Læknablaðið - 01.01.2017, Qupperneq 29
LÆKNAblaðið 2017/103 29
Mikil alþjóðleg vakning hefur átt sér stað á síðustu árum varð-
andi mikilvægi heilsugæslu. Heilbrigðiskerfi heimsins standa
frammi fyrir miklum áskorunum. Öldrun þjóða, innreið lífs-
stílssjúkdóma og fjölgun sjúklinga með flókinn heilsuvanda er
ekki bara orðin tóm. Flestir eru sammála um að heilbrigðiskerfin
þurfi að bregðast við skjótt. Það er heilsugæslan sem á áhrifarík-
astan hátt getur svarað þessum áskorunum. Heilsugæslan ann-
ast fólk og læknar það, veitir hvatningu og eflir fólk á öruggan
og árangursríkan hátt. Heilsugæslan veitir þjónustu sína á ytri
mörkum heilbrigðiskerfisins og er tengiliður þess við sjúkrahús
og sérfræðinga. Heilsugæslan flokkar ekki fólk eftir sjúkdóms-
greiningum, eða aldri, allir eru velkomnir alltaf. Þetta er það sem
liggur að baki þegar gerð er krafa um að heilsugæslan eigi að
vera „fyrsti viðkomustaðurinn“.
Til þess að annars og þriðja stigs heilbrigðisþjónusta geti sinnt
hlutverki sínu þarf að vera hægt að reiða sig á heilsugæsluna.
Heilsugæslan á Íslandi hefur hins vegar liðið fyrir langvarandi
undirfjármögnun og stjórnunarvanda. Megin rekstrarmarkmið
stærstu heilbrigðisstofnana sem reka heilsugæslu hefur verið að
skila stofnunum réttum megin við fjárheimildir. Til viðbótar kom
átakanlegur niðurskurður árið 2008 sem þjónustan hefur liðið
fyrir.
Heilsugæsla á landsbyggðinni stendur veikt og er læknisþjón-
ustan víða rekin með aðstoð afleysara í verktöku. Slíkt er ekki
boðlegt. Fórnarkostnaðurinn við að skila hallalausum rekstri
hefur verið heilsugæsla í sárum sem ekki nær að sinna hlutverki
sínu og starfsánægja í lágmarki. Til samanburðar má nefna að
í fjármögnunarlíkani því í Svíþjóð sem er fyrirmynd fjármögn-
unarlíkans þess sem á að innleiða á næsta ári í heilsugæslu er
fjármögnunin um 40% meiri. Þó er skólaheilsugæsla og mæðra-
vernd ekki inni í sænska líkaninu. Þá væri munurinn enn meiri.
Í janúar á þessu ári kom út rannsóknarskýrsla fyrir alþingi
þeirra Svía, Riksdagen, þar sem rannsóknaraðilum var falið koma
með tillögur að úrræðum til að bæta heilbrigðiskerfið. Skýrslu-
höfundar skiluðu viðamiklum tillögum til úrbóta þar sem rauði
þráðurinn er að veita þjónustuna á forsendum sjúklingsins í sam-
ráði við sjúklinginn á viðeigandi stað og af viðeigandi aðilum.
Efla þyrfti samfellu í þjónustunni og styrkja lárétt samstarf milli
mismunandi aðila innan heilbrigðiskerfisins. Auka þyrfti innsæi
og skilning mismunandi aðila í kerfinu á starfi hvers annars.
Skýrslan er 800 blaðsíður en á síðu 30 í samantekt um skýrsluna
segir eftirfarandi:
„Rannsóknin sýnir þar að auki að efling heilsugæslunnar er að öllum
líkindum árangursríkasta staka úrræðið til að auka jöfnuð í heilsu borg-
aranna. Við leggjum þess vegna til löggjöf á landsvísu sem skilgreinir
verkefni heilsugæslunnar.“
Á vef Ríkisendurskoðunar má sjá að stofnunin hefur ákveðið
að eigin frumkvæði að fara í úttekt á stærsta veitanda heilsugæslu
á Íslandi, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Tilefnið er fyrir-
ferðarmikil umræða um málefni heilsugæslunnar og gagnrýni
fyrir langa bið eftir læknisþjónustu. Með hliðsjón af mikilvægi
heilsugæslunnar í heilbrigðiskerfinu ákvað Ríkisendurskoðun að
kanna hvernig heilsugæslan stæði undir hlutverki sínu sem fyrsti
viðkomustaðurinn í heilbrigðiskerfinu. Þegar þessi orð eru rituð
hafa niðurstöður Ríkisendurskoðunar ekki enn verið birtar.
Ljóst er að heilsugæslan á Íslandi er verulega undirmönnuð,
sérstaklega af læknum. Í sérnámi hérlendis hafa verið 30-40
námslæknar undanfarið og 4-9 útskrifast að jafnaði á ári. Ef við
miðum okkur við Svía ættu hér að vera 80 sérnámslæknar og þrír
kennslustjórar fjármagnaðir af velferðarráðuneyti. Hér þarf að
bæta verulega í.
Samhliða þarf að efla kennslu í heimilislækningum við lækna-
deild Háskóla Íslands til að kynna fagið betur og fá fleiri unga
lækna í heimilislækningar.
Sú kerfisbreyting sem núverandi heilbrigðisráðherra hefur
staðið fyrir verður að mínu mati mjög til bóta fyrir almenning.
Tvær nýjar heilsugæslustöðvar verða opnaðar á næsta ári og
þannig stigið mikilvægt skref til þess að byggja upp heilsugæslu
á höfuðborgarsvæðinu. Markmiðin sem sett eru fram í um-
bótaáætlun heilbrigðisráðherra, eins og nafngreindur heimilis-
læknir fyrir alla og kröfulýsing fyrir veitendur þjónustunnar,
eru mjög í takt við alþjóðleg gæðaviðmið um þjónustuna sem
veita á. Þjónustan, sem kallar á auðvelt aðgengi og samfellda
og persónulega umönnun við sjúklinga með flókin vandamál,
krefst aukinnar teymisvinnu eins og gert er ráð fyrir í tillögum
ráðherra. Jöfnun fjármögnunar eykur sjálfstæði notandans og er
réttlátari gagnvart þeim er veitir þjónustuna. Kröfulýsing fyrir
heilsugæslu hefur því miður ekki verið kostnaðargreind og aukin
gæði og fleiri verk efni kalla auðvitað á aukið fjármagn. Þannig
hefur uppbygging og umgjörð verið bætt verulega en til þess
að breytingarnar skili árangri þarf að fylgja fjármagn til fram-
kvæmda á umbótunum.
Þorbjörn Jónsson formaður
Orri Þór Ormarsson varaformaður
Björn Gunnarsson gjaldkeri
Magdalena Ásgeirsdóttir ritari
Agnar H. Andrésson
Arna Guðmundsdóttir
Hjalti Már Þórisson
Jóhanna Ósk Jensdóttir
Þórarinn Ingólfsson
Stjórn LÍ
Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í
Heilsugæsla á tímamótum!
Þórarinn Ingólfsson
heilsugæslulæknir í Efra-Breiðholti og formaður
Félags íslenskra heimilislækna
thorarinn.Ingolfsson@heilsugaeslan.is
Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins.
Læknadagar eru
í góðum höndum
Iceland Travel Ráðstefnur
hefur haldið utan um skipulag
Læknadaga til margra ára.
Iceland Travel Ráðstefnur
sérhæfir sig í skipulagningu,
undirbúningi og utanumhaldi
ráðstefna og funda.
Nánari upplýsingar um
þjónustu okkar er hægt að
nálgast á www.conferences.is
•
Skógarhlíð 12
105 Reykjavík
conferences@icelandtravel.is
www.conferences.is
Sími 585 4200
R ÁÐSTEFNUR
RÁÐSTEFNUR FUNDIR VIÐBURÐIR
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K