Morgunblaðið - 17.06.2017, Qupperneq 12
Edda og jafn-
framt að í Iðnó sé
búið að setja
upp þennan
líka fína tísku-
sýningarpall.
Kolbrún áréttar
að þótt viðburðurinn
hverfist um tísku sé hvorki um að
ræða tískusýningu í eiginlegum skiln-
Hópurinn Leikhúslistakonur 50+ var stofnaður óformlega af nokkrum leik-
húslistakonum í ágúst 2014 í þeim tilgangi að setja á svið áhugaverða viðburði
sem gætu haft áhrif og breytt viðhorfum fólks til þátttöku eldri kvenna í list-
um.
Fljótlega fjölgaði í hópnum og var félagið Leihúslistakonur 50+ form-
lega stofnað 21. mars í fyrra. Félagskonur eru nú milli 60 og 70. Konur og
krínólín er stærsta verkefni félagsins fram til þessa og hafa æfingar
staðið yfir um tveggja mánaða skeið. Nokkuð stopult þó því flestar
eru konurnar í fullu starfi eða með alls konar verkefni í leikhúsum,
við kvikmyndir og sjónvarp eða á öðrum vettvangi.
Eitt af markmiðum félagskvenna er að vekja athygli á að
þroski og reynsla kvenna yfir fimmtugt úr leikhúsheiminum sé
sannkallaður fjársjóður sem vert sé að nýta.
Fjársjóður í reynslu og þroska
LEIKHÚSLISTAKONUR 50+
förðunarfræðingur, hárkollu-
og hárgreiðslumeistari, ball-
erína, leikhúsfræðingur og
síðast en ekki síst „dress-
erar“, eins og þeir sem klæða
sviðslistafólkið í og úr milli
atriða eru kallaðir á leik-
húsmáli.“
Flestir búningarnir eru
fengnir að láni hjá Þjóðleik-
húsinu og úr búninga- og skart-
gripasafni Helgu Björnsson,
sem á árum áður var hönnuður
hjá frægustu tískuhúsum Par-
ísar og hefur haft yfirumsjón
með hönnun sýningarinnar.
Kolbrún lýkur einnig lofs-
orði á Ingveldi E. Breið-
fjörð, saumakonu og
„dresser“ í Þjóðleikhús-
inu í áratugi, sem hefur
yfirfarið hvern búning
og jafnvel saumað það
sem vantaði inn í.
„Við stiklum á
stóru í tískusögunni;
frá krínólíni til ras-
spúða, frá efnis-
litlum charleston-
kjólum til tjull-
kjóla í ætt við
rjómatertur og
konfektkassa, frá
litla svarta kjóln-
um til Hagkaups-
sloppsins,“ upp-
lýsa Kolbrún og
Tískusagan
færð í stílinn
Leikhúslistakonur 50+ taka þátt í 17. júní hátíð-
arhöldunum í Reykjavík með því að gefa hátíð-
argestum innsýn í tískuheim liðinnar aldar.
Hátt á þriðja tug kvenna úr öllum kimum leik-
húsheimsins leggur hönd á plóg í listgjörn-
ingnum Konur og krínólín, sem fluttur verður kl.
16 í dag í Iðnó. „Dresserinn“ leikur stórt hlutverk
og Hagkaupssloppur kemur við sögu.
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Það er ekki þurr þráður áokkur eftir æfingar. Ef viðhefðum vigtað okkur áðuren við byrjuðum að æfa
væri árangurinn mælanlegur í mörg-
um kílóum. Við stælumst á líkama og
sál. Þetta er búið að vera óskaplega
skemmtilegt og líka gott fyrir heils-
una,“ segir Kolbrún Halldórsdóttir,
sem ásamt hátt á þriðja tug lista-
kvenna í hópnum Leikhúslistakonur
50+, gefur áhugasömum innsýn í
tískuheim liðinnar aldar í Iðnó í dag.
Raunar spannar listgjörningurinn
Konur og krínólín tímabilið allt frá
1890, en gefur tískunni frá 1990 hins
vegar engan gaum. „Eftir þann tíma
hefur enda ekkert gerst í tískunni,
„eigthies“ var toppurinn,“ segir hún
kankvís á svip. Hugmyndasmiður og
handritshöfundur gjörningsins, Edda
Björgvinsdóttir, er hjartanlega sam-
mála. Báðar eru líka svolítið veikar
fyrir krínólínum, eða pilsaglennum
eins og þau eru líka kölluð, og konur
brúkuðu fyrir aldamótin 1900.
Frá krínólíni til rasspúða
„Konurnar sem standa að sýn-
ingunni eru úr öllum kimum leikhúss-
ins,“ segir Kolbrún og þylur upp
starfsheitin: „Leikkonur, leikstjórar,
búningahönnuður, tískuhönnuður,
saumakona, leikmyndahönnuður,
ingi né vísindalega heimildasýningu
um tísku gegnum tíðina.
Ekki fíflagangur en
vel hægt að hlæja
„Listgjörningurinn er afrakstur
samvinnu og þróunarvinnu margra
fjölhæfra listakvenna með mikla og
ólíka reynslu úr leikhúsheiminum.
Við kynntum okkur tísku og tónlist
Morgunblaðið/Eggert
Hippinn og skartkonan Edda í hippalegum fötum frá 1970-1980 og Kolbrún
skrautlega búin í múnderíngu eins og þótti flottust um 1910-1920.
1890-1900 Vil-
borg Halldórs-
dóttir í krínólíni.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2017
Sími: 535 1200 | sala@iskraft.is | iskraft.is
Fjöldi þekktra vörumerkja
sem fagmaðurinn þekkir og treystir
Fáðu ráð hjá fagmönnum
um val á lýsingu
hefur tekið höndum
saman við alþjóð-
lega hönnuði um
að kynna nýjar
lausnir í lýsingu
með steinsteypu,
við og áli.
S
te
yp
a
V
ið
ur Á
l
Þeir sem eru áhugasamir um ís-
lenska þjóðbúninga og langar að
vita meira um þá, eða vilja fá leið-
beiningar um hvernig laga megi eða
breyta eigin þjóðbúningi, ættu að
gera sér ferð í Norska húsið í
Stykkishólmi nk mánudag, 19. júní,
kl. 17-20. Þá ætla góðir gestir frá
Heimilisiðnaðarfélagi Íslands að
koma þangað í heimsókn, þær
Oddný Kristjánsdóttir, klæðskeri og
kennari í þjóðbúningasaumi, Inda
Dan Benjamínsdóttir, kennari í bal-
dýringu og flauelsskurði, og Guð-
björg Inga Hrafnsdóttir kniplkenn-
ari. Í tilkynningu kemur fram að
boðið verði upp á fræðslu um þjóð-
búninga og þá sérstaklega geymslu
þeirra og varðveislu. Gestum býðst
að koma með eigin búninga til
skoðunar, til dæmis með tilliti til að
kanna möguleika á lagfæringum og
breytingum auk þess sem Inda og
Guðbjörg munu baldýra og knipla
gestum til yndisauka.
Allir eru velkomnir og boðið verð-
ur upp á veitingar í hléi. Skráning
fer fram hjá Hjördísi Pálsdóttur í
síma 865-4516 eða á netfanginu
hjordis@norskahusid.is
Þjóðbúningafræðsla í Norska húsinu Stykkishólmi
Fólki boðið að koma með eigin
þjóðbúninga til skoðunar
Morgunblaðið/Kristinn
Glæsilegt Þau eru heldur betur fögur klæðin sem heita þjóðbúningar.