Morgunblaðið - 10.06.2017, Page 51
Auk þess að vera tónskáld af guðs
náð hefur Hugi alvöru áhuga á mat-
argerð og brauðbakstri úr súrdegi:
„Ég er heillaður af súrdeigsbrauð-
gerð sem getur tekið nokkra sólar-
hringa frá upphafi til enda, og und-
anfarið hef ég verið að prófa mig
áfram með að nota allskonar gamlar
mjöltegundir og uppskriftir.
Ég er almennt lítill græjukall, hef
t.d. engan áhuga á tölvuspilum og
bílum og lít eiginlega ekki við öðrum
græjum en eldhúsgræjum.
Ég er einnig heillaður af snóker á
allan hátt, taktíkinni, aganum, sem
minnir á hljóðfæraleik að mörgu
leiti, og íþróttaandanum. Sjálfur er
ég afleitur spilari en reyni samt að
spila þegar ég hef tíma og það er þá
helst þegar ég er í fríum á Íslandi.
Ég fór á heimsmeistaramótið í
snóker í Sheffield fyrir 10 árum og
stefni að því að fara aftur á næsta ári
með góðum vinum. Kannski eru
bakstur og snóker ekki svo ólík
áhugamál, því rétt eins og gott súr-
deigsbrauð þá getur leikur á HM í
snóker tekið heila þrjá daga.“
Hugi hefur almennt gaman af því
að fylgjast með íþróttaviðburðum og
fór eins og hálf þjóðin á leiki á EM í
fótbolta í fyrra. Þar vakti hann mikla
athygli þegar myndir af honum með
skeggið litað í íslensku fánalitunum
rötuðu í myndabanka Getty Images
og voru notaðar í dagblöðum um all-
an heim við fréttir af Íslandi. Fór
hann í fjölda viðtala í erlendum fjöl-
miðlum í kjölfarið.
Fjölskylda
Eiginkona Huga er Hanna Lofts-
dóttir, f. 27.10. 1977, selló- og gömbu-
leikari. Foreldrar hennar: Hanna
Kristín Stefánsdóttir, f. 24.12. 1939,
kennari og deildarstjóri, og Loftur
Guttormsson, f. 5.4. 1938, d. 4.12.
2016, doktor í sagnfræði og prófess-
or við Háskóla Íslands.
Dætur Huga og Hönnu eru Jó-
hanna Hugadóttir, f. 22.1. 2008, og
Una Hugadóttir, f. 15.1. 2013.
Systkini Huga eru Vera Guð-
mundsdóttir, f. 17.4. 1968, lyfja-
skráningafulltrúi hjá Beyer A/S og
hug- og líkamsþjálfi (psykomotorik) í
Danmörku; Daði Guðmundsson, f.
19.12. 1970, doktor í verkfræði og að-
gerðarannsóknasérfræðingur hjá
Maersk Drilling í Danmörku, og
Alma Guðmundsdóttir, f. 29.12. 1984,
tónlistarkona í Los Angeles.
Foreldrar Huga: Anna Guðrún
Hugadóttir, f. 20.10. 1947, náms- og
starfsráðgjafi,og Guðmundur Hall-
grímsson, f. 9.8. 1939, d. 11.2. 2013,
lyfjafræðingur.
Úr frændgarði Huga Guðmundssonar
Hugi
Guðmundsson
Anna Jónatansdóttir
húsfr. á Akureyri
Rósa Hjaltadóttir
húsfr. og verslunarm. á Akureyri
Hugi Kristinsson
verslunarm.og hrossaræktandi áAkureyri
Anna Guðrún Hugadóttir
námsráðgjafi í FG og húsfr. í Garðabæ
Guðrún Guðmundsdóttir
húsfr. á Strjúgsá og Ytra-
Dalsgerði
Tryggvi Kristinn Jónsson
b. á Strjúgsá og Ytra-Dalsgerði í Djúpadal í Eyjafirði
Óskar Sæ-
mundsson
kaupm. á
Akureyri
Magnús
Óskarsson
borgarlög-
maður
Óskar Magn-
ússon lögm.,
b. á Sáms-
stöðum og
fyrrv. útg.stj.
