Morgunblaðið - 17.06.2017, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 17.06.2017, Blaðsíða 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2017 Systir mín sem skírð var Ágústa í höfuðið á föður- ömmusystur sinni sem dó ung af berkl- um var mikil gæðamanneskja. Hún var þroskaheft á sumum sviðum og í hennar æsku voru ekki margir möguleikar til að þroskast og læra. Gert var ráð fyrir því af stjórnvöldum og al- menningi að þessi börn væru í umsjá mæðra sinna og fjöl- skyldu. Einn skóli var í Reykja- vík þar sem tornæmum börum var kennt að lesa, reikna einföld dæmi og á klukku. Gústa var send í þennan skóla og lærði vel að lesa og skrifa enda fékk hún mikla örvun heima fyrir. Þrátt fyrir fötlun sína var Gústa mjög glaðlynd og auðvelt að annast um hana af mömmu og Viddý systur. Við þrjú; Sævar, ég og Gústa vorum fædd á þrem ár- um þannig að við strákarnir tók- um engan þátt í umönnun hennar og vorum frekar að þvælast fyrir. Lífið var ekki auðvelt fyrir Gústu á unglingsárunum enda erfitt að uppgötva að þrátt fyrir að vera falleg, blíð og góð þá stóð hún ekki jafnfætis öðrum börnum. Það var mikil gæfa fyrir hana að kynnast manninum sínum til- vonandi á Heilsuhælinu í Hvera- gerði. Hún giftist Kidda, Kristni Fjóla Baldursdóttir ✝ Fjóla Bald-ursdóttir (skírð Ágústa) fæddist 20. október 1949. Hún lést 5. júní 2017. Útför Fjólu fór fram 12. júní 2017. Gíslasyni, á þrítugs- afmælinu sínu. Þau bjuggu alla sína tíð í Hveragerði og leið vel þar enda ein- staklega vel hugsað um þau af öllum stofnunum Hvera- gerðisbæjar. Þau fengu alla þá hjálp sem þau þurftu fyrir sig og hundana sína, Snata og Snotru, sem voru þeim eins og börn. Á þessum árum fékk Gústa þá hugmynd að ömmusystir hennar væri ekki sátt við að hún bæri nafnið og endaði það með því að hún skipti um nafn löglega og hét eftir það Fjóla. Systkini Fjólu voru misjafnlega sátt við þetta uppátæki og sum kölluðu hana aldrei Fjólu en Fjóla var vilja- sterk og ákveðin og stóð við ákvörðun sína. Fjóla var að mörgu leyti merkileg persóna og hafði áhrif á þá sem kynntust henni. Hún var gegnheil gæðakona. Viljasterk, ákveðin, skýr, minnisgóð, ein- staklega barngóð og lagði gott til allra. Eftir andlát Kidda fór Fjóla á Dvalarheimilið Ás í Hveragerði þar sem hún fékk einstaklega hlýja og góða umönnun. Viddý systir var alla tíð sú sem hugsaði mest um Fjólu ásamt manninum sínum Axel og kallaði á okkur strákana ef mikið lá við. Ég kveð systur mína með þökkum fyrir samveruna – það var mannbætandi að vera með henni. Helgi. Elsku Óskar okkar, mágur og svili. Það er þung stund að setjast niður og skrifa þessi ótímabæru kveðjuorð til þín. Á svona stundum lætur maður hugann reika, leyfir sér að fara aftur í tímann og rifja upp gamlar og nýrri, góðar minningar. Það fyrsta sem kemur upp í huga okkar er orðið „stórt“ og næst á eftir því þá líklega orðið „mik- ið“. Því allt sem þú gerðir var gert veglega. Heimili ykkar Öggu systur er bæði stórt og fallegt og synir ykkar stórir, fal- legir og stæðilegir drengir. Við þekkjum fáa sem voru eins dug- legir að bjóða í mat eins og þið. Ykkur munaði aldrei um það að hafa marga í mat, fjölskyldurn- ar ykkar öðrum hvorum megin eða báðar. Alltaf var nóg handa öllum og vel það. Borðið var dregið út, stólar sóttir um allt hús, oftar en ekki skellt fullt af dýrindis mat á stóra grillið ykk- Óskar Arnarsson ✝ Óskar Arn-arsson fæddist 3. febrúar 1963. Hann lést 31. maí 2017. Útför Óskars fór fram 13. júní 2017. ar sem sóttur hafði verið í einhvern frystiskápinn, nú eða einhvern ís- skápinn. Sennilega ekki svo mörg heimili sem hafa tvo ískápa í eldhús- inu en það fannst þér nú einmitt bráðnauðsynlegt, nóg af öllu handa öllum. Mikill samgangur hefur verið á milli heimilanna okkar, Vest- urbæingarnir oft og iðulega í Grindavíkinni og Grindvíking- arnir svo mjög heimakærir í KR hverfinu. Öllum hefur liðið vel og oft ekki mátt á milli sjá hvaða barn tilheyrir hvaða heimili. Alltaf stóðu ykkar dyr opnar og öllum leið eins og á heimavelli. Þó mikill ys og þys væri á heimili þínu þá varst þú ekki mikið í að stjórnast eða skipa fyrir, þú varst lítið fyrir það að trana þér fram eða vera miðpunktur nokkursstaðar. Hins vegar varst þú alltaf þarna og tókst vel á móti okkur öllum, ljúfur og traustur að vanda. Það er varla hægt að kveðja þig án þess að minnast á stóra daginn ykkar hjóna, brúðkaupið mikla í Grímsey 15. ágúst 2007. Mikið af gestum kom til eyj- arinnar og má segja að brúð- kaupið hafa staðið yfir í nokkra daga í rjómablíðu og mikilli gleði. Þetta er sennilega það brúðkaup sem líður mönnum seint úr minnum, svo skemmti- legt var það. Áður en ég (Helga Fríður) kveð langar mig að segja þér frá minningunni sem ég ætla að varðveita og hefur verið með mér síðan fregnin af andláti þínu barst. En það var í síðasta skipti sem ég sá þig, við hitt- umst fyrir utan Smáralindina núna í maí, ég að skila drengj- unum þínum til þín eftir Grinda- víkurdvöl þar sem mamman var í Ameríku og pabbinn á sjónum. Þvílíkir fagnaðarfundir þegar drengirnir þínir sáu þig, stukku upp í fangið á þér og mikið var faðmast, hlegið og kysst. Falleg minning sem ég mun nú geyma. Elsku Óskar, stórt skarð er hoggið í hjörðina okkar við frá- fall þitt en minning þín mun lifa með okkur öllum með Ragnhildi þinni og drengjunum. Við trúum því að nú leggir þú net í rennisléttum sjó með hon- um pabba þínum, þar hafa nú einnig verið fagnaðarfundir. Hittumst aftur, Helga Fríður og Pétur. Kæri Óskar. Það er þyngra en tárum taki að kveðja þig eftir 19 ára kynni. Fyrstu kynnin voru í afmælis- veislu hjá Öggu er hún var þrí- tug. Þú varst alveg einstakur barnakarl og fengu öll börn að njóta þinnar gæsku. Því var ósvikin gleðin þín þegar þið eignuðust ykkar fallegu gull- mola. Ósjaldan voru okkar börn búin að njóta gæsku þinnar og er okkur efst í huga þegar þau yngri voru hjá ykkur og dóttur okkar fannst poppið vera farið að kólna og vildi fá heitt popp. Það var auðfengið og færðir þú henni heitt popp með hraði. Oft höfum við skemmt okkur yfir hversu stórtækur þú varst. Ef kaupa átti t.d. eina kók, þá keyptir þú fimm. Alltaf stóð heimili þitt opið okkur og öllum sem þú þekktir. Dýrindis matarveislur og gómsætar kræsingar sem þið hjónin reidduð fram, að ógleymdum þínum frábæru brauðtertum, matarmiklum og fallega skreyttum. Þú varst mjög handlaginn. Nýbúinn að breyta neðri hæðinni allri í mjög svo smekklegt og fallegt heimili. Hugmyndaflugið var ótæmandi eins og t.d. gamli, ónýti ísskápurinn sem stendur í bílskúrnum. Þú breyttir honum í þurrkskáp fyrir föt og skó. Elsku Óskar, við þökkum sam- fylgdina. Þín verður sárt sakn- að. Elsku Agga, Arnar Þorri og Garðar Ernir, okkar dýpstu samúðarkveðjur. Alfreð og Ragnhildur (Alli og Gagga). Það er skrýtið að hugsa til þess í dag hversu mörkin milli lífs og dauða eru lítil. Á sama tíma og ég kveð ömmu Diddu fagna ég einnig nýju lífi sonar míns sem amma beið svo lengi eftir. Amma lá aldrei á skoðunum sínum og talaði ávallt opinskátt um allt. Hún var mikill stuðnings- maður þess að ég fjölgaði mannkyninu og fannst við Öddi heldur róleg í tíðinni að eignast barn þessi 16 ár sem við höfum verið saman. Það var því gam- an að segja henni tíðindin í des- ember sl. að loksins væri von á barni. Það var líka ótrúleg tilviljun að drengurinn sem átti að koma í heiminn í dag, 16. júní, skyldi drífa sig í heiminn 26. maí þannig að amma náði að frétta af komu drengsins, sjá myndir og heyra nafnið hans. Núna virðist manni að þetta hafi allt átt að fara svona. Hún amma Didda var ynd- isleg amma og það voru mikil forréttindi að fá að alast upp svona nálægt henni. Þær eru ófáar barnaminningarnar úr Kollsvíkinni þar sem amma kemur við sögu. Hún hafði mikla þolinmæði gagnvart okk- ur barnabörnunum, hvort sem það sneri að því að kenna manni að búa til kartöflunammi eða föndra jólaskraut úr dönsku blöðunum. Tímunum saman gat hún set- ið við eldhúsborðið á Láganúpi og leiðbeint litlum puttum við verkin. Inn á milli greip hún svo í símann eða kíkinn úr eldhús- glugganum. Stundirnar við eld- húsborðið á Láganúpi voru svo ótrúlega margar og skemmti- legar. Þar sat hún líka og mál- aði fallegu steinana sína. Sigríður Guðbjartsdóttir ✝ Sigríður Guð-bjartsdóttir fæddist 5. ágúst 1930. Hún lést 6. júní 2017. Útför Sigríðar fór fram 16. júní 2017. Á sumrin átti garðurinn alla hennar athygli en það var ævintýra- legur staður þar sem ýmislegt góð- gæti varð til. Mörgum dögum var eytt með ömmu í garðinum þar sem maður lærði um gróður- inn og reytti bless- aðan arfann. Í verðlaun fyrir vel unnin störf fékk maður svo rófu sem amma skóf í ræmur með grófum eldhúshníf. Amma Didda var dugnaðar- forkur, á hverjum degi fór hún í brúna vinnugallanum og bláu stígvélunum í fjósið að taka til hendinni. Þar kenndi hún manni að handmjólka og sagði manni hvernig sveitaverkin voru unn- in í gamla daga. Eiginlega var eini tíminn sem amma fór ekki í fjósið aðfangadagskvöld en þá eldaði hún jólasteikina ofan í fjölskylduna. Amma var líka mikið hörku- tól og tókst á við áföll og veik- indi með jafnaðargeði og húm- orinn var aldrei langt undan. Eftir að fæturnir brugðust henni og maður spurði hana hvort hún væri ekki þreytt, fékk maður oft það svar að það væri nú ekki eins og hún hefði verið á fótum allan daginn. Þrátt fyrir að þessi kveðju- stund sé hluti af gangi lífsins er afskaplega erfitt að kveðja ömmu Diddu. Stundirnar sem við áttum saman á síðustu ár- um eru mér dýrmætar enda fjölgaði þeim þegar við Öddi fórum að gera Gamla spítalann upp. Þá var stutt að rölta upp sjúkrahúsbrekkuna og kíkja á ömmu í gott spjall. Þín verður sárt saknað, elsku amma mín, en ég veit að afi Össur hefur tekið vel á móti þér hvar sem þið eruð. Ég kveð þig nú í síðasta sinn með sömu kveðju og við notuðum alltaf í samtölum okkar. Við heyrumst og sjáumst síðar, amma mín. Blessuð. Rebekka Hilmarsdóttir. Útfarar- og lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Útfararstofa kirkjugarðanna Magnús Sævar Magnússon, umsjón útfara Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Við önnumst alla þætti undir- búnings og framkvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir síðan 1996 ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR GUÐMUNDSSON, Sóleyjarrima 1, Reykjavík, lést á heimili sínu 21. maí. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð. Ólöf Halldórsdóttir Þórdís Sigurðardóttir Óskar Magnússon Birna Sigurðardóttir Helgi Þór Hjálmarsson barnabörn og langafabörn Áskær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐLAUGUR TRYGGVI ÓSKARSSON, Borgarholtsbraut 53, Kópavogi, lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 11. júní. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 20. júní klukkan 15. Þorbjörg Árnadóttir Guðný Guðrún Guðlaugsd. Dýrleif Júlía Guðlaugsdóttir Tómas Ellert Tómasson Andri Þór, Sandra Lind Steinrún Dalía og Sylvía Björk Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, RUTAR SIGURÐADÓTTUR, Hrafnistu, Reykjavík, áður Árskógum 8. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Hrafnistu fyrir alúð og umhyggju. Guðmundi Rúnarssyni lækni þökkum við einstaka umönnun undanfarin ár. Birna Ágústsdóttir Júlíus Sigmundsson Guðlaugur Ágústsson Sigríður Ósk Pálmadóttir Ævar Ágústsson Ragnheiður Júníusdóttir Ína Björg Ágústsdóttir Haraldur Hansson Magnús Ágústsson Reynee Rose Agustsson Berglind Ágústsdóttir Hjálmar Hjálmarsson Linda Sjöfn Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn Kærar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar INGVELDAR GUÐMUNDSDÓTTUR. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hrafnistu, Reykjavík, fyrir umönnun, vinskap og hlýju. Kristján Ólafsson Áslaug Friðriksdóttir Guðrún Þ. Ólafsdóttir Ólafur V. Skúlason Sigurður Ingi Ólafsson Kristjana L. Rasmussen Ove L. Rasmussen Hjördís Ólafsdóttir Halldór Ingvason Unnur Ólafsdóttir Stefnir Helgason barnabörn og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.