Morgunblaðið - 10.06.2017, Síða 54
54 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2017
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR 7.4.2017 - 31.12.2019
Valin verk úr safneign
Sunnudagsleiðsögn á sjómannadaginn, sunnudaginn 11. júní kl. 14.
HRAFNHILDUR ARNARDÓTTIR / SHOPLIFTER
Taugafold VII / Nervescape VII 26.5. - 22.10. 2017
STEINA - ELDRÚNIR (PYROGLYPHS) 4.3. - 20.8.2017
VASULKA-STOFA Miðstöð fyrir raf- og stafræna list á Íslandi
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur
KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga kl. 10-17.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
SAMSKEYTINGAR 3.9.2016 - 17.09.2017
Opið daglega kl. 14-17, lokað mánudaga. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 14.9.2017
Opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga kl. 14-17.
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Fuglarnir, fjörðurinn og landið í Myndasal
Ísland í heiminum, heimurinn í Íslandi í Bogasal
Hugsað heim á Vegg
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Krossfestingarmynd á skinnblaði frá 14. öld
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna.
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi.
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík s: 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið alla daga frá 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið alla daga frá 10-17.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Sit hér við vinnuskrifborðið og hand-
fjatla sérdeilis fallega vínylútgáfu af
þessari nýjustu plötu Dynfara. Vín-
ylplatan sjálf er sérstaklega flott;
ljósblá og gegnsæ. Plötumiðarnir
gullbryddaðir og umslag sömuleiðis.
Umslagshönnun öll og myndskreyt-
ing er í takt við mikilúðlegan titilinn,
The Four Doors of the Mind, sem
kallar eðlilega fram risa-
vaxnar konseptplötur
áttunda áratugarins
(hönnunin er á vegum
Metaztasis, sem hefur
unnið fyrir stór nöfn úr
svartþungarokkinu eins
og Watain og Behemoth).
Þessi plata er enda
bundin í stóreflis konsept,
rétt eins og plötur proggrisanna
gömlu. Tónlistin hverfist um kenn-
ingar ævintýra-
skáldsagnahöfundarins Patrick Rot-
Allar dyr upp á gátt
hfuss, sem fjalla um seiglu hugans
gagnvart sársauka (Dyrnar fjórar
tengjast svefni, gleymsku, geðveiki
og dauða). Við þetta bætast svo til-
vistarspekileg ljóð hins alíslenska og
mjög svo dimmsýna Jóhanns Sigur-
jónssonar (já, og nafna Jóhanns
Dynfara!). Verkið er innblásið af
glímu Jóhanns við sjálfsofnæmis-
sjúkdóminn colitis ulcerosa. Já, það
eru stóru málin sem eru undir
hérna!
Við þetta allt leggja Dynfarar
svo tónlist. Ásamt Jóhanni, sem
syngur, spilar á gítara,
dragspil og bouzouki,
skipa sveitina þeir Jón
Emil Björnsson (tromm-
ur, gítarar og flauta),
Bragi Knútsson (gítarar)
og Hjálmar Gylfason
(bassi). Ég nefndi svart-
þungarokk í inngang-
inum, en sá geiri er við góða
heilsu í dag á landi elds og ísa. Ekki
er að undra að velflestar íslenskar
svartþungarokkssveitir eru dásam-
lega ofsafengnar og illvígar en Dyn-
fari stendur vel utan við þann
ramma og hefur verið á nokk ein-
stöku róli alla sína tíð. Svartþung-
arokkið er vissulega nokkurs konar
platti sem sveitin stendur á en út-
færslan er melódísk, alla jafna, og
tekur t.d. inn áhrif frá síðrokki að
hætti Mogwai og Godspeed You
Black Emperor! Tónlistin er einkar
stemningsrík, tilraun mín til að þýða
hið svokallaða „atmospheric“ for-
skeyti en „atmospheric black metal“
er orðið að viðurkenndri undirstefnu
» Svartþungarokkiðer vissulega nokkurs
konar platti sem sveitin
stendur á en útfærslan
er melódísk, alla jafna,
og tekur t.d. inn áhrif
frá síðrokki að hætti
Mogwai og Godspeed
you black emperor!
The Four Doors of the Mind er fjórða plata Dynfara, sem leggur upp með
stemningsríkt svartþungarokk. Um þemabundið verk er að ræða sem
byggir á sjúkdómi sem leiðtoginn, Jóhann Örn Sigurjónsson, glímir við.
Menningarhátíðin Breiðholt festival
verður haldin á morgun í Breiðholti
en á henni er listamönnum sem
tengjast Breiðholti og þeirri fjöl-
breyttu listsköpun sem fer fram í
hverfinu gert hátt undir höfði.
Hátíðin fer fram í Seljadal og þá
aðallega við Skúlptúrgarð Hall-
steins Sigurðssonar að Ystaseli 37,
bak við Ölduselsskóla en einnig í
Ölduselslaug, hljóðverinu Gróður-
húsinu og Seljakirkju.
Tónlistarmennirnir sem fram
koma á hátíðinni eru Markéta
Irglová, Sóley, Ólöf Arnalds, aYia,
Marteinn Sindri, RuGl, Reykjavík
Batucada & Samúel Jón Samúels-
son street band, Rex Pistols,
Kjartan Holm og Áslaug Magnús-
dóttir. Einnig verður sýnd fata-
hönnun og innsetningar og boðið
upp á viðburði en meðal þeirra er
sýning á einleiknum Hún pabbi eftir
Höllu Þórlaugu Óskarsdóttur og
Köru Hergils, í flutningi leikarans
Hannesar Óla Ágústssonar og leik-
stjórn Péturs Ármannssonar.
