Læknablaðið - 01.01.2017, Síða 32
32 LÆKNAblaðið 2017/103
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Læknadagar 2017 verða haldnir með
hefðbundnu sniði dagana 16.-20. janúar
og lýkur með veglegri árshátíð Lækna-
félags Reykjavíkur laugardagskvöldið
21. janúar. Gunnar Bjarni Ragnarsson
yfirlæknir á krabbameinsdeild Landspít-
alans sem hefur veitt Fræðslustofnun
Læknafélags Íslands forstöðu og þar
með Læknadögum undanfarin 5 ár læt-
ur nú af því starfi og við tekur Jórunn
Atladóttir skurðlæknir. Gunnar Bjarni
segir dagskrá Læknadaga þéttskipaða
af áhugaverðu og vönduðu efni og lítur
einnig til baka og horfir framávið eins
og við á í samtali á slíkum tímamótum.
„Það má segja að yfirskrift Læknadaganna
í ár sé símenntun. Fyrsti dagurinn er allur
helgaður símenntun og sérfræðinámi á
Íslandi undir styrkri stjórn Friðbjörns Sig-
urðssonar og félaga í samstarfi við Félag
almennra lækna. Þetta verður tvískipt,
annars vegar fjallað um símenntun og
hins vegar um sérnám í ýmsum greinum
sem er í boði hér á landi en það hefur ver-
ið í mikilli framför og má nefna að sérnám
í lyflækningum hefur nú þegar fengið
viðurkenningu sérfræðiráðs konunglegu
bresku læknasamtakanna (The Royal Col-
lege of Physicians, RCP) sem hefur verið
þeim innan handar um skipulagningu sér-
námsins. Þessu skylt er reyndar málþing
um eflingu almennra lyflækninga sem
haldið verður á miðvikudeginum,“ segir
Gunnar Bjarni í upphafi.
„Símenntun lækna er eitt af höfuð-
verkefnum Fræðslustofnunar lækna og
mín framtíðarsýn er að þessi þáttur verði
efldur enn frekar og verði alltaf í gangi og
skráning símenntunarpunkta verði sam-
felld árið um kring enda skiptir það miklu
máli varðandi framgang í starfi, viðhald
réttinda og launakjör á hverjum tíma. Með
nútímatækni er mjög auðvelt að skrá þetta
og einnig auðvelt að sækja sér símenntun.
Víða, til dæmis í Bandaríkjunum, er lækn-
um gert að gangast undir próf á regluleg-
um fresti til að staðfesta kunnáttu sína
og færni; við höfum ekki þann hátt á en
það mætti hugsa sér að læknar þyrftu að
sýna fram á ákveðið lágmark símenntun-
ar á nokkurra ára fresti. Læknar fylgjast
almennt mjög vel með þróun í sinni grein
og því er þetta í flestum tilfellum einungis
spurning um að staðfesta það sem þegar
er orðið.“
Gunnar Bjarni bætir við að Ísland sé nú
komið í alfaraleið og margir hafi mikinn
áhuga á að koma hingað: „Svo hér er sífellt
að aukast framboð á sérhæfðari þingum
og námskeiðum með þátttöku erlendra
kollega og fyrirlesara. Arna Guðmunds-
dóttir, forveri minn í þessu embætti, hafði
mikinn áhuga á að hér yrði boðið upp
á námskeið fyrir erlenda lækna með ís-
lenskum fyrirlesurum þar sem við eigum
sérfræðinga og vísindamenn í læknastétt
sem eru í fremstu röð í heiminum og því
er þetta vel raunhæft. Ég var kominn þó
nokkuð langt í að undirbúa þess konar
þing, en það þótti þá ekki fýsilegt á sínum
tíma. Það mætti hugsanlega fara að skoða
það aftur og gæti jafnvel verið ný tekju-
lind fyrir Fræðslustofnun.“
Krabbameinslækningar,
fæðuofnæmi og mygluskemmdir
Það má einnig nefna að fyrsta daginn
verður að venju slegið á léttari strengi við
setningu Læknadaga og hefur Ari Eldjárn
verið fenginn til að sinna þeim þætti. Er
ekki að efa að hann muni standa vel undir
væntingum.
„Hvað dagskrána varðar að öðru leyti
má einfaldlega segja að hún er mjög fjöl-
breytt og flestir munu finna eitthvað við
sitt hæfi,“ segir Gunnar Bjarni.
„Ef farið er fljótt yfir sögu má nefna að
á mánudeginum verður fjallað um bráða-
lækningar og á þriðjudeginum er áhuga-
vert málþing um krabbamein í kvenlíffær-
um. Ég nefni þetta af því að það snertir
mína sérgrein, krabbameinslækningar, en
af allt öðrum toga má nefna málþing um
fyrstu fæðu ungbarna og í tengslum við
það, málþing um fæðuofnæmi og síðan
málþing sem ber yfirskriftina Skuggahlið-
ar heilsuæðisins. Allt tengist þetta á einn
eða annan hátt því að fæða og heilsuefling
eru mörgum mikið áhugamál. Annað efni
sem þessu tengist er málþing um streitu í
lífi og starfi og hvernig má greina hana og
taka á henni.
Að venju verður málþing á miðviku-
dagskvöldið opið almenningi og að þessu
sinni verður fjallað um þjóðarátakið gegn
lifrarbólgu C og í hverju það verkefni er
fólgið. Þarna gefst almenningi tækifæri til
að eiga samtal við forkólfa þessarar stóru
rannsóknar og fá nánari upplýsingar um
verkefnið og sjúkdóminn lifrarbólgu C.
Þá má nefna málþing um rakaskemmd-
ir og myglu í húsnæði og áhrif þess á
heilsu fólks. Þetta er efni sem mikið hefur
verið rætt um og er vaxandi vandamál.
Þarna hafa framsögu lungna- og ofnæm-
islæknar ásamt sérfræðingum í rannsókn-
um á myglu í íbúðar- og atvinnuhúsnæði.
Þá verður málþing um kannabis til lækn-
inga og gæði þess sem lyfs, sérstaklega við
líknandi meðferð en einnig aukaverkanir
og fíkn.
Sérstaklega langar mig líka til að nefna
málþing þar sem heiðra á tvo forkólfa í
krabbameinslækningum á Íslandi, Sigurð
Björnsson og Þórarin Sveinsson. Þetta
eru menn sem ruddu brautina fyrir nú-
tímakrabbameinslækningar á Íslandi og
voru um árabil yfirlæknar á Krabbameins-
deild Landspítalans. Þeir eru nú báðir
LÆKNADAGAR 2017
– segir Gunnar Bjarni
forstöðumaður
Fræðslustofnunar
Símenntun í öndvegi
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson