Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Blaðsíða 4
4 20. apríl 2018fréttir Þ eir sem þekkja til Sindra Þórs Stefánssonar telja hann hafa byrjað að skipu- leggja flótta sinn fyr- ir nokkrum vikum. Sindri sat í gæsluvarðhaldi á Hólmsheiði en var sendur á Sogn þó svo að gæsluvarðhaldi væri ekki lokið. Fangelsið á Hólmsheiði er ramm- gert og þaðan er ekki auðvelt að strjúka. Sindri er grunaður um að- ild að þjófnaði á 600 tölvum sem og innbrotum. Fyrsta skrefið til að ná að kom- ast úr landi var að fá flutning á Sogn eða í annað sambærilegt opið úrræði. Samkvæmt heimild- um DV sagði Sindri að honum liði illa á Hólmsheiði og hætta væri á að yrði hann þar áfram myndi hann jafnvel skaða sjálfan sig. Þá segir einn heimildarmanna DV að Sindri hafi tjáð fangavörðum að hann heyrði raddir. Sindri hef- ur einnig sýnt af sér góðan þokka í fangelsinu. Stutt er síðan mik- ið fjölmiðlafár varð vegna and- láts fanga á Kvíabryggju og óttuð- ust stjórnendur að slíkt gæti nú endurtekið sig. Sindri var því færð- ur í opið úrræði þrátt fyrir að sitja enn í gæsluvarðhaldi. Hvernig flúði Sindri? Sindri virðist hafa skipulagt flótt- ann fyrir margt löngu og haft fang- elsismálayfirvöld í vasanum. Áður en við rekjum flóttann skulum við aðeins kynnast þessum unga manni sem er að verða heimsfræg- ur. Sindra, sem er fæddur árið 1986, gekk illa í skóla sem barni og var greindur með ofvirkni og athyglis- brest á háu stigi. Á grunnskólaár- um hikaði hann ekki við að ljúga og stela. Barnavernd hafði snemma afskipti af Sindra og flakkaði hann á milli stofnana í nokkur ár. Þá var hann sendur á hina ýmsu sveita- bæi. Þegar Sindri var um tvítugt voru 200 lögreglumál í kerfinu sem tengdust honum með einum eða öðrum hætti. Í flestum þeirra var hann höfuðpaurinn. Sextán ára var hann sokkinn djúpt í neyslu og reykti þá ein- göngu kannabis. Um það tímabil sagði Sindri: „Mér varð alveg sama um allt, öll mörk voru farin. Á inn- an við tveimur árum frá fyrsta kannabisreyknum sem ég andaði að mér var ég búinn að prófa allt, þá meina ég allt. Og þar á eftir tóku við sex ár af mjög erfiðu tímabili fyrir mig og alla sem voru í kring- um mig.“ Sindri endaði á vergangi og á götunni. En Sindri fór í hverja meðferðina á fætur annarri og náði loks árangri árið 2011 og náði að vera án vímuefna minnst í nokkur ár. Náði hann aftur tengsl- um við fjölskyldu, eignaðist konu og börn og hóf að stunda nám. Hann fékk síðast dóm árið 2015 þegar hann var gripinn með 130 grömm af amfetamíni og um 200 grömm af grasi. Lögregla furðar sig á ákvörðun um að senda Sindra á Sogn Sindri virðist hafa villst aftur af leið, en hann ætlaði sér ekki að sitja inni. Hann strauk sama dag og stóð til að fjalla um hvort ætti að framlengja gæsluvarðhaldsúr- skurðinn. Sú ákvörðun að senda Sindra á Sogn hefur verið gagn- rýnd. Hulda Elsa Björgvinsdóttir á ákærusviði lögreglunnar segir í samtali við mbl.is að lögreglu væri ekki kunnugt um að gæsluvarð- haldsgangar væru vistaðir í opnu úrræði. Til að láta færa sig í opið rými hamraði Sindri á að honum liði illa í hinu nýja fangelsi og af ótta við að hann gæti mögulega skaðað sig svo úr yrði fjölmiðla- fár var Sindri færður á Sogn. Hann kom líka vel fyrir og lítil hætta virt- ist stafa af honum. Yfirvöld munu neita þessu en heimildir DV eru traustar. Fangar sem Sindri sat með á Hólmsheiði bera honum vel söguna og hann hafi stundum slegið á létta strengi um að versla í fangelsissjoppunni með Bitcoin. Þegar á Sogn var komið tók Sindri sér góðan tíma í að kanna aðstæður. Þar er föngum treyst. Þeir hafa aðgang að síma og hæg- ur leikur að flakka um netheima. Sindri uppgötvaði að enginn kíkti inn í herbergi hans fyrr en í fyrsta lagi klukkan átta um morguninn. Fyrrverandi fangaverðir á Sogni hafa greint DV frá því að algengt sé að verðirnir leggi sig á næturnar. Á meðan Sindri skipulagði flóttann leitaði lögreglan að hugbúnaðin- um. Tölvurnar hafa ekki fundist en lögregla hefur fundið á annan tug minni og stærri tölvuvera, í gám- um og byggingum sem eru nýtt til að grafa eftir Bitcoin. Sum þessara tölvuvera voru byggð á þýfi en enginn úr innbrotinu sem hefur verið lofað milljónum takist ein- hverjum að leysa gátuna. Þaulskipulagður