Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Blaðsíða 39
Hjólreiðar 20. apríl 2018 KYNNINGARBLAÐ „Komdu út með okkur“ Íslandsvinir bjóða upp á hreyfiferðir: Stærsti hlutinn af þeim ferðum sem við bjóðum upp á fyrir Íslendinga erlendis eru hreyfi- ferðir,“ segir Brandur Jón Guðjónsson hjá ferðaskrifstofunni Íslandsvinum, eða Iceland Explorer, sem stofnuð var árið 1998. „Aðallega eru það göngu-, hjólreiða- og skíðaferðir, en svo förum við með fólk í „hefðbundn- ar“ ferðir líka“ Boðið er upp á ferðir nánast hvert sem hugurinn leitar, ef svo ber undir. „Við höfum fyrst og fremst verið í suður- og austurhluta Evrópu, og á þessu ári verðum við með hjólaferðir til Ítalíu, Austurríkis, Slóveníu og Króatíu. Og svo er nýtt á þessu ári að við bjóðum upp á hjólaferð til Kanada, en sú ferð verður um verslunarmanna- helgina.“ Auk hreyfiferða er einnig boðið upp á skoðunarferðir og sérferðir fyrir hópa, starfsmannafélög sem og aðra, í árshátíðar-, helgar- og borgarferðir. „Þetta er æði fjölbreytt og í takt við fyrirspurnir sem við fáum hér inn til okkar,“ en Íslandsvinir sérs- níða ferðina að óskum viðskiptavina. „Sem dæmi má nefna að ég er að fara með 19 manna hóp í hjólaferð til Slóveníu í haust og sú ferð er ekki auglýst á heimasíðu okkar.“ Mikil aukning er í hjólreiðum á Íslandi og skilar það sér í vinsældum hjólaferða erlendis. „Fólk vill prufa þessa skemmtilegu blöndu af hreyfingu, útiveru, náttúruskoðun og upplifunum við mildari veðurfar en hér heima. Við gerum þá kröfu að fólk hafi hjólað eitthvað áður til að þekkja hvernig reiðhjólið virkar og sé vant að sitja á hjóli í lengri tíma. Það er munur á að hjóla í korter, hálftíma á dag til og frá vinnu hér heima og að fara síðan í slíka ferð þar sem þú ert meira og minna viðloðandi hjólið allan daginn, nokkra daga í röð.“ Hjólaferðirnar eru í heild 8–11 daga langar og svo er það mismunandi hversu margir hjóladagarnir eru, auk þess sem að dagleiðirnar eru mislangar, allt frá 25 km og upp undir 100 km. Hjól eru leigð erlendis af samstarfs- aðilum Íslandsvina á hverjum stað. „Allir okkar samstarfs- aðilar bjóða upp á ágætis hjól sem henta ferðunum okkar vel. Og þetta eru meira og minna aðilar sem við höfum unnið með mörg undanfarin ár og eru orðnir góðir vinir okkar.“ Misjafnt er milli ferða hvort hjólið er innifalið í verði ferðanna eða ekki, en það fer eftir aðstæðum á þeim stöðum sem ferðast er til. „Svo getum við nánast alltaf orðið við þeirri beiðni ef að fólk vill vera á rafhjóli frekar en venjulegu.“ „Við eigum sístækkandi hóp sem kemur með okkur reglulega í ferðir, þau sem oftast hafa komið með okkur eru t.d. búin að koma í sex mismun- andi hjólaferðir á undanförnum árum, auk þess sem mörg eru að koma með okkur í annað, þriðja eða fjórða skiptið. Okkur þykir mjög vænt um tryggð þessara viðskiptavina! Okkar ferðir eru e.t.v. ekki „ódýrastar“, en þegar allt sem innifalið er í þeim er tekið með í reikninginn og sú þjónusta sem við veitum, þá finnst langstærstum hópi okkar ánægðu viðskiptavina verðið hafa verið mjög sanngjarnt.“ Ferðaskrifstofan Íslandsvinir er í Kringlunni 7, símanúmerið er 510- 9500 og netfang info@explorer.is Heimasíða: islandsvinir.is og Face- booksíða: islandsvinir.is Hjólaferðir fram undan Þær hjólaferðir sem Íslandsvinir aug- lýsa og fram undan eru í ár eru hver annarri áhugaverðari og fjölbreyttari: Töfrar Gardavatnsins 2.–9. júní: Árleg hjólaferð Íslandsvina til Riva del Garda á Ítalíu þar sem farnar eru mjög fjölbreyttar dagleiðir við þessa miklu náttúruperlu. Kanada – Klettafjöllin og Edmonton 31. júlí–8. ágúst: Leiðin milli Jasper og Banff um samnefnda þjóðgarða í stórbrotnum fjallgarði Klettafjallanna er andleg og líkamleg áskorun. Perlur Slóveníu 16.–24. ágúst: Hjólað er um nokkra af fegurstu stöðum Slóveníu, en landið hefur margoft verið nefnt „Perla Evrópu“. Um dali vestur - og út og suður ... 4.–13. september: Hjólað er á sjö dög- um um fallega dali í Austurríki og Ítalíu, milli Alpanna í norðri og Dólómítafjall- anna í suðri. Kvarnerflóinn í Króatíu 13.–23. sept- ember: Mikið ævintýri þar sem hjólað er um nokkrar af stærri eyjum Kvarner- flóans í Króatíu en búið um borð í báti sem ferjar þátttakendur á milli eyjanna, en sá bátur er frátekinn sérstaklega fyrir þennan hóp. Dónárdraumur 23. september–1. október: Árleg hjólaferð Íslandsvina meðfram Dóná, þar sem hjólað er á sex dögum um eina fjölförnustu og vinsæl- ustu hjólreiðaleið Evrópu, frá Passau í Þýskalandi austur til Vínarborgar í Austurríki. Létt, en mjög flott ferð! ÁnæGðIR VIðSKIPtAVInIR KOMA AFtuR OG AFtuR VEGnA SAnnGJARnS VERðS OG VAnDAðRA VInnuBRAGðA. Ferðastefna Íslands- vina er skýr hvað ferðir erlendis varðar Ferðaskrifstofan Íslandsvinir leitast við að sérhæfa sig í ferðum sem hreyfa við hug og hjarta! Brandur Jón Guðjónsson. Stórbrotið landslagið í Klettafjöllunum í Kanada er meginstef hjólaferðar þangað um versl- unarmannahelgina. Slappað af á siglingu milli eyja í Kvarner flóanum í Króatíu. Glaðbeittur hópur á bökkum Dónár.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.