
Hann fór ungur utan til að
nema söng við Konunglegu tón-
listarakademíuna í Stokkhólmi og
komst í söngnám til eins virtasta
söngkennara og söngvara tónlist-
arakademíunnar, Josephs Hislop.
Þar var hann m.a. samskóla Birg-
it Nilsson og Nicolai Gedda, sem
síðar lögðu óperuheiminn að fót-
um sér.
Hislop bauð honum að syngja í
óperukórnum í Stokkhólmi og
sömdu þeir um að greiðslan færi
upp í námskostnaðinn sem var
hentugt fyrir báða. Þá var verið
að færa upp Cavalleria Rusticana
og I Pagliacci. Tenórinn sem söng
í Cavalleria var Einar Andersen,
en hann tók við hlutverkinu af
Jussi Björling. Einar bjó hjá And-
erson um tíma og átti eftir að
kynnast fleiri stjörnum í óperunni
í gegnum velgjörðarmann sinn,
Einar Anderson. Þeirra á meðal
var Jussi Björling sem var talinn
Einar Sturluson
einn besti tenór
heims á þeim tíma.
Einar söng heilt
prógramm af ís-
lenskum lögum í
sænska útvarpið og
undirleikarinn var
Páll Kr. Pálsson sem
einnig var við nám í
Stokkhólmi.
Björt framtíð
virtist blasa við Ein-
ari þegar hann að
námi loknu hóf feril sinn sem ein-
söngvari. Það var því mikill missir
fyrir bæði hann sjálfan og okkur
hin þegar Einar veiktist af astma,
sem að miklu leyti batt enda á
söngferil hans áður en hann hófst
í raun og veru. Áður hafði Einar
þó náð að syngja við óperuhúsið í
Ósló og í óperunni Rigoletto í
Þjóðleikhúsinu 1951, auk þess
sem hann kom fram á einsöngs-
tónleikum og með kórum á næstu
árum þegar heilsan leyfði. Þegar
Einar var kominn á þroskaðan
aldur hvarf astminn og þá beið
hans röddin með sínum gamla
tærleika og krafti og háa c-ið
flaug honum léttilega úr hálsi.
Einar starfaði við umönnun
aldraðra á heilabilunardeild á elli-
heimilinu Grund í næstum hálfa
öld. Á slíkri deild virðist vistin oft
vera heldur dauf og dapurleg. En
á vaktinni hjá Einari var sungið
og sögur sagðar með slíkum
þrótti og sannfæringu að ýmist
virtist vel heppnuð kóræfing
standa yfir eða þá að snarkalkaðir
karlarnir væru að koma heim eftir
vel heppnaðan róður með Einari
formanni sínum. Starfaði hann
þar til dauðadags en tveimur dög-
um fyrir andlát sitt söng hann við
messu á Grund og við messu á
dvalarheimilinu Ási í Hveragerði.
Nokkru fyrir andlát Einars
kom út tvöfaldur geisladiskur
með söng hans. Á geisladiskunum
er að finna úrval af upptökum
Ríkisútvarpsins með söng Einars
á tímabilinu 1948 - 1964, en að
auki eru þar tvö lög tekin upp árið
1997 á áttræðisafmæli söngvar-
ans.
Þar gefur að heyra íslensk
sönglög, en einnig sálmalög og tvö
sænsk sönglög. Mörg íslensku
laganna eru sjaldheyrð, svo sem
sönglög eftir Hallgrím Helgason
og Ólaf Þorgrímsson.
Upptökurnar eru til vitnis um
það náttúrufyrirbrigði sem rödd
Einars var, björt og kraftmikil
sem létt nær háa c-inu og smitar
af sannri sönggleði.
Einar kenndi söng í mörg ár
við Söngskólann í Reykjavík
ásamt því að raddþjálfa ýmsa
kóra.
Einar var léttur í lund og gam-
ansamur. Hann átti það til að lok-
inni læknisheimsókn að borga
fyrir sig með því að taka eina aríu
með háa c-inu á biðstofunni sem
vanalega var full af niðurdregnu
fólki sem lifnaði snarlega við
óvænta uppákomu.
Einar kvæntist Unni D. Har-
aldsdóttur og eignuðust þau þrjú
börn. Einar og Unnur slitu sam-
vistir. Síðar kvæntist hann Lísa-
lotte Bensch og ættleiddu þau
eina dóttur. Einar og Lísalotte
slitu einnig samvistir. Eftirlifandi
kona Einars var Arnhildur Reyn-
is. Einar eignaðist þrettán barna-
börn og nítján barnabarnabörn.
