Morgunblaðið - 10.06.2017, Side 57
MENNING 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2017
Fatahönnuðurinn Steinunn Sigurð-
ardóttir, sem hannar föt undir
merkinu STEiNUNN, verður með
sýningu í vinnustofu sinni að
Grandagarði á morgun sem teng-
ist sjómannadeginum. „Áður en ég
tók við plássinu mínu var þar
netaverkstæði sem mér finnst allt-
af skemmtilegt því að gera við net
og að prjóna er svolítið svipað,“
segir Steinunn. „Ég komst í mikið
af netakúlum sem ég er búin að
vera að laga og gera við og er að
hengja þær allar upp, búa til úr
þeim skemmtilegan vegg og setja í
samhengi við prjónið því ég ætla
að sýna prjónavörur á öllum gín-
unum. Ég er að tengja staðinn við
handverkið.“
Steinunn mun því bæði sýna föt
sem hún hefur hannað og innsetn-
ingu úr netum og netakúlum.
Vinnustofan verður opin bæði í
dag frá kl. 13 og á morgun frá kl.
12. „Ég er að setja kúlurnar í ann-
að samhengi sem er alltaf
skemmtilegt, að taka hlutina úr
því samhengi sem þeir hafa verið í
og færa þá yfir í annað,“ segir
Steinunn.
Netakúlur settar í annað samhengi
Innsetning Hluti af verkinu sem Stein-
unn vann úr netum og netakúlum.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Leikhúslistamennirnir Árni Pétur
Guðjónsson og Björn Thors tóku við
Stefaníustjakanum við hátíðlega at-
höfn í Iðnó í gær þegar úthlutað var
úr Minningarsjóði frú Stefaníu Guð-
mundsdóttur leikkonu. Þeir hlutu
hvor styrk að upphæð 850.000 kr.
ásamt sérsmíðuðum kertastjaka sem
nefndur er Stefaníustjakinn. Minn-
ingasjóðurinn var stofnaður 1938 af
hjónunum Önnu Borg og Poul Reu-
mert með það að markmiði að efla ís-
lenska leiklist og heiðra um leið minn-
ingu Stefaníu, móður Önnu. Hátt á
fimmta tug listamanna hafa hlotið
styrk úr sjóðnum frá 1970, en gert er
ráð fyrir að listafólk nýti styrkinn til
ferðalaga og menntunar erlendis.
Afi íslenska tilraunaleikhússins
„Þetta er mikilvæg viðurkenning á
tilraunabrölti mínu síðustu áratugi,“
segir Árni Pétur Guðjónsson og
bendir á að hann sé af sumum kall-
aður afi íslenska tilraunaleikhússins.
„Ég hef vissulega líka unnið að hefð-
bundnari sýningum og var í um ára-
tug fastráðinn leikari í Borgarleik-
húsinu. En helsti styrkur minn og
það sem mér hefur fundist mest
spennandi er að vinna með tilraunir,“
segir Árni Pétur og rifjar upp að
hann hafi verið kominn vel yfir þrí-
tugt þegar hann flutti heim eftir nám
og störf erlendis.
„Meðan ég var úti starfaði ég mikið
í svonefndu svitalyktarleikhúsi þar
sem markmiðið var að finna nýjar
leiðir í náinni samsköpun leikhóps-
ins,“ segir Árni Pétur og tekur fram
að í sínum huga verði sjónræni þáttur
leikhússins æ mikilvægari. „Þegar ég
var ungur og hrokafullur svaraði ég
því einhvern tímann til að ég myndi
ekki fara að leika í útvarpsleikhúsi
þar sem einvörðungu er unnið með
texta fyrr en ég væri orðinn farlama,“
segir Árni Pétur og tekur fram að
hann hafi verið einstaklega heppinn
með samstarfsfólk sem hafi haft það
að markmiði að víkka út ramma leik-
hússins, brjóta upp formið og þróa
nýjar leiðir.
„Ég hef unnið mikið með Rúnari
Guðbrandssyni í Lab Loka, krökk-
unum í Vesturporti sem hafa verið
óhræddir við að fara nýjar leiðir og
Steinunni Knútsdóttur, forseta sviðs-
listadeildar Listaháskóla Íslands, í
þróun netleikhúss,“ segir Árni Pétur
og fagnar því hversu margt ungt fólk
sé nú opið fyrir tilraunastarfi.