Morgun-
blaðsins
Hafliði Hallgrímsson tónskáld, sellóleik-
ari og áhrifavaldur afmælisbarnsins
Lilja Hallgrímsdóttir (Dúlla)
tónmenntakennari á Akureyri
Rannveig Stefánsdóttir
handavinnukennari á Dalvík
Gunnar Stefánsson
útvarpsmaður
Friðrik Jakob Tryggvason
skólastjóri Tónlistarskóla Akur-
eyrar, organisti og söngstjóri
Kristinn Hugason fv. hrossaræktarráðun. BÍ,
nú forstöðum. Söguseturs íslenska hestsins
dr.Hjalti Hugason prófessor í kirkjusögu við HÍ
Sigríður Ólafsdóttir
húsfr. í Bolungarvík og síðar áAkureyri
Sæmundur Benediktsson
sjóm. í Bolungarvík
Fríða Sæmundsdóttir
kaupm. á Akureyri (Fríða í Markaðnum)
Hallgrímur Stefánsson
útgerðarm. á Akureyri
Guðmundur Hallgrímsson
lyfjafr. og heildsali í Garðabæ
Stefán Kristinn Hallgrímsson
útvegsb. á Stóru-Hámundar-
stöðum og í Bröttuhlíð á
Árskógsströnd, síðar síldar-
form. á Akureyri
Tryggvi Jóhannssonb.áYtra-Hvarfi í Svarfaðardal
Lilja Jóhannsdóttir
húsfreyja
Hjalti Sigurðsson
húsgagnasmíðam. á Akureyri
Hjalti Hjaltason trommuleikari í gullaldarhljómsveit Ingimars Eydal
Anna Lilja Sigurðar-
dóttir kennari
Borgar Þór Magnason
kontrabassaleikari
Sigurður Reynir Hjalta-
son verslunarmaður
Ólafur Sigurðsson b.á
Gilsá í Eyjafjarðarsveit
Franz Viðar
Árnason fyrrv.
form. Samorku
Rósa Ólafsdóttir
húsfr. í Rvík
Davíð
Franzson
tónskáld
Morgunblaðið/Kristinn
Bjartsýnisverðlaun 2015 Hugi og
Ólafur Ragnar Grímsson.
ÍSLENDINGAR 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2017
Einar Þorkelsson fæddist aðBorg á Mýrum 11.6. 1867,sonur séra Þorkels Eyjólfs-
sonar og Ragnheiður Pálsdóttur.
Einar var yngstur tíu systkina sem
lifðu en önnur sjö létust í bernsku.
Fjölskyldan flutti að Staðastað á
Snæfellsnesi er Einar var um 8 ára.
Faðir hans var um skeið heimilis-
kennari hjá Jóni Thorstensen land-
lækni, kenndi samhliða, ýmsum und-
ir skóla og hafði jafnan pilta í námi,
eftir að hann tók prestvígslu.
Einar nam hjá föður sínum og
varð vel að sér. Hann bjó nokkur ár
á Búðum, en síðar í Ólafsvík og
Stykkishólmi og sinnti þá einkum
kennslu. Árið 1905 kom hann til
Reykjavíkur og vann í fyrstu að
skriftum á Þjóðskjalasafninu sem
dr. Jón Þorkelsson bróðir hans veitti
forstöðu. Einar hafði einkar fagra og
stílhreina rithönd líkt og mörg
skjalaafrit hans votta.
Árið 1909 hóf hann störf á skrif-
stofu Alþingis og varð síðan fyrsti
fastráðni skrifstofustjóri þess, 1914-
23. Sjón hans hafði þá hrakað og var
m.a. kennt um augnraun fyrrum við
að rýna í hin fornu skjöl á Þjóð-
skjalasafni.
Einar og Ólafía Guðmundsdóttir,
sem lést 1929, giftust 1918. Hún var
þriðja eiginkona hans og varð þeim
sex barna auðið. Lifandi eru tvær
dætur þeirra þær Ólafía, f. 1924, og
Björg, f. 1925. Heimili þeirra stóð í
fyrstu í Alþingishúsinu en frá 1923 í
Hafnafirði. Árið 1937 flutti hann á
Elliheimilið Grund og lést þar.
Eftir að Einar lét af störfum hjá
Alþingi hóf hann að sinna ritstörfum
og komu frá hans hendi þrjú smá-
sagnasöfn. Málfarið var hreint og
kjarnyrt og sögur hans báru vitni
næmum skilningi á „smælingjum“
jafnt í hópi manna sem dýra.
Meðan Einar var í blóma lífsins
vestur á Snæfellsnesi var hann
áhlaupamaður til allra verka. Þó átti
dagleg búsýsla ekki hug hans allan.
Til þess var tekið hversu vel hann
sat hest og átti fallega gæðinga. Ein-
ar var maður bókarinnar og víðles-
inn fræðaþulur.
Einar lést 27.6. 1945.
Merkir Íslendingar
Einar
Þorkelsson
Laugardagur
95 ára
Fjóla Ólafsdóttir
90 ára
Egill Guðmundsson
Elísabet Þórarinsdóttir
Friðrik Gíslason
Friðrik Sófusson
85 ára
Sigrún Magnúsdóttir
80 ára
Bjarni H. Jónsson
Helga Elísabet Schiöth
Hjalti Gíslason
Hjördís Ósk Óskarsdóttir
75 ára
Bjarni Aðalsteinsson
Hermann Guðmundsson
Jónasína Skarphéðinsdóttir
70 ára
Eysteinn Óskar Jónasson
Jón Kristinn Haraldsson
Kornelíus Sigmundsson
Kristinn Ævar Andersen
Ólafur I. Jóhannsson
Ragnheiður Ágústsdóttir
Sigrún Camilla
Halldórsdóttir
60 ára
Arnhildur Gréta Ólafsdóttir
Árni Þór Bjarnason
Eiríkur Magnússon
Fjóla Hilmarsdóttir
Hilmar Jakob Jakobsson
Jósef Smári Ásmundsson
Kristín Jóhanna
Guðmundsdóttir
Laufey Eyjólfsdóttir
Ragna Björg Þórisdóttir
Sigrún Ása Sigmarsdóttir
Sigrún Margrét Hansen
Sólrún Jónsdóttir
Stefán Daði Ingólfsson
50 ára
Edda Jóna Gylfadóttir
Erlingur Ingi Sigurðsson
Heimir Hallgrímsson
Margrét Hólm Valsdóttir
Sólveig Reinhold
Sæbergsdóttir
40 ára
Guðbjartur Jón Einarsson
Guðrún Helga Högnadóttir
Helgi Kristinn
Guðbrandsson
Herdís Guðmundsdóttir
Hugrún Helga
Guðmundsdóttir
Jóhanna Kristín
Björnsdóttir
Sveinn Ragnar Jörundsson
30 ára
Alexander Agnarsson
Ásgerður Borg Bjarnadóttir
Freysteinn Gunnarsson
Haraldur Ólafsson
Hector Barrios Ruano
Kamma Thordarson
Kunsang Tsering Tamang
Linda Hrönn Ármannsdóttir
Malgorzata Pawlowska
Sigrún Björk Reynisdóttir
Stella Björk Hilmarsdóttir
Ævar Pétur Einarsson
Sunnudagur
85 ára
Jónína S. Guðjónsdóttir
Jón Sigurðsson
80 ára
Anna Ingvarsdóttir
Ingibjörg Óskarsdóttir
Jónas Runólfsson
Lillian Kristjánsdóttir
Málfríður Jónsdóttir
Ragnhildur Aðalsteinsdóttir
Þorvaldur Kristjánsson
75 ára
Eiríkur Eiðsson
Erla M. Frederiksen
Ingveldur Guðbjörnsdóttir
Jón Kristjánsson
Kristinn Gísli Antonsson
Lára Jónasdóttir
Magnús Haraldsson
70 ára
Guðmundur Pétursson
Gunnar Guðmundsson
Kjartan Kjartansson
Ottó Jörgensen
Ólafur Auðunsson
Stefán Dan Óskarsson
60 ára
Anna Úrsúla
Gunnarsdóttir
Árný Dalrós Njálsdóttir
Dagmar Elíasdóttir
Gísli Guðmundsson
Hafdís Þorvaldsdóttir
Halldór Gísli Bjarnason
Hjördís Harðardóttir
Jónheiður Theódórsdóttir
Magnús Gíslason
Miroslav Vasovic
Sigfús Hreiðarsson
50 ára
Baldur Grétarsson
Baldur Oddur Baldursson
Edda Halldórsdóttir
Guðmundur Freyr
Guðmundsson
Helga Grímheiður
Gunnarsdóttir
Hivzi Bakiqi
Hjalti Ragnar Garðarsson
Kristín Petra
Guðmundsdóttir
Robert Slawomir Kuc
Ægir Óskar Hallgrímsson
40 ára
Agnieszka Marzok
Bragi Hreinn
Þorsteinsson
Einar Johnson
Elísabet Hrund
Salvarsdóttir
Haukur Guðmundsson
Jurgita Cepauskiene
Kolbrún Ýr
Guðmundsdóttir
Magnea Ásta Pétursdóttir
Stefán Ragnar Jónsson
30 ára
Árný Ösp Aðalsteinsdóttir
Brynja Þórsdóttir
Gunnar Torfi Hannesson
Haraldur Sigfússon
Hildur Jörundsdóttir
Magni Þór Óskarsson
Óskar Ólafsson
Pétur Karl Ingólfsson
Sigrún Benediktsdóttir
Stefanie Esther Egilsdóttir
Telma Þrastardóttir
Tomasz Piotr Styczynski
Til hamingju með daginn
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Frá
morgni
líkama
og sál
fyrir alla
fjölskylduna í
þínu
hverfi t i l kvölds
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir
líkama
Laugarnar í Reykjavík