Morgunblaðið - 10.06.2017, Blaðsíða 50
50 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2017
Kunsang TseringTamang veit-ingamaður á 30
ára afmæli í dag. Hann á
og rekur veitingastaðinn
Ramen Momo ásamt konu
sinni, Ernu Pétursdóttur
Pinos. Þau opnuðu stað-
inn árið 2014 og er hann á
Tryggvagötunni. „Við er-
um líka að fara að opna
fljótlega staðinn Ramen
Lab þar sem boðið verður
upp á lífrænar núðlur.
Ramen er japönsk
núðlusúpa sem er með
hægt elduðu seyði, fersku
grænmeti, kjúklingi og
linsoðnu eggi, marin-
eruðu í sojasósu, en við
bjóðum líka upp á græn-
metissúpu. Ramen er orð-
ið mjög vinsælt í Evrópu
og Bandaríkjunum og
mér fannst tilvalið að
opna slíkan stað hér á Íslandi. Ég lærði þessa matargerð í Osaka í
Japan og er með gráðu í henni þaðan.“
Kunsang er frá Tíbet en ólst upp að mestu á Indlandi og í Evrópu.
Hann fluttist til Íslands fyrir sjö árum. „Ég og konan mín kynntumst á
Indlandi þegar við vorum að læra um búddisma. Ég elska Ísland, land-
ið er ekki ósvipað Tíbet. Vatnið, náttúran og jafnvel veðrið er líkt.“
Kunsang finnst gaman að kynnast nýju fólki og nýrri menningu og
vera með fjölskyldu sinni. „Ég hef mikinn áhuga á mat og að kynnast
nýrri matarmenningu og ég hef sérstakan áhuga á hægri elda-
mennsku. Ég er alltaf eldandi og langar helst til að borða allan
matinn sjálfur.“
Það er ekki venja að halda upp á afmæli í Tíbet. „Margir í Tíbet vita
ekkert hvaða ár þeir eru fæddir. Við erum átta systkinin og það eru í
kringum tvö ár á milli okkar. Mamma okkar mundi því nokkurn veg-
inn hvaða ár ég er fæddur. Þetta byggist á búddískri speki um tilgang
lífs og dauða. Dauðinn er bara eitt skref að settu marki svo til hvers
að hafa áhyggjur af aldrinum? Ég hef oft gleymt því að ég eigi afmæli
svo að konan mín hefur séð um hvað við gerum í tilefni dagsins og í
kvöld ætlum við út að borða með vinum okkar.“
Kunsang og Erna eiga tvö börn, Stellu Dechen 6 ára og Alexander
Khawa 4 ára.
Á Snæfellsnesi Kunsang Tsering.
Ekki venja að halda
upp á afmæli í Tíbet
Kunsang Tsering er þrítugur í dag
Ljósmynd/Christin Eide
H
ugi Guðmundsson
fæddist í Garða-
bænum 10.6. 1977 og
ólst þar upp. Hann
var í Hofstaðaskóla,
Flataskóla og Garðaskóla, lauk stúd-
entsprófi frá FG 1998, var skiptinemi
í Mexíkó 1995-96, lauk tónsmíðanámi
frá tónfræðadeild Tónlistarskólans í
Reykjavík árið 2001 en kennarar
hans voru þeir Þorkell Sigurbjörns-
son og Úlfar Ingi Haraldsson, lauk
mastersgráðu í tónsmíðum frá Kon-
unglegu tónlistarakademíunni í
Kaupmannahöfn 2005 og masters-
gráðu í raftónlist frá Sonology í Den
Haag, Hollandi, árið 2007.
Hugi hefur verið tónskáld í Kaup-
mannahöfn frá námslokum 2007.
Hugi hefur fengið 11 tilnefningar
til Íslensku tónlistarverðlaunanna og
þar af fengið verðlaunin fjórum sinn-
um, síðast í ár, fyrir óperuna Hamlet
in Absentia, var tilnefndur til dönsku
Reumert verðlaunanna fyrir
óperuna Hamlet in Absentia en verð-
launaafhendingin fer fram í dag, 10.
júní, á afmælisdegi Huga.
Hugi fékk fyrstu verðlaun í tón-
smíðakeppni Norrænna músíkdaga,
árið 2013, fyrir Djáknann á Myrká,
Bjartsýnisverðlaunin 2014, Kraums-
verðlaunin 2008 fyrir geisladiskinn
Apocrypha, hefur fengið þrjár viður-
kenningar á International Rostrum
of Composers, auk ýmissa fleiri verð-
launa.
Hugi Guðmundsson tónskáld – 40 ára
Tónlistarfjölskyldan Hugi og Hanna , sem er selló- og gömbuleikari, með dætrum sínum, Unu og Jóhönnu.
Sérfræðingur í snóker
og súrbrauðsbakstri
Á EM Hugi með tveimur Guðnum, Tómassyni útvarpsmanni, og forsetanum.
Sunna Rós Guðjónsdóttir, Embla Mjöll Auðunsdóttir og Tinna Karen Sigurjóns-
dóttir héldu tombólu við Nóatún og söfnuðu 3.514 kr. sem þær færðu Rauða
krossinum að gjöf.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.