„Markaðurinn fyrir tilraunasýn-
ingar er vissulega ekki stór, en það
skiptir engu máli. Aðalatriðið er að
flóran sé fyrir hendi, því listin þarf
alltaf að hafa marga möguleika,“ seg-
ir Árni Pétur og tekur fram að til-
raunaleikhúsið sé mikilvæg viðbót við
markaðsleikhúsið svonefnda. „Þar
með er ég ekki að setja út á stofn-
analeikhúsið, enda er það jafn-
nauðsynlegt þjóðinni og Sinfóníu-
hljómsveitin. Við þurfum hins vegar
alla flóruna og vaxtarbroddurinn er í
tilraunaleikhúsinu.“
Spurður hvort hann sé búinn að
eyrnamerkja styrkinn í eitthvað
ákveðið segist Árni Pétur ætla að
nýta hann til endurmenntunar er-
lendis. „Ég hef mikið verið að skoða
hvernig leikarinn, rödd hans og
hreyfingar breytast með aldrinum.
Ég gæti hugsað mér að læra butoh
sem er japönsk danstækni eða fara í
einhverja brjálaða raddþjálfun.“
Aðspurður um næstu verkefni seg-
ist Árni Pétur vera að leggja drög að
leiksýningu í samvinnu við Rúnar um
rithöfundinn Harald Hamar, son
Steingríms Thorsteinssonar. „Á
yngri árum dvaldi hann í Kaup-
mannahöfn og London, en vegna
samkynhneigðar sinnar var hann
vanaður við heimkomuna til Íslands,
þá hálffimmtugur,“ segir Árni Pétur,
en Haraldur lést 65 ára 1957.
Mikill heiður
„Ég er djúpt snortinn, enda er
þetta mikill heiður. Mér þykir mjög
vænt um að tilheyra þessum hópi sem
hefur hlotið stjakann,“ segir Björn
Thors, en svo skemmtilega vill til að
Unnur Ösp Stefánsdóttir, eiginkona
Björns, hlaut stjakann 2012 og Stefán
Baldursson, tengdafaðir hans, 1980
sama ár og hann tók við leikhús-
stjórastöðu hjá Leikfélagi Reykjavík-
ur. „Maður fær smá fiðring þegar
maður les yfir lista styrkþega því
þetta er ekkert smá nafnakall og
flottur hópur.“
Björn tekur fram að sér þyki líka
sérstaklega vænt um að Stefaníu-
stjakinn sé afhentur í Iðnó. „Því þar
tóku bæði amma mín, Helga Valtýs-
dóttir, og kona mín sín fyrstu skref
sem leikkonur,“ segir Björn og rifjar
upp að frumraun Helgu hjá Leik-
félagi Reykjavíkur hafi verið í Góðir
eiginmenn sofa heima í febrúar 1952
en Unnur Ösp var aðeins níu ára þeg-
ar hún lék í Landi míns föður sem
frumsýnt var í október 1985.
Aðspurður segist Björn ekki búinn
að ákveða hvernig hann hyggist nýta
styrkféð. „En það væri vissulega
gaman að nýta peningana í að ferðast
og skoða leikhús, því það er mikil-
vægt að líta reglulega í kringum sig
og sækja sér innblástur. Innblástur-
inn er mikilvægt eldsneyti fyrir fram-
tíðina og dugir svo lengi. Þannig að
við hjónin munum eflaust reyna að
gera það þegar yngstu börnin eru
orðin aðeins eldri,“ segir Björn en
þau Unnur Ösp eignuðust tvíbura í
mars sl. og áttu fyrir tvö börn sem
eru fimm og níu ára.
Inntur eftir því hvaða verkefni bíði
hans á komandi leikári segir Björn að
fyrst um sinn muni hann einbeita sér
að Broti úr hjónabandi sem sé í sínum
huga algjört draumaverkefni. „Við
Unnur tökum okkur ríflegt fæðingar-
orlof og ætlum ekkert að flýta okkur
að fara á fullt í vinnu meðan börnin
eru svona lítil. Við urðum að hætta
með Brot úr hjónabandi fyrir fullu
húsi út af meðgöngunni, en tökum
sýninguna upp aftur í nóvember.
Miðað við viðtökur leikhúsgesta býst
ég alveg eins við því að við sýnum
sýninguna út næsta leikár, enda mun-
um við í ljósi stöðunnar ekki leika
hana sex sinnum í viku eins og gerð-
um áður.“
Morgunblaðið/Ófeigur
Ánægður Björn Thors var að vonum glaður í Iðnó í gær þegar hann tók við myndarlegri peningaupphæð ásamt
sérsmíðuðum kertastjaka. Félagi hans, Árni Pétur Guðjónsson, var því miður ekki við myndatökuna.
„Djúpt snortinn“
Árni Pétur og Björn Thors hljóta Stefaníustjakann
„Þetta er mikilvæg viðurkenning,“ segir Árni Pétur
SÝND KL. 8, 10.20
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
SÝND KL. 2, 4, 6
SÝND KL. 8, 10.20
SÝND KL. 4.30
ÍSL. TAL
ÍSL. TAL
SÝND KL. 2
ÍSL. TAL
SÝND KL. 2, 5
SÝND KL. 8, 10.30