Morgunblaðið - 10.06.2017, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2017
Landsbankinn leitar að öflugum framkvæmdastjóra til að stýra
upplýsingatæknisviði bankans.
Leitað er að einstaklingi með mikla tæknilega þekkingu og reynslu af
stjórnun umfangsmikilla verkefna á sviði upplýsingatækni. Viðkomandi
þarf að hafa mikla stjórnunar- og leiðtogahæfileika og vera tilbúinn
að leiða spennandi og kreandi verkefni.
Meginábyrgðarsvið framkvæmdastjórans er að stýra þróun og
stefnumótun í upplýsingatækni með þarfir viðskiptavina og hagkvæmni
að leiðarljósi. Framkvæmdastjórinn mun starfa náið með öðrum
starfseiningum og bankastjóra við stjórnun bankans, í samræmi við
stefnu hans og markmið.
Lögð er áhersla á að ráða einstakling sem hefur þekkingu á laga- og
tækniumhverfi ármálafyrirtækja og skýra sýn á framtíðarstefnu
í stafrænum bankaviðskiptum.
Framkvæmdastjóri
Upplýsingatækni
Hæfni og menntun
» Háskólamenntun sem nýtist í starfi
» Þekking á rekstri fjármálafyrirtækja er mikill
kostur
» Reynsla og góður árangur í rekstri og viðskiptum
» Reynsla af stefnumótun og stjórnun
» Ótvíræðir stjórnunar- og leiðtogahæfileikar
» Skipulagshæfni og frumkvæði
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veita Baldur G. Jónsson,
mannauðsstjóri Landsbankans, sími 410 7904
eða baldur.g.jonsson@landsbankinn.is og
Sverrir Briem hjá Hagvangi, sími 520 4700
eða sverrir@hagvangur.is.
Umsókn merkt Framkvæmdastjóri sendist
með tölvupósti á Baldur og/eða Sverri.
Nánari upplýsingar um skipulag og starfsemi bankans eru á landsbankinn.is.
Umsóknarfrestur er til og með . júní nk.
Atvinnuauglýsingar 569 1100