Einar lést 15. júlí 2003.
Guðmundur
Ragnarsson.
Aldarminning
Elsku Jóna mín.
Það er svo skrítið
að vita til þess að
þú sért farin frá
okkur og samgleðj-
ast þér á sama tíma að vera
komin til Bjarna þíns. Þú hefur
verið svo stór hluti af mínu lífi
alveg frá því pabbi og mamma
komu með mig í Lerkilundinn
frá Kólumbíu. Allt frá því ég
man eftir mér þá var ekkert
sjálfsagðara en að skreppa yfir í
Lerkilund 1 til Jónu og Bjarna.
Þar fékk maður alltaf hlýjar
móttökur. Húsið þar sem ég gat
fundið mömmu vera að spjalla
við þig yfir kaffibolla. Húsið þar
sem ég gat grætt sleikjó eftir að
þið Bjarni komuð frá Spáni.
Húsið þar sem ég gat nálgast
aukalykla ef ég læsti mig úti.
Húsið þar sem við fjölskyldan
vorum alltaf velkomin. Húsið
ykkar Bjarna.
Eftir að Bjarni lést þá vorum
við fjölskyldan áfram tíðir gestir
í Lerkilundi 1 sem og þú hjá
Jóna Guðbjörg
Baldvinsdóttir
✝ Jóna GuðbjörgBaldvinsdóttir
fæddist 28. maí
1940. Hún lést 23.
maí 2017.
Útför Jónu fór
fram 31. maí 2017.
okkur. Síðan flutt-
irðu en samskiptin
urðu ekkert minni
þrátt fyrir það. Það
var oft á laugar-
dagskvöldum sem
mamma hringdi í
mig og bað mig um
að sækja þig. Ég
hringdi í þig og þú
varst komin niður í
anddyri og litla
skottan mín fór út
og leiddi þig að bílnum. Síðan
þegar við komum heim til pabba
og mömmu þá vildirðu alltaf fara
inn vaskahúsmegin, eins og þú
hafðir alltaf gert þegar þú varst
að koma í heimsókn í gamla
daga. Það þýddi ekkert að bjóða
þér forstofumegin.
Mér er mjög minnisstætt eitt
af síðustu skiptunum sem þú
komst í mat til pabba og
mömmu. Við sátum og vorum að
klára að borða. Pabbi var líklega
búinn að reyna að koma meiru á
diskinn hjá þér eins og hann var
vanur. Hann skaut oft á þig og
sagði að þú borðaðir allt of mik-
ið, sem var alger þversögn. Síð-
an kom Eikin okkar, hún hélt
svo upp á þig og kom alltaf til
þín þegar við vorum að klára að
borða. Þú hafðir stundum gefið
henni eitthvert smotterí en þetta
tiltekna kvöld þá gerðirðu eitt-
hvað sem enginn átti von á. Þeg-
ar Eikin kom til þín og horfði fal-
lega til þín þá tókstu diskinn af
borðinu og leyfðir henni að
sleikja af honum. Enginn þorði
að segja neitt og við litum öll á
mömmu. Ég vissi ekki hvert hún
ætlaði. Þetta var hreint út sagt
dásamlegt „móment“.
Síðasta daginn sem ég sá þig
þá kom ég þrisvar sinnum til þín.
Ég sagði þér t.d. þessa sögu með
matarboðið. Þú vissir alveg upp
á þig sökina og það kom bros.
Ég sat ein með þér í hádeginu og
er mjög þakklát fyrir að hafa
tekið matartímann minn í að
eiga þessa stund með þér. Alger-
lega ómetanlegt. Ég segi aftur
það sem ég sagði við þig þá – ég
er svo þakklát fyrir að hafa haft
þig í mínu lífi og þakklát fyrir að
litla skottan mín hafi fengið að
kynnast nákvæmlega því sama
og ég upplifði í æsku. Hlýjunni
og góðmennskunni frá þér.
Það verður mjög sérstakt að
fagna ekki áramótunum með þér
núna. Það var orðin hefð að þú
kæmir til okkar eftir skaupið. Þú
sagðir okkur alltaf þína skoðun á
skaupinu. Síðan skáluðum við á
miðnætti, föðmuðumst og þökk-
uðum fyrir liðnar stundir. Núna í
ár munum við skála til himins til
ykkar Bjarna.
Takk fyrir allar minningarnar,
elsku Jóna mín.
Elsku Nonni, Immý, Pési,
Lilja og fjölskyldur, ég votta
ykkur mína dýpstu samúð. Þín,
Þórunn Kristín.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar