Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.01.2017, Qupperneq 51

Læknablaðið - 01.01.2017, Qupperneq 51
LÆKNAblaðið 2017/103 51 Ö L D U N G A D E I L D Norræna lyfjanefndin, NLN Norræna lyfjanefndin, NLN, var stofnuð 1975. Hlutverk hennar var að samræma hjá Norðurlöndunum lyfjalöggjöf, fram- kvæmd laganna, tölfræðilegar upplýsingar um lyfjanotkun, skrár um aukaverkanir, upplýsingagjöf og að halda utan um sam- vinnu sem þegar var til staðar um löggilta lyfjaskrá (sérlyfjaskrá). Tveir komu frá hverju landi. Þá voru þrjú stórveldi, Dan- mörk, Noregur og Svíþjóð, og hjá þeim störfuðu lyfjastofnanir með tugum ef ekki hundruðum starfsmanna, í Finnlandi færri og á Íslandi mátti telja starfsmenn á fingrum annarrar handar (þá!). Tveir fundir voru haldnir árlega til skiptis í löndunum 5 og vinnunefndir störfuðu þeirra á milli. Fyrstu fundina fengum við litlu karlar að fylgjast með stórveldafulltrúunum þreifa varlega fyrir sér eins og súmóglímumenn í byrjun bar- daga. Norðmenn gátu státað af 6 ára vinnu við að þróa ATC-flokkun lyfja (Anatomical, Therapeutic, Chemical) og stærðareininguna DDD (Defined Daily Dose), faglegt magn í samanburði á neyslu.2 Hjá Dönum og Sví- um var kröftugur lyfjaiðnaður og því mik- il reynsla hjá yfirvöldum af meðhöndlun lyfjaskráningar. Nú hófst vinna sem hefur skilað miklu meiri árangri en almennt er á vitorði. Aðeins skal tæpt á tveimur verk- efnum nefndarinnar: NLN tók að sér ATC og DDD-kerfin. Þegar árið 1976 og síðan árlega komu út bækur með töflum og línuritum um notk- un lyfja á Norðurlöndum. Við Egil Gjone prófessor í meltingarsjúkdómum í Osló vorum tveir klínískir læknar í nefndinni og gátum á grundvelli þessara skýrslna stuðlað að ráðstefnu um notkun sýkla- og geðlyfja á Norðurlöndunum, en notkun á Íslandi skar sig úr.2 ATC og DDD eru viðurkennd á heimsvísu og heyra undir Alþjóðaheilbrigðisstofnunina, en norska lyfjastofnunin sér um og greiðir kostnað við framkvæmd og viðhald þeirra. Langsamlega áhrifamesta starf NLN var samræming á löggjöf um skráningu nýrra lyfja og alla framkvæmd þar að lútandi. Með ráðstefnum og fundum og þátttöku fulltrúa lyfjaiðnaðarins tókst að samstilla allt ferlið, kröfur um innihald og umgjörð umsókna frá framleiðanda nýs lyfs og hvernig matsskýrsla hjá lyfja- stofnuninni skyldi vera upp byggð. NLN fékk tilkynningar um nýjar umsóknir og deildi þeim með öllum löndunum. Horfið var frá því að sama vinnan færi fram í 5 löndum og smám saman fóru þau að skipta með sér verkum og samþykkja úr- vinnslu hinna. Sameiginleg lyfjaskráning á Norðurlöndunum var í burðarliðnum og allt þetta ferli hafði mjög tekið tillit til þess sem fram fór annars staðar. En þá tók Evrópusambandið málið í sínar hendur, Evrópska lyfjastofnunin, EMA (European Medicines Agency), í London gerði reglur NLN nánast orðrétt að sínum og þar fer nú fram skráning nýrra lyfja fyrir flest Evrópulönd. Norræna lyfjanefndin skilaði svo góðum árangri að hún var lögð niður árið 2002! Að lokum vil ég tíunda dýrmætan lærdóm sem ég öðlaðist af setu minni í NLN í hartnær tvo áratugi: Það var ómet- anlegt að hafa lært dönsku í mörg skólaár þegar stjórna skyldi fundum þar sem hver talaði sitt mál nema við og Finnar, en formennska fluttist árlega milli nefndar- manna. Þarna mátti fylgjast með mönnum með rótgróin mismunandi sjónarmið kom- ast að sameiginlegri niðurstöðu í mikil- vægum málum með þrautseigju. Stundum þurfti marga fundi til að útkljá alvarlegan ágreining en það tókst alltaf á endanum hávaðalaust. – Við íslensku fulltrúarnir fundum ætíð hlýja vináttu kollega frænd- þjóðanna og fengum á silfurfati lausn erfiðra mála, en Ísland greiddi aðeins 1% af kostnaði. Stundum er gert lítið úr norrænni samvinnu, en það er sannarlega ekki mín reynsla. Þakkir Þakkir fær Bjørn Jøldal Noregi fyrir upp- lýsingar, Almar Grímsson og Sigurður B. Þorsteinsson fyrir yfirlestur. Heimildir 1. Emilsson T. Undarlegar sýnir. Lyfjafréttir 1978; 1,5: 3-4. 2. Kristinsson Á, Þorsteinsson SB, Helgason T. Ráðstefna um notkun sýklalyfja og geðlyfja á Norðurlöndum. Læknablaðið 1984; 70: 141-4. Höfundur rýnir í fylgiskjöl úr bunkanum sem fylgdi einni umsókn! Myndina tók Gunnar Árnason árið 1976.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.