flótti Hvað það varð til þess að Sindri valdi þennan dag er ekki vitað á þessari stundu. Þennan sama dag átti að taka fyrir hvort gæsluvarð- hald yrði framlengt. Líklegt er að hann hafi óttast að hann yrði færð- ur á nýjan leik. Hann lét alla vega til skarar skríða þetta kvöld og skreið út um gluggann. Áður hafði hann nýtt spjaldtölvuna til að fara á netið og kaupa flugmiða til Stokkhólms á nafni annars manns. Sindri var líklega sóttur af sam- verkamanni og seinna um kvöldið tekur hann leigubíl að Leifsstöð og framvísaði skilríkjum annars manns. Sindri gætti þess að vera mættur mörgum tímum fyrir brott- för. Hann vissi að mögulegt væri að flóttinn myndi uppgötvast klukk- an átta um morguninn. Yfirvöld myndu þá byrja á að skoða mynd- skeið af fólki sem væri að koma að flugstöðvarbyggingunni tveim- ur til þremur tímum fyrir brottför. Sindri flaug svo til Svíþjóðar með Icelandair. Í sömu vél var Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Þess má geta að hún er sérstakur áhugamaður um glæpasögur! Þetta fangaflug forsætisráðherra myndi aldrei ganga upp í kvikmynd, svo ótrúverðug er þessi atburðarás. Er Sindri í Rússlandi? En hvað tók svo við þegar Sindri lenti í Svíþjóð? Nú, hann fór fljót- lega á Facebook en þá í þeim til- gangi að loka síðunni sinni. Slíkt gerði kona hans líka, þó aðeins síðar. Flóttinn hefur vakið heims- athygli og á Sindri ótal aðdáend- ur sem lofsyngja flóttann og gáf- ur hans. Sem dæmi má nefna að á Facebook-síðunni Það sem enginn viðurkennir hefur verið póstað mynd sem á stendur: „Team Sindri“. Þar er ungi strokufanginn lofsunginn og vill stór hluti að hann hljóti uppreist æru fyrir flóttann mikla. „Vel skipulagt og allt kortlagt i hausnum á honum gáfaður gaur,“ segir kona að nafni Guðlaug. Einn sá flottasti.“ Nú leita yfirvöld að leigubíl- stjóra sem ók silfurgráum Skoda station bíl. En hvar er Sindri núna? Heimildarmenn DV telja að hann hafi jafnvel flúið til Rússlands en þangað er talið að hluti af tölvu- búnaðinum hafi endað. En mun hann finnast? Ef Sindra tekst að vera þolinmóður og láta sér vaxa hár og skegg í leyni gæti orðið snúið að hafa uppi á honum. Slóðin kóln- ar hratt. En hvað sem verður fylgist þjóð- in spennt með og heimurinn allur. n Vissir þú að … … árið 1979 var hægt að dansa gömlu dansana allar helgar í Reykjavík. Gömlu dansarnir voru á Ingólfscafé á föstudags- og laugardagskvöldum, svo á Hótel Íslandi á sunnudagskvöldum. … þegar Árbæjarsafn var opnað árið 1957 var það hugsað sem gististaður fyrir ferðamenn. … ítarlega var fjallað um Donald Trump, núverandi Bandaríkjaforseta, í tímaritinu Frjálsri verslun árið 1988. Var Trump lýst sem yfirveguðum samninga- manni sem breytti öllu sem hann snerti í gull. … rúmlega 16,5% allra sem starfa á Íslandi eru innflytjendur. … árið 1990 kom James A. Roberts hingað til lands og varaði Íslendinga við ágangi ferðamanna á viðkvæm- um svæðum. Fáklæddar konur kæmu í veg fyrir strok J ón Valur Jensson telur sig hafa fundið lausn til að koma í veg fyrir að fangar reyni að strjúka úr fangels- um. Jón Valur ræddi málið við Pétur á Útvarpi Sögu og flutti þar ljóð í beinni sem hljóð- aði svo: Strokuföngum fjölgar ótt, frelsið þrá að vonum. Inni- luktum yrði rótt, ættu þeir völ á konum. Liðugum, í stráka stað, á stuttbuxum við tennisleik; breysku  hjörtun  bræðir það, en bannað þó að enda´ í sleik! Jón Valur útskýrði svo boð- skapinn á þessa leið fyrir hlust- endum: „Þetta er óformleg til- laga, spurning hversu alvarlega meint, um að þeir fái sendar konur til að spila tennis við sig úti í fangelsisgarði,“ sagði Jón Valur og bætti við: „Þá mundu þeir hætta að reyna að strjúka.“ n Gæti hafa flúið til Rússlands n Aðdáendur lofsyngja flóttann n Á annan tug tölvuvera hafa fundist „Mér varð alveg sama um allt, öll mörk voru farin Sindri hefur eignast stóran aðdáendahóp sem vill að hann fái uppreist æru. Sindri þykir klókur með eindæmum. Sindri beitti blekkingum til að komast í opið úrræði Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@dv.is Mynd sem lögregla sendi frá sér eftir að Sindri flúði. Sindri á leið úr landi með handfar- angur og spjaldtölvu undir hendinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.