Sýningin fer fram í Gróðurhúsinu
klukkan 15.
Dagskrá hátíðarinnar og frekari
upplýsingar um listamenn má finna
á vef hennar, breidholtfestival.com.
Menningarhátíð
haldin í Breiðholti
Ljósmynd/Owen Fiene
Hún pabbi Hannes Óli
Ágústsson í sýningunni
sem sýnd var í Borgarleik-
húsinu á síðasta leikári.
Verkið verður sýnt á
Breiðholt Festival.
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
„Þetta er tækifæri fyrir ferðamenn
og almenning til að sjá yfirlitssýn-
ingu á verkum norðlenskra mynd-
listarmanna,“ segir Hlynur Hallsson,
sýningarstjóri sýningarinnar Sumar,
sem verður opnuð í Listasafninu á
Akureyri í dag. Þetta er í annað sinn
sem safnið heldur
sýningu fyrir
listamenn Norð-
urlands, eftir sýn-
inguna Haust
sem haldin var
árið 2015 og er
áætlað að sýning-
arnar verði áfram
haldnar annað
hvert ár.
Hlynur vill þó
ekkert fullyrða
um að næstu tvær sýningar verði
kallaðar Vetur og Vor. „Þetta er
hluti af stefnu listasafnsins, að sinna
heimahögunum líka,“ segir hann.
„Að vera gluggi út í heim og sýna er-
lenda myndlistarmenn en líka ís-
lenska myndlistarmenningu hvaðan-
æva af landinu og það sem er að
gerast í nærumhverfinu. Það er
spennandi verkefni og mjög vinsælt
bæði meðal heimamanna og meðal
ferðamanna. Ferðamenn sem koma
hingað hafa séð helling af Picasso og
Andy Warhol og þeir spyrja bara
hvort þeir geti ekki séð einhverja ís-
lenska myndlist. Þá segjum við jú,
hérna er sú sýning einmitt.“
Leitast við að sýna fjölbreytni
„Það er fimm manna dómnefnd
sem velur inn á sýninguna, ekki lista-
menn heldur verk,“ segir Hlynur.
„Við völdum verk eftir tuttugu og
einn listamann og erum nú að setja
þessa sýningu saman. Fyrst og
fremst verða þetta góð og áhugaverð
verk en síðan verður líka að gæta
þess að sýna fjölbreytni: Bæði í miðl-
un, að það séu skúlptúrar, málverk,
vídeóverk, teikningar, innsetningar
og allt þannig en síðan þarf að skoða
efnistök og aldurssamsetningu. Mað-
ur getur ekki tekið tillit til alls. Þeg-
ar maður lítur upp frá því að velja
verkin fer maður að hugsa um hvort
kynjahlutfallið sé í lagi og hvort það
sé í lagi að hafa svona marga unga
listamenn. Sumt kemur á óvart eftir
á þegar maður stendur upp frá dóm-
araborðinu og skoðar þetta. Það er
áhugavert ferli að velja inn á svona
sýningu og líka mjög áhugavert að
búa til heildstæða sýningu úr svona
ólíkum verkum.“
Hlynur viðurkennir að ekki hafi
ríkt samstaða um öll verkin sem val-
in voru innan dómnefndarinnar en
ekki hafi þó verið „slegist“ yfir
ákvörðununum. „Fólk færði rök fyrir
því hvers vegna því fannst einhver
eiga að vera með eða ekki. Stundum
skipti fólk um skoðun. Það er alls
ekki þannig að dómnefndin sé alltaf
sammála um allt, enda reynum við að
velja í dómnefndina fólk úr ólíkum
áttum. Þar var listfræðingur, vöru-
hönnuður, myndlistarmaður, safn-
stjóri og svo framvegis. Það er líka
mikilvægt að dómnefndin sé breyti-
leg frá ári til árs.“
„Börn skoða sýningu oft
með öðrum augum“
Hlynur segir að dómnefndin hafi
orðið að hafna ýmsum góðum verk-
um sem hann hefði viljað hafa með,
enda hafi verið fjölmargir umsækj-
endur. „Sem betur fer er önnur sýn-
ing hinum megin við götuna,“ segir
Hlynur. „Hún heitir einmitt Salon
des refusés eða Sýning þeirra sem
var hafnað. „Ég nefndi það við Gils-
félagið, sem skipulagði þá sýningu,
að það væru margir listamenn að
sýna þar sem sóttu alls ekki um hjá
okkur. Þau sögðu að það hefði
kannski verið af því að þau höfnuðu
sjálfum sér – voru of sein að sækja
um, ekki tilbúin með eitthvað eða
þorðu ekki að senda umsókn. Mér
finnst það skemmtilegt að það sé líka
sýning fyrir þá sem komust ekki að
og mjög táknrænt að hún skuli vera
hinum megin við götuna.“
Sýning verkanna sem var hafnað
Heimahögunum
sinnt á Akureyri
Sýningarnar Sumar og Salon des refusés opnaðar á Akureyri
Hlynur
Hallsson Listaverk Mælifell eftir Rebekku Kühnis, eitt listaverkanna sem verða á
sýningunni í Listasafni Akureyrar í sumar.