Læknablaðið - 01.01.2017, Blaðsíða 39
LÆKNAblaðið 2017/103 39
minnistæðir fundir um það efni með þátt-
töku forsvarsmanna þjóðarinnar. Það var
samhugur meðal allra að reka spítalann
áfram í óbreyttri mynd eftir að systurn-
ar létu af stjórn og jafnvel áform um að
sækja fram með viðbyggingu og fleira.
Landakot var spítali sem öllum þótti vænt
um og vildu varðveita og efla. Árið 1986
kom ég aftur til starfa á lyflækningadeild
og gjörgæsludeild á Landakoti eftir fram-
haldsnám. Nú fór í hönd framúrskarandi
tími. Ég kynntist einvalaliði lækna, hjúkr-
unarfræðinga og annars starfsfólks á
Landakoti.
Tómas Árni Jónasson var lyflæknir og
meltingarsérfræðingur sem hafði hlot-
ið frábæra þjálfun á Duke University í
Norður-Karólínu sem hefur verið meðal
fremstu læknaskóla í Bandaríkjunum.
Tómas var einstakt ljúfmenni og frábær
fagmaður og kennari. Hann var dósent
við læknadeild og skipulagði kennslu
læknanema á lyflækningadeildinni. Það
var ánægja að fá að taka þátt í því með
honum en allir sérfræðilæknar stunduðu
kennslu af miklum áhuga og var nám-
skeiðið í lyflækningum á Landakoti eftir-
sótt af stúdentum og kandídatsárið líka.
Tómas var að öllu leyti góð fyrirmynd fyr-
ir unga nemendur jafnt og sérfræðilækni
eins og mig.
Guðjón Lárusson hlaut sína framhalds-
menntun í lyflækningum og innkirtla-
sjúkdómum á Mayo Clinic í Rochester,
Minnesóta. Hann var mjög snjall maður
og nálgun hans við klínískt viðfangsefni
var skipulögð og öguð. Hann var fram-
úrskarandi fær í greiningu erfiðra tilfella
og hafði mjög fágaða framkomu gagnvart
sjúklingum og samstarfsfólki. Fyrir utan
okkar samskipti í lækningum á Landakoti
þar sem hann kenndi mér margt gagnlegt,
naut ég þess að ræða við hann um marg-
víslega hluti og ekki síst tónlist. Guðjón
hafði sérstakan áhuga á klassískri tónlist
og mörgu að miðla í þeim efnum. Hann
hafði mjög ákveðnar skoðanir á tónskáld-
um og flytjendum og hafði stúderað þetta
áratugum saman. Hann benti mér á að
besta hljómsveit allra tíma væri líklega
Philadelphia Orchestra með Eugene Orm-
andy við stjórnvölinn og hef ég síðan eign-
ast margar úrvals upptökur með þeim.
Hann taldi sig vera meðal þeirra fyrstu
hér á landi sem kunnu að meta sinfóníur
Gustavs Mahler, væri „Mahlerít númer
eitt“. Þá hafði hann sérstakt dálæti á pí-
anósnillingnum Wladimir Horowitz og
sagði gjarna „en það er eitthvað sérstakt
við þennan karl“. Hann var ekki einn um
þá skoðun.
Á Landakoti ríkti samband milli sér-
fræðilæknanna sem einkenndist yfirleitt
af trausti og virðingu. Menn sinntu sjúk-
lingunum af alúð, voru aðgengilegir fyrir
ráðgjöf, og gengu yfirleitt stofugang á
hverjum degi, einnig um helgar. Fræðslu-
fundur læknaráðs var á laugardagsmorgn-
um kl. 9 og var ætíð góð mæting á þá
fundi. Landakot var með símenntunarkerfi
sem gerði kröfu til þess að menn uppfylltu
ákveðin skilyrði með fundarsókn og þátt-
töku í erlendum og innlendum læknaþing-
um. Eftir laugardagsfundi og stofugang
hittust menn í kaffistofunni á 6. hæð
spítalans og ræddu um landsins gagn og
voru það oft skemmtilegar umræður. Við
fráfall okkar góðu kollega Tómasar Árna
og Guðjóns rifjast upp fjársjóður minninga
sem er okkur sem störfuðum með þeim á
Landakoti ennþá hvatning til dáða.
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Frá vinstri: Tómas Árni Jónasson, Guðjón Lárusson og Bjarni Jónsson á góðri stund á Landakoti. Myndin er líklega tekin 1977 í hófi til heiðurs St. Jósefssystrum.