Morgunblaðið - 10.06.2017, Page 53
DÆGRADVÖL 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2017
*
E
in
ka
le
y
fi
íu
m
só
kn
ar
fe
rl
ií
F
ra
kk
la
n
d
i.
**
N
ey
te
n
d
ap
ró
f
á
3
1*
*
/
5
2
**
*
ko
n
u
m
se
m
n
o
tu
ð
u
D
iv
in
e
H
ar
m
o
n
y
C
re
am
.
DIVINE HARMONY CREAM
E I N STÖK SAMV I RKN I S EM
V IÐHELDUR UNGLEGR I HÚÐ
Þar sem land og haf mætast, skapar náttúran
eilífa fegurð. Immortelle Millésimée er blómið
sem aldrei fölnar, Jania Rubens er rauðþörungur
sem getur endurnýjað sig óendanlega oft. Þessi
tvö einstöku innihaldsefni frá Korsíku sameinast
í nýja Divine Harmony Cream frá L’OCCITANE,
sem hannað er til að vinna á áberandi hrukkum,
stinnleika, húðtón, andlitsfyllingu og útlínum.
Eftir 3 mánaða notkun virðast gæði húðarinnar
hafa umbreyst (87%**) og húð virðist hafa fyllingu
á við unga húð (83%***).
Kringlan 4-12 | s. 577-7040
6 EINKALEYFIÍ UMSÓKN*
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Einhver er tilbúinn til að aðstoða þig
við að gera umbætur á heimilinu eða í einka-
lífinu. Gerðu mistök bara til þess eins að sýna
fram á að ekkert slæmt eigi eftir að gerast ef
þú klikkar.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú þarft að endurvekja hæfileika þinn
til að tjá þig. Að gefa hluti sem maður hefur
sankað að sér er ekki bara sársaukalaust,
heldur líka frelsandi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er hætt við að þú lendir í deil-
um við einhvern innan fjölskyldunnar í dag.
Gættu þess að vera ekki of smámunasamur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Samstarfsfólkið er bæði sam-
vinnuþýtt og hvetjandi þessa dagana. Láttu
ekkert hindra þig í því að framkvæma það
sem þú veist að er rétt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Hlutirnir breytast og fólk þroskast í sitt-
hvora áttina. Til allrar hamingju er samband
þitt við samstarfsfólk og viðskiptavini mjög
gott.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Sumir hafa verið það þröngsýnir um
langt skeið að stórvirkar vinnuvélar þyrfti til
þess að opna huga þeirra. Daginn ættir þú að
nota í tilraunastarfsemi.
23. sept. - 22. okt.
Vog Vandamál gæti komið upp varðandi
heimilið sem gæti reynst þér erfitt að leysa.
Stórhuga ráðagerðir krefjast allra heilafruma
sem þú hefur yfir að ráða.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Vertu þakklát(ur) fyrir þau tæki-
færi sem þú færð í dag til að fræða ungt fólk.
Láttu það eftir þér að vera þú sjálfur og hafðu
ekki óþarfa áhyggjur.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er hollt að vera jafnan við
öllu búinn og geta þá notið velgengni og tek-
ist hraustlega á við mótlætið.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Öllu gríni fylgir einhver alvara svo
þú skalt gæta orða þinna og hafa aðgát í
nærveru sálar. Kannski tekst þér að bjarga
einhverjum með því að vera eins og þú átt að
þér að vera.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þó að þér sé ekki vel við að við-
urkenna það þá ertu mannlegur og þarfnast
ástar eins og allir aðrir. Hlustaðu líka á
drauma þína.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú gerir þér grein fyrir að það er
óskynsamlegt að stytta sér leið. Ef þú þarft
að meta hluti á fagurfræðilegum forsendum,
er skemmtilegra að hafa einhvern með sér.
Guðmundur Arnfinnsson ortilaugardagsgátuna sem endra-
nær:
Af helmingum talinn er hann sá verri.
Hæggengur jafnan um skákreiti fer.
Býtir hann verkum á bújörð hverri.
Bestur í glímu af liðsmönnum er.
Harpa á Hjarðarfelli segir að þá
sé sauðburði lokið og hægt að gefa
sér tíma til að grufla í gátunum:
Bóndi á sér betri helming.
Bóndi er með í tafli.
Bóndi ræður búsins pening.
Bóndi glímdi af afli.
Guðrún Bjarnadóttir sendi tvær
lausnir og má ekki á milli sjá, hvor
sannari reynist:
Er frúin bóndanum betri?
Bóndi (peð) hægt fer um reiti.
Á sumri með verkstjórn sem vetri.
Víst bændaglímsigurheiti.
Og síðan aðra:
Drottning er kónginum kærri.
Kóngsi um taflborðið mjakast.
Engin er kóngs stjórnun stærri.
Stór glímukóngurinn bakast.
Helgi Seljan svarar:
Um betri helming bónda þarna þegi
og þess vegna um peðið ekkert segi.
Sínum hjúum bóndi býtir verkum
ber í glímu mjög af öðrum sterkum.
Árni Blöndal á þessa lausn:
Betri helming tel bónda frú.
Bóndi er peð í skákinni.
Býtir til verka vinnuhjú.
Vísast bóndi í glímunni.
Helgi R. Einarsson leysir gátuna
þannig:
Fyrst ég á gátuna góndi
og gat ekki fundið svar,
þá snarlega birtist mér bóndi.
Bænheyrður þar ég var.
Þessi er skýring Guðmundar:
Bóndinn er hjónanna helmingur verri.
Hæggengur bóndi um skákreiti fer.
Bóndi er verkstjóri bújörð á hverri.
Bóndi í glímunni færastur er.
Þá er limra:
Er bóndann á Brúnku sá Fríður
og blíður hans rómur og þýður
kom merinni á skeið,
hún mælti fokreið:
„það er misjafnt, hverniǵann ríður!“
Síðan kemur ný gáta eftir Guð-
mund:
Sólin skín á sundin blá,
suðar flugan káta,
hress ég núna held á stjá,
og hér er lítil gáta:
Í Borgarfirði bæ ég fann.
Bagga Gráni flytur þann.
Vakri-Skjóni vera kann.
Sér vippar fimur upp á hann.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Nískur bóndi er barn síns fjár
Í klípu
„ÉG HATA AÐ BORÐA OG HLAUPA SVO.
MÁ ÉG FÁ BÍLINN LÁNAÐAN?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG VEIT AÐ ÞÚ ERT DÝRALÆKNIR.
VENJULEGIR LÆKNAR VILJA EKKI
SNERTA HANN!“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... bara fjarlægt
bergmál.
ÉG ER AÐ HUGSA
UM AÐ BREYTA
UM ILM
EPLAKAKA
ER ÁGÆT
EÐA NÝBAKAÐ
BRAUÐ
EÐA
BEIKON!
SÚKKULAÐIKAKA!
STEIKTUR
KJÚKLINGUR!
ÉG ER
SVÖNG NÚNA
AMLÓÐI, ÉG ER
FAÐIR ÞINN, EN
ÉG ER LÍKA BESTI
VINUR ÞINN…
ÞÚ GETUR
DEILT ÖLLU
MEÐ MÉR!
JÆJA…?
FÁÐU ÞÉR
SMÁKÖKU!
ÞETTA ER ÞAÐ SEM
ÉG ER AÐ MEINA!
Sundlaugarnar í Reykjavík eru ímiklu uppáhaldi hjá Víkverja
dagsins, ekki síst Árbæjarlaug.
Laugin sú er algjör paradís; þar er
hægt að synda í góðri laug, vera inni
að leika með börnunum í vondu veðri,
sóla sig í grunna pottinum í góðu
veðri, fara salíbunu í rennibrautinni, í
mismunandi nudd í ólíkum pottum og
í eimbað. Nýi strandblaksvöllurinn
er einnig kærkomin viðbót.
x x x
Nýjasti potturinn í Árbæjarlaug-inni er mjög skemmtilegur, en
úr honum er útsýni niður Elliðaár-
dalinn enda gengur hann undir nafn-
inu „útsýnispotturinn“ hjá fjölskyldu
Víkverja. Í þessum potti er dásam-
legt fótanudd og kraftmikið bak- og
herðanudd sem aðeins einn getur
notið í einu. Kveikja þarf á því fyrir
notkun og síðan slokknar á því eftir
ákveðinn tíma. Flestir kunna að bera
sig að í þessu og sýna tillitssemi. Ef
þeir sjá að einhver er að bíða taka
þeir eina umferð og leyfa svo öðrum
að komast að. Einstaka manneskjur
loka augunum og ýta bara aftur á
takkann, alls ómeðvitaðar um um-
hverfi sitt. Víkverji vill endilega
benda þessu fólki á að fylgjast betur
með umhverfi sínu og leyfa öðrum að
komast að.
x x x
Eitt fer í taugarnar á Víkverja ogþað er viðhald á laugum, eða rétt-
ara sagt tímasetningarnar á því. Ef
til vill er ekki hjá þeim komist en
engu að síður finnst Víkverja pirr-
andi að uppáhaldslaugin hans verði
lokuð í sex daga í næstu viku. Mikið
væri gott ef það væri hægt að gera
þetta á öðrum tíma en þegar sólin er
hæst á lofti.
x x x
Víkverja finnst gaman að synda enlíka gaman að liggja í heitum
potti. Þess vegna gladdist hann af-
skaplega yfir fréttum af því að það að
fara í heitt bað hefði jákvæð áhrif á
blóðsykur og brenndi sömuleiðis
álíka mörgum kaloríum og ganga.
Þessi rannsókn fór fram á vegum
Loughborough-háskóla í Bretlandi.
Það að hita líkamann hefur sumsé já-
kvæð áhrif hvort sem hann er hitaður
með hreyfingu eða heitu baði.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Guð fyrirgefur allar misgjörðir þínar,
læknar öll þín mein.
(Sálm. 103:3)