Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.01.2017, Blaðsíða 29

Læknablaðið - 01.01.2017, Blaðsíða 29
LÆKNAblaðið 2017/103 29 Mikil alþjóðleg vakning hefur átt sér stað á síðustu árum varð- andi mikilvægi heilsugæslu. Heilbrigðiskerfi heimsins standa frammi fyrir miklum áskorunum. Öldrun þjóða, innreið lífs- stílssjúkdóma og fjölgun sjúklinga með flókinn heilsuvanda er ekki bara orðin tóm. Flestir eru sammála um að heilbrigðiskerfin þurfi að bregðast við skjótt. Það er heilsugæslan sem á áhrifarík- astan hátt getur svarað þessum áskorunum. Heilsugæslan ann- ast fólk og læknar það, veitir hvatningu og eflir fólk á öruggan og árangursríkan hátt. Heilsugæslan veitir þjónustu sína á ytri mörkum heilbrigðiskerfisins og er tengiliður þess við sjúkrahús og sérfræðinga. Heilsugæslan flokkar ekki fólk eftir sjúkdóms- greiningum, eða aldri, allir eru velkomnir alltaf. Þetta er það sem liggur að baki þegar gerð er krafa um að heilsugæslan eigi að vera „fyrsti viðkomustaðurinn“. Til þess að annars og þriðja stigs heilbrigðisþjónusta geti sinnt hlutverki sínu þarf að vera hægt að reiða sig á heilsugæsluna. Heilsugæslan á Íslandi hefur hins vegar liðið fyrir langvarandi undirfjármögnun og stjórnunarvanda. Megin rekstrarmarkmið stærstu heilbrigðisstofnana sem reka heilsugæslu hefur verið að skila stofnunum réttum megin við fjárheimildir. Til viðbótar kom átakanlegur niðurskurður árið 2008 sem þjónustan hefur liðið fyrir. Heilsugæsla á landsbyggðinni stendur veikt og er læknisþjón- ustan víða rekin með aðstoð afleysara í verktöku. Slíkt er ekki boðlegt. Fórnarkostnaðurinn við að skila hallalausum rekstri hefur verið heilsugæsla í sárum sem ekki nær að sinna hlutverki sínu og starfsánægja í lágmarki. Til samanburðar má nefna að í fjármögnunarlíkani því í Svíþjóð sem er fyrirmynd fjármögn- unarlíkans þess sem á að innleiða á næsta ári í heilsugæslu er fjármögnunin um 40% meiri. Þó er skólaheilsugæsla og mæðra- vernd ekki inni í sænska líkaninu. Þá væri munurinn enn meiri. Í janúar á þessu ári kom út rannsóknarskýrsla fyrir alþingi þeirra Svía, Riksdagen, þar sem rannsóknaraðilum var falið koma með tillögur að úrræðum til að bæta heilbrigðiskerfið. Skýrslu- höfundar skiluðu viðamiklum tillögum til úrbóta þar sem rauði þráðurinn er að veita þjónustuna á forsendum sjúklingsins í sam- ráði við sjúklinginn á viðeigandi stað og af viðeigandi aðilum. Efla þyrfti samfellu í þjónustunni og styrkja lárétt samstarf milli mismunandi aðila innan heilbrigðiskerfisins. Auka þyrfti innsæi og skilning mismunandi aðila í kerfinu á starfi hvers annars. Skýrslan er 800 blaðsíður en á síðu 30 í samantekt um skýrsluna segir eftirfarandi: „Rannsóknin sýnir þar að auki að efling heilsugæslunnar er að öllum líkindum árangursríkasta staka úrræðið til að auka jöfnuð í heilsu borg- aranna. Við leggjum þess vegna til löggjöf á landsvísu sem skilgreinir verkefni heilsugæslunnar.“ Á vef Ríkisendurskoðunar má sjá að stofnunin hefur ákveðið að eigin frumkvæði að fara í úttekt á stærsta veitanda heilsugæslu á Íslandi, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Tilefnið er fyrir- ferðarmikil umræða um málefni heilsugæslunnar og gagnrýni fyrir langa bið eftir læknisþjónustu. Með hliðsjón af mikilvægi heilsugæslunnar í heilbrigðiskerfinu ákvað Ríkisendurskoðun að kanna hvernig heilsugæslan stæði undir hlutverki sínu sem fyrsti viðkomustaðurinn í heilbrigðiskerfinu. Þegar þessi orð eru rituð hafa niðurstöður Ríkisendurskoðunar ekki enn verið birtar. Ljóst er að heilsugæslan á Íslandi er verulega undirmönnuð, sérstaklega af læknum. Í sérnámi hérlendis hafa verið 30-40 námslæknar undanfarið og 4-9 útskrifast að jafnaði á ári. Ef við miðum okkur við Svía ættu hér að vera 80 sérnámslæknar og þrír kennslustjórar fjármagnaðir af velferðarráðuneyti. Hér þarf að bæta verulega í. Samhliða þarf að efla kennslu í heimilislækningum við lækna- deild Háskóla Íslands til að kynna fagið betur og fá fleiri unga lækna í heimilislækningar. Sú kerfisbreyting sem núverandi heilbrigðisráðherra hefur staðið fyrir verður að mínu mati mjög til bóta fyrir almenning. Tvær nýjar heilsugæslustöðvar verða opnaðar á næsta ári og þannig stigið mikilvægt skref til þess að byggja upp heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu. Markmiðin sem sett eru fram í um- bótaáætlun heilbrigðisráðherra, eins og nafngreindur heimilis- læknir fyrir alla og kröfulýsing fyrir veitendur þjónustunnar, eru mjög í takt við alþjóðleg gæðaviðmið um þjónustuna sem veita á. Þjónustan, sem kallar á auðvelt aðgengi og samfellda og persónulega umönnun við sjúklinga með flókin vandamál, krefst aukinnar teymisvinnu eins og gert er ráð fyrir í tillögum ráðherra. Jöfnun fjármögnunar eykur sjálfstæði notandans og er réttlátari gagnvart þeim er veitir þjónustuna. Kröfulýsing fyrir heilsugæslu hefur því miður ekki verið kostnaðargreind og aukin gæði og fleiri verk efni kalla auðvitað á aukið fjármagn. Þannig hefur uppbygging og umgjörð verið bætt verulega en til þess að breytingarnar skili árangri þarf að fylgja fjármagn til fram- kvæmda á umbótunum. Þorbjörn Jónsson formaður Orri Þór Ormarsson varaformaður Björn Gunnarsson gjaldkeri Magdalena Ásgeirsdóttir ritari Agnar H. Andrésson Arna Guðmundsdóttir Hjalti Már Þórisson Jóhanna Ósk Jensdóttir Þórarinn Ingólfsson Stjórn LÍ Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í Heilsugæsla á tímamótum! Þórarinn Ingólfsson heilsugæslulæknir í Efra-Breiðholti og formaður Félags íslenskra heimilislækna thorarinn.Ingolfsson@heilsugaeslan.is Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Læknadagar eru í góðum höndum Iceland Travel Ráðstefnur hefur haldið utan um skipulag Læknadaga til margra ára. Iceland Travel Ráðstefnur sérhæfir sig í skipulagningu, undirbúningi og utanumhaldi ráðstefna og funda. Nánari upplýsingar um þjónustu okkar er hægt að nálgast á www.conferences.is • Skógarhlíð 12 105 Reykjavík conferences@icelandtravel.is www.conferences.is Sími 585 4200 R ÁÐSTEFNUR RÁÐSTEFNUR FUNDIR VIÐBURÐIR C M Y CM MY CY CMY K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.