Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.01.2017, Síða 36

Læknablaðið - 01.01.2017, Síða 36
36 LÆKNAblaðið 2017/103 L Æ K N A D A G A R Mannaskipti verða í brúnni hjá Fræðslu- stofnun Læknafélags Íslands í janúar. Jórunn Atladóttir skurðlæknir tekur við keflinu af Gunnar Bjarna Ragnarssyni sem gegnt hefur starfinu undanfarin fimm ár. Jórunn er nýlega komin heim frá sérnámi og kveðst taka við góðu búi af Gunnari Bjarna. Jórunn er skurðlæknir með sérgrein í aðgerðum á neðri meltingarvegi og hefur starfað á Landspítalanum í tvö ár. „Ég kom heim haustið 2014 eftir 8 ár í Bandaríkj- unum. Ég tók almennar skurðlækningar við Yale University Hospital í New Haven og var þar í 7 ár og síðan tók ég eitt ár í ristilskurðlækningum sem undirsérgrein á Robert Wood Johnson háskólasjúkrahús- inu í New Jersey. Síðan kom ég heim þegar sérnáminu var lokið.“ Jórunn kveðst mjög ánægð með að vera komin heim, það sé bæði spennandi og skemmtilegt. Aðspurð um viðbrigði að koma af stórum sjúkrahúsum í Banda- ríkjunum á Landspítalann, segir hún þau sannarlega mikil. „Ég kom heim um leið og læknar fóru í verkfall og vissi ekki alveg hvað ég átti að halda um það en svo leystist farsællega úr því og starfs- umhverfið hér er miklu meira aðlaðandi og samskiptin og tempóið eru eðlilegri hér heima. Vinnuálagið þar er mun meira en hér og leiðir ekki endilega af sér betri þjónustu. Þar er vissulega frábært heil- brigðiskerfi en því miður hafa ekki nógu margir aðgengi að því.“ Einkasjúkrahúsrekstur er þér greinilega ekki að skapi? „Nei. Miðað við reynslu mína af slíku í Bandaríkjunum þá finnst mér það ekki aðlaðandi kostur. Kostirnir við heilbrigð- iskerfið hér heima eru ótvíræðir. Aðgengið að þjónustunni er mjög gott, fagleg þekk- ing er á við það besta sem þekkist og þó vissulega sé hægt að kvarta yfir ýmsu finnst mér heildarniðurstaðan vera mjög jákvæð.“ Hvað varð svo til þess að þú tókst að þér Læknadagana? „Það var hálfgerð tilviljun. Það vant- aði einhvern af skurðsviði spítalans í stjórn Fræðslustofnunar LÍ og ég vildi koma mér inn í félagsstörfin og bauð mig fram. Þannig kynntist ég Gunnari Bjarna og vann með honum að undirbúningi Læknadaganna 2016 og þegar hann hafði ákveðið að stíga til hliðar spurði hann hvort ég væri ekki til í að taka við af hon- um. Ég ákvað að slá til og það hafði áhrif á ákvörðun mína að aldrei áður hefur skurðlæknir gegnt þessu starfi. Það breytir kannski ekki svo miklu við skipulag og dagskrá Læknadaganna sjálfra en ég hef verið að vinna markvisst með Gunnari að undirbúningi Læknadaganna 2017 og tek síðan alfarið við keflinu að þeim loknum.“ Jórunn segir Læknadagana vera mjög mikilvægan vettvang fræðslu og félags- legra samskipta fyrir læknastéttina á Íslandi. „Þetta er algjörlega þverfaglegt og allir eru með, sem er einn af stóru kostunum hér á Íslandi; allir eru tengdir og það er auðveldara þess vegna að stíga út úr sínu sérfaglega hólfi og kynna sér hvað aðrir eru fást við. Þetta er þess vegna mikilvæg félagsleg samkoma ekki síður en fagleg og fræðileg.“ Hún segir ekki ástæðu til að óttast stór- kostlegar breytingar á skipulagi eða ásýnd Læknadaganna. „Ég tek við mjög góðu og markmiðið er að hal da sama striki, helst með áframhaldandi áherslu á tæknilega þætti til að við náum að halda í við þró- unina sem orðin er í þeim efnum. Lækna- dagarnir okkar standast fyllilega saman- burð við það besta sem býðst erlendis. Við eigum svo mikið af hámenntuðu fræði- og fagfólki og það er frábært hvað nánast allir vilja vera með og miðla sinni þekkingu á Lækna dögunum, þar er undirstaðan“ seg- ir Jórunn Atladóttir nýr framkvæmdastjóri Fræðslustofnunar LÍ og Læknadaga. „Læknadagar eru faglega og félagslega mikilvægir“ Nýr skipper í brúnni 2018